Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Síða 16
SIGURVEGARAR 1 MEIST -
ARAFLOKKI Á HAUSTMÓTI
>947
Aftari röS frá vinstri: JóSvík
Jónsson, ViÓar Daníelsson, Dag-
bjartur Hannesson, Einar Árna-
son, ÞórSur ÞórSarson, Jón
Jónsson^ Ölafur Vilhjálmsson,
HreiSar Sigurjónsson.
Fremri röS frá vinstri: Sveinn
Benediktsson, Þorkell Kristins-
son, Guðmundur Magnússon.
til fullrar eignar, II. fl. bikar þann, er félögin gáfu
1936, og haustbikar I. fl., er Kári gaf 1938, og hafði
þá unnið hann öll árin, sem hann var í umferð.
Vormótið stóð frá 4.—9. júní og fóru leikar sem
hér segir: I. fl. K. A. 3:2, II. fl. Kári 3:0, III. fl.
Kári 4:3, IV. fl. Kári 3:0 og handknattleik stúlkna,
Kári 8:3.
Nú er orðið algengara en óður var, að við fáum
félög úr Reykjavík til að keppa við okkur hér á
Akranesi og eru þá venjulega félögin hér sameinuð
á móti Reykjavíkur-félögunum. En að vonum geng-
ur illa að sigrast á svo sterkum félögum. Þetta er
okkur þó ei að síður mikil uppörfun og lærdómur.
Þetta ár keppa Akurnesingar við I. fl. í Val og tapa
fyrir honum, einnig keppa þeir við Hafnfirðinga
og verður það jafntefli. Þá keppa stúlkur héðan við
Islendsmeistara Ármanns í handknattleik og er það
í fyrsta sinn, sem þær fara til Reykjavikur til
keppni. íslandsmeistararnir sigruðu vitanlega, en
á eftir kepptu sömu aðilar i kassaboðhlaupi og báru
Akraness-stúlkurnar þar sigur af hólmi. Keppt var
aðeins í tveimur flokkum á haustmótinu á Akra-
nesi, að þessu sinni og bar Kári sigur af hólmi í
þeim báðum og vann eins og áður segir Haust-
bikar I. fl. til eignar, með 9 mörkum gegn 3. III.
flokk sigraði Kári þá einnig með 11:0. Jafnan hefir
okkur gengi ílla að fá hingað kennara, því að það er
vanalega á þeim tíma, sem allir hafa nóg að gera
SIGURVEGARAR
I II. FLOKKI 1947
Aftari röS frá vinstri: Ársœll
Jánsson, Kristján Sigurjónsson,
ÞórSur ÞórSarson, Dagbjartur
Hannesson, Kristján Ölafsson,
Leifur Ásgrimsson.
Fremri röS frá vinstri: Helgi
Danielsson, Þórhallur Björns-
son, Þorkell Kristinsson, Hreinn
Árnason, HreiSar Sigurjónsson.
14
AFMÆLISBLAÐ KÁRA