Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Blaðsíða 18
SIGURVEGARAR
I II. FLOKKI 1946
Aftasta röS frá vinstri: GuSm.
Elíasson, Emil Pálsson, ÞórSur
ÞórSarson, Dagbjartur Hannes-
son, HreiSar Sigurjónsson.
MiSröS frá vinstri: Karl Elías-
son, Ólafur Vilhjálmsson, LúS-
vík Jónsson.
Fremsta röS frá vinstri: GuSm.
Magnússon, Sólmundur Jónsson,
Kristján Ragnarsson.
háværar raddir um það að taka þátt í Islands-
móti I. flokks í knattspyrnu i fyrsta sinn. Skyldi
keppt undir nafni Iþróttaráðs Akraness og kapp
liðsmenn valdir úr báðum félögunum, K. A. og
Kára. Sótt var um þátttöku og léku Akurnesingar
við Knattspyrnufélag Reykjavikur fyrsta leik móts
ins þann 18. ágúst. Þetta var útsláttarkeppni og
skyldi sá, er tapaði tveim leikjum, vera vir leik.
Fyrsta leikinn vann K. R. með 4:3. öðrum leikn-
um töpuðum við fyrir Fram með 2:1. Svo fór um
sjóferð þá; var varla von á öðru, en ekki skal gefast
upp, heldur æfa betur og sækja í sig meiri þrótt og
getu fyrir næsta fslandsmót.
Haustmótið á Akranesi fór svo, að K. A. vann
alla aldursflokkana þrjá, sem keppt var í. 1 I. fl.
var keppt um nýjan grip, sem Þórður Ásmundsson
h. f. hafði gefið. Þann leik vann K. A. með 3:2, en
í hinum flokkunum var ekki keppt um gripi.
Á aðalfundi félagsins 1944 baðst formaðurinn,
Óðinn S. Geirdal, eindregið undan endurkosn-
ingu, en hann hafði þá verið óslitið í 9 ár í
stjórn félagsins, þar af 7 ár formaður. Hlaut þá
kosningu i formannssess Guðmundur Sveinbjörns-
son, og var hann formaður næstu 3 árin til 1946,
en þá er kjörinn núverandi formaður félagsins,
Egill Sigurðsson.
Axel Andrésson, iþróttakennari, er hjá okkur
þetta vor og kemur enn miklu fjöri í knattspyrn-
una og eru nú vel sóttar æfingar. Vormótið fór
svo í knattspyrnunni, að K. A. vann I. flokk og
sæmdarheitið: Bezta knattspyrnufélag Akraness,
en Kári vann II. og III. flokk.
Þetta sumar er ýmsum knattspyrnuflokkum úr
Reykjavík boðið, s. s. Reykjavíkurmeisturum II. fl.
í Val, sem Akranes vinmrr 3:0, III. fl. í K. R., sem
Akranes vinnur 2:0, en tapar aftur fyrir I. fl. í sama
félagi með 3:2, seinna jafntefli við sama flokk,
einnig sigrar Akranes I. fl. Vals með 1:0. Þetta er
glæsilegur árangur og gefur góðar vonir um Is-
landsmótið í I. fl., sem er að hefjast og Akranesing-
ar eru þátttakendur í að öðru sinni.
Á Islandsmótinu fóru leikar þannig, að Akurnes-
ingar sigruðu Víking með 2:0. Þetta var þó nokkur
framför að komast í úrslit, enda má segja, að að-
staða Reykjavíkurfélaganna væri nokkuð betri,
því að þeir gátu alltaf tekið nokkra meistaraflokks-
menn inn í sín lið, sem aðkomufélög gátu alls
ekki, og mældist það illa fyrir. Þá fór einnig
flokkur iþróttafólks frá Iþróttaráði Akraness
til keppni á íþróttamót Borgfirðinga, og unnu
Akurnesingar þar bæði drengjamótið og fullorð-
insmótið. Þjálfari iþróttamanna hér var Helgi
Júliusson. Þar hljóp Hallbera Leósdóttir úr Kára
80 metra á Íslandstíma. Hún fór ásamt stöllum
16
AFMÆLISBLAÐ KÁRA