Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Síða 5
Avarp
AXELS ANDRÉSSONAR
knattspyrnukennari 1. S. 1.
í tilefni af 25 ára afmælisdegi knattspyrnufélags-
ins Kára óska ég félaginu innilega til hamingju.
Um leið vil ég minna félagsmenn Kára á að
starfa áfram í sama anda og áður að eflingu íþrótt-
arinnar til gæfu og gengis fyrir æskulýð Akra-
nesskaupstaðar. Ekkert er æskunni hollar og betra
en að nota frístundirnar til íþróttaiðkana, því að
íþróttin er lífsins heilsulind. Forystumenn Kára
geta með gleði minnzt þeirra stunda, er þeir hafa
fórnað í þágu félagsins. Árangurinn af starfi þeirra
verður ekki metinn til peninga. Þökk sé þeim fyrir
starfið.
Kári lengi lifi.
Með kveðju,
Axel Andrésson,
Forráðamenn knattspyrnufélagsins Kára hafa
beðið mig um að skrifa nokkrar línur í 25 ára af-
mælisrit félagsins. Er mér ljúft að verða við þeirri
ósk.
Ég gekk í Kára árið 1927, þegar ég kom af Verzl-
unarskólanum og hóf vinnu hjá Haraldi Böðvars-
syni. Var ég í félaginu þar til ég fluttist af Akra-
nesi til Sandgerðis sumarið 1933. Lengst af þeim
tíma átti ég að heita formaður Kára.
Þegar ég gekk í Kára voru tvö knattspyrnufélög
á Akranesi. Hafði Kári þá starfað í fimm ár, en ég
man ekki hve lengi knattspyrnufélag Akraness
hafði þá starfað.
Ég man að sumarið 1927 var töluvert líf í knatt-
spyrnufélögunum á Akranesi og keppust þau um
fyrrv. formanns.
að ná til sín ungum mnönum. Var lagt hart að
mér að ganga í félögin — hvort um sig — þó sér-
staklega í K. A. 1 því félagin voru hka fleiri vinir
mínir og fannst þeim sjálfsagt, að ég yrði í félagi
með þeim.
Mér fannst hins vegar, að „mannval“ væri öllu
heldur meira í K. A. og því myndi leikurinn verða
ójafn ef ég bættist þar við!! — Ekki skorti sjálfs-
álitið í þá daga — frekar en nú. —
Á þessum forsendum gekk ég í Kára, og sé ég
ekki eftir að ég gerði svo.
Það er margs að minnast frá þessum árum.
Félagarnir voru yfirleitt ágætir. Þeir mættu vel til
leikja, léku drengilega, létu sér mjög annt um hag
félagsins og voru óþreytandi að starfa að velgengni
þess — þótt gjaldkerinn kvartaði reyndar stundum
undan að árgjöldin greiddust seint. En þá voru
unglingar líka „blankari“ en nú gerist.
AFMÆLISBLAÐ KÁRA
3