Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Page 4
Avarp
BEN' G. WAAGE
forseta 1. S.
Það er nú röskur aldarfjórðungur, síðan knatt-
spyrna var skipulega iðkuð á Akranesi, — og það
eigum vér Knattspyrnufélaginu Kára fyrst og
fremst að þakka. Félagið var stofnað 22. maí 1922
af tiu góðum drengjum. Hið sögulega ár, 1930,
gekk Kári í Iþróttasamband íslands (f. S. f.) og
hefur verið það síðan og stutt mjög að samtaka-
mætti íþróttanna undir forystu f. S. í. Þá hefur og
Kári með góðu samstarfi sínu við önnur félög, —
og þá fyrst og fremst K. A., aukið og eflt íþrótta-
starfið í landinu. Og einhver fegursti ávöxtur þess
áhugastarfs, er hið myndarlega íþróttahús á Akra-
nesi, sem Kári og K. A. byggðu sameiginlega. Ég
minnist ennþá með gleði þess áhuga og dugnaðar,
sem íþróttamenn Akraness sýndu veturinn 1944
og 1945, er bygging íþróttahússins var hafin. Það
voru skemmtileg vinnubrögð og gagnleg æskulýð
bæjarins. Og sama má segja um þá liðveizlu, sem
þeir veittu, er hafist var handa um byggingu sund-
laugarinnar.
Eins og gefur að skilja hefur oltið á ýmsu þennan
aldarfjórðung, sem Kári hefur starfað. Það hefur
verið eins og svo víða annars staðar hér á landi,
að íþróttaáhuginn hefur verið misjafnlega mikill.
Vegna atvinnuhátta í kaupstöðum, hafa menn ekki
alltaf getað iðkað íþróttir að staðaldri eða reglu-
lega. Sjórinn hefur svo oft kallað á sævíkinga sína
til starfa. — En í landlegum hafa þessir sævik-
ingar getað iðkað líkamsæfingar til dægradvalar
og skemmtunar. Þar hafa hinar fornu íþróttir vorar
geyrnzt, eins og glíman. Og svo mun verða fram-
vegis, þar sem líf og starf skipar öndvegið. En i
önnum dagsins geta menn ekki alltaf sinnt áhuga-
málum sinum sem skyldi. Þess vegna ber að nota
vel þær tómstundir, sem gefast; og einkum þurfa
íþróttamenn að muna það, ef þeir vilja sjá veru-
legan árangur af starfi sínu.
Líkamsiþróttirnar eru ekkert tizku-fyrirbæri,
eins og sumir menn virðast halda. Iþróttirnar eru
bezta uppeldis- og þroskaleið fyrir æskulýðinn,
séu þær réttilega um hönd hafðar. Munið, að
æskulýðurinn heimtar áreynslu og starf.
Aldrei hafa framfarir í íþróttum verið meiri
hér á landi en hin síðustu árin. Hvert afrekið hefir
rekið annað. Æskulýðurinn og einstaklingar hafa
fengið enn meiri trú á mátt sinn og megin en
nokkru sinni áður. Nú eru fimleikar og sund,
skyldunámsgreinar í skólum landsins. Þetta hefur
aukið hreinlæti og hreysti landsmanna — og bjart-
sýni. Og þó oss sé enn í ýmsu ábótavant, þá erum
vér á réttri leið um líkamsmennt. Því nú er hugsað
jafnt um afreksmanninn sem almenning. Og svo
á það að vera, ef vér ætlum að sýna alheimi, að
hér „norður á hjara veraldar“ búi manndóms- og
menningarþjóð, þó fámenn sé. Og í þessu áhuga-
starfi skulum vér ekki gleyma því, að mannkostir
og menning þjóðanna fara eigi eftir mannfjölda,
heldur eftir afrekum og ágæti hvers og eins. —
Og að því hefur Kári meðal annars verið að vinna.
Ég óska félaginu hjartanlega til hamingju með
fyrsta aldarfjórðunginn og vænti þess, að KÁRI
fái leyst farsællega af hendi þau verkefni, sem
framundan eru.
2
AFMÆLISBLAÐ KÁRA