Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness. - 01.01.1946, Blaðsíða 3

Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness. - 01.01.1946, Blaðsíða 3
ARROÐINN 3 neroendurna eftir, en svo er ekki. Ef iðnskólamir vœru reknir sem dagskól- ar, þá yrðu þeir að hafa sérstakt hús- næði fyrir sig; þeir yrðu að' hafa fast launaða kennara, þar er þeir kennarar er kenndu alla daga við iðnskóla gætu ekki haft annað starf að aðalstarfi. En slíkir liðir yrðu æði kostnaðarsamir fyrir þriggja mánaða skóla. I Reykjavík á iðnskólinn skólahús; þar eru fastir kennarar við: skólann; þar var rekinn dagsskóli í hau'st, ekki hindruðu meistararnir það. Framangreind vandkvæð'i á rekstri dagskóla eru að vísu leysanleg sums- staðar, en það verður ekki rakið nánar hér, þar eð við teljum ekki að þetta sé framtíðarlausnin fyrir smástaðina. Þótt iðnfræðslan hafi verið rædd hér, þá er það ekki á vegum bæjarstjórnar- innar að leysa þau mál. En hinsvegar telur Alþýðuflokkurinn sér skylt, að 'beita aðstöðu sinni í þjóðmálum til þess að iðnfræðslunni verði kornið í það form, sem bezt reynist. Alitlegasta lausnin virðist vera sú, að á landinu störfuðu fáir en vandaðir og vel útbún- ir iðnskólar með heimavist til að taka á móti aðkomnum nemendum. A tveim vetrum ætti hver nemandi að vera bú- inn að ná jafngóðum eða betri árangri í slíkum dagskóla en þeir hafa nú út úr fjögurra vetra kvöldskóla. Og þar sem iðnnám er yfirleitt fjögur ár, en skóladvölin yrð'i tvo vetur, yrði alltaf helmingur iðnnema að starfi hjá meist- urum sínum og ynnu þá allan daginn ótrufliaðir af skólanámi. Við slíka skóla, sem hér hafa verið nefndir mætti hafa deild, er hverjum nemenda væri kynnt meðferð og notk- un þeirra áhalda er þeir nota í sinni iðngrein. Slfkir skólar, sem hér hafa verið nefndir, ættu að geta haft betri kennslu- útbúnað og betri kennslukrafta, en smáskólar sem væru dreifðir út um allt land. Bókasafn og lestrarstofa: Þegar gagnifræðaskólinn flytur úr nú- verandi húsnæði sínu, kemur þar hentugt húsnæði fyrir bókasafn og lestrarsal. Gott bókasafn og vistlegur lestrarsalur er nauðsynjamál fyrir bæj- arbúa. Þar gætu kennarar komið með nemendur sína, kynnt þeim bókmennt- Þegar gengið er til kosninga um bæj- armálefni eins og nú á sér stað hér á Akranesi og um al'lt land, fer ekki hjá því, að ræða beri þau málefni, sem efst eru á baugi á hverjum stað og kemur það oft fram í því, að allir flokkar eru með meiri og minni yfir- boð um þaði, sem þeir ætla sér að gera á kjörtímabilinu. Við þessu er ekkert að segja, ef oft og tíðum væri ekki sagt meira en nokkur maður gæti látið sér detta í hug að hægt sé að framkvæma við þau skilyrði, sem við er að búa á hverjum tima. Alþýðuflokkurinn fer fram til þess- ara kosninga með stefnumál, sem al- þjóð eru kunn en þau felast í því að vinna að bættum kjörum hins vinnandi fólks og að umbótum á núverandi þjóð- skipulagi á lýðræðisgrundvelli. Okkur Akurnesingum liggur mest á (hjarta, eins og öðrum landsbúum, hvernig atvinnumálum okkar verður bezt á veg komið og vildi ég því í stuttri blaðagrein gera grein fyrir því, sem við sem að A-listanum stöndum álítum bezt að þeim unnið. ir og kennt þeim að vinna úr heimild- um. Hér á Akranesi eru á hverjum vetri fjöldi aðkomumanna, sem ekkert at- hvarf hafa annað en braggana sem þeir sofa í, og kaffihúsið til að: setjast inn í. Þessir menn mundu finna mun á því, að: geta setzt inn í h'lýja og vistlega lestrarstofu, lesið þar góðar bækur, og ritað bré'f til fjarlægra ættingja og vina. Svo mætti fara, að þeir yrðu þá færri aðkomumennirnir, er styttu sér stundir með áfenginu. Þetta mál mun nú ekki vera haft öllu lengra, en meðal annara menn- ingarmála er Alþýðuflokkurinn hér mun styðja má nefna: Stofnun hús- mæðraskóla hér á Akranesi. Notkun kvikmynda til kennslu. Bætt skilyrði íþróttaæskunnar hér á Akranesi o. fl. * Hugleiðingar Sjávarútvegur hefur verið okkar að- alatvinnugrein. Því er mikið undir því fcomið, að að honum sé þannig unnið, að hann geti þrifizt. Höfuðnauð'syn þess að sjávarútvegurinn hér á Akra- nesi aukist er því að góð höfn komi hér sem fyrst. Til þess að svo geti orðið, þarf bærinn að kjósa sér forráðamenn, sem Ihafi meiri framsýni en þá, að betra sé að halda áfram með þau hafn- armannvirki, sem þegar er byrjað á við Krossvík, heldur en að leggja pen- inga í það að lappa upp á bryggjuna í Lambhúsasundi, sem aldrei getur orðiið frarntíðarhöfn og það mega kjós- endur muna 27. janúar, að það er vel líklegt að það hefði verið gert ef Al- þýðuflokksfulltrúarnir í bæjarstjórn hefðu ekki staðið eindregið á móti því. Að hafnarmannvirkjun þarf að vinna og ekki staðar nema, ifyrr en hér er kominn lokuð höfn fyrir smærri og stærri skip og að því vill Alþýðuflokk- urinn vinna. Leiðir þær sem fara á til þess að auka skipastóhnn á Akranesi eru þessar: Bærinn verður að eignast minnst tvo togara, sem hann gerir út, fyrir eiginn reikning. Einnig þarf bærinn að stuðla sem mest hann getur að því, að ein- staklingar eða félög kaupi skip og geri þau út héðán; það er á ýmsan hátt Sem bærinn geeti stuðlað að þessu, svo sem með1 því að eignast lóðit niður við höfnina og á þann hátt tryggt það að næigjanlegt landrými sé fyrir útgerðina á sem hetugustum stöðum fyrir hana; einnig á þann hátt að hafa forgöngu um stofnun félaga í þessu augnamiði og létta undir einstafclinga í þessu efni; og þá ekki hvað minnst með því að vinna vel að bættum hafnarskilyrðum, eins og ég tók fram 'hér' að framan; einnig á ibærinn að hafa vakandi auga á þVí, að hér sé alltaf nóg til af tækj- um til þess að vinna úr aflanum, svo sem niðursuðuverksmiðjum fyrir fisk, hraðfrystihús og nógu stór verksmiðja til þess að vinna úr fiskúrgangi og lifur. Margt fleira mætti telja, sem bærinn

x

Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness.
https://timarit.is/publication/1031

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.