Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Qupperneq 9
III. FLOKKUR 1929
Efsta röð frá vinstri: ÞórSur
GuSmundsson, GuSni Eyjólfss-,
ÞórSur Valdimarsson, Jón Ól-
afsson, Hákon Benediktsson.
MiSröS frá vinstri: Eiríkur Þor-
valdsson, GuSjón Gíslason, Þór-
arinn Einarsson.
Fremsta röS frá vinstri: Þorváld-
ur Einarsson, Magnús Gíslason,
Björgvin Jörgensen.
gefa hinu nýstofnaða félagi nafn; skyldu nú gerðar
uppástungur og skrifaði hver sína uppástungu í
sandinn. Þessar uppástungur komu fram: Elding,
Högni, Gunnar Hámundarson og Kári, og var
Káranafnið samþykkt. Formaður var þá kosiniv, og
hlaut kosningu Gústaf Ásbjörnsson og voru ekki
fleiri kosnir í stjórn að sinni. Fyrsti kappleikur
Kára var við drengjafélag á svipuðu reki, sem kall-
aði sig Stefaníu, og var kappleikurinn háður á
Langasandi stofnárið 1922 og fóru leikar svo, að
Kári setti 11 mörk gegn o og var þá nokkuð eftir af
leik, kallaði þá foringi Stefaniu: „Allir i vörn!“
Enda tókst þeim að verjast fleiri mörkum og end-
aði því fyrsti kappleikur Kára með sigri hans, 11 :o.
Segir ekki fleira af Stefaníu og voru ekki fleiri
kappleikir háðir við það félag.
Um haustið 1922 var endanlega gengið frá stofn-
un Kára, samþykkt lög fyrir félagið, og var Svein-
björn Oddsson hjálplegur hinum ungu félögum
við samningu þeirra og hefir ætíð síðan verið boð-
inn og búinn til aðstoðar ef til hans hefir verið
leitað. 1 fyrstu lögum félagsins, 2. gr., segir svo:
„Tilgangur félagsins er að efla íþróttastarf-
semi, fyrst og fremst knattspyrnu. Tilgangi
sínum hyggst félagið að ná með því að halda
uppi tíðum æfingum í knattspyrnu og gangast
fyrir knattspyrnumótum. Ennfremur eftir
föngum að gefa meðlimum sínum kost á æf-
ingum í öðrum þeim iþróttagreinum, sem
Iþróttasambands Islends hefir á stefnuskrá
sinni.“
Þá var kosin fyrsta reglulega stjórn félagsins, og
hlutu þessir kosningu:
Gústaf Ásbjörnsson, formaður.
Sigurjón Sigurðsson, ritari.
Guðmundur Bjarnason, gjaldkeri.
Horfnir eru af sjónarsviðinu 2 stofnendur félags-
ins, þeir Albínus Guðmundsson og Gústaf Ás-
björnsson, og er þeirra minnst sem duglegra for-
vígismanna og ágætra félaga, enda voru þeir báðir
formenn félagsins um skeið, eins og síðar verður
sagt. Hinir 8 stofnendurnir eru allir í Kára enn að
undanteknum tveim, sem fluttir eru héðan al-
farnir, og sumir mikið starfandi og í stjórn félags-
ins ennþá.
Næstu árin ber fátt markvert til tíðinda, það er
æft og það er flóð og fjara í félagslífinu, eins og
gengur og gerist, og eru þá þessir formenn:
1923: Gústaf Ásbjörnsson.
1924: Albinus Guðmundsson.
1925: Sigurjón Sigin-ðsson.
1926: Guðmundur Sveinbjörnsson.
1927—1932: Ölafur Jónsson, í 6 ár samfleitt.
AFMÆLIBLAÐ KÁRA
7