Afmælisblað Kára: 1922-1947

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Qupperneq 19

Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Qupperneq 19
sínum tveim á Septembermótið í Reykjavík og varð þá önnur í 80 metra hlaupi, á 11,4 sek. en þar var gamla metið. Þjálfari íþróttamanna hér var Helgi Júlíusson. Haustmótið i knattspyrnu á Akranesi fór svo, að K. A. vann Haustbikar I. fl. 3:2, II. fl. vann Kári, en í III. fl. varð jafntefli. Þetta ár má segja, að hafi verið hagstætt fyrir Kára, þótt hann tapaði meistaraflokkstitli Akraness, en árangur varð góður út á við, þar sem félögin komu fram sameinuð. Árið 1945 er ríkjandi mjög mikill áhugi hjá iþróttaæskunni hér, og er þetta mikið sigurár fyrir Kára. Sigrar hann allar bikarkeppnir á Akranesi og hlýtur sæmdarheitið: „Bezta knattspyrnufélag Akraness." Frjálsíþróttamót fór þá fram milli K. A. og Kára og sigraði Kári glæsilega, með 76 stigum. K. A. hlaut 49. Akurnesingar tóku þátt í Islandsmótum í þrem aldursflokkum í knattspyrnu. I I. fl. var útsláttar- keppni og var hvert félag úr, eftir einn tapaðan leik. Akurnesingar sigruðu Val, en töpuðu fyrir K. R. I II. fl. sigruðu Akurnesingar Fram, en töp- uðu úrslitaleik fyrir K. R.. I III. fl. sigruðu Akur- nesingar Vestmannaeyinga og Val, en töpuðu úr- slitaleik fyrir Fram, og vorum við Akurnesingar mjög sæmilega ánægðir með þessa frammistöðu. Á Septembermótinu í Reykjavík sigraði Hallbera Leósdóttir úr Kára í 30 metra hlaupi á 11,9 sek. Þetta ár var Magnús Kristjánsson þjálfari félag- anna hér og tókst vel. Árið 1946 er mikið framfara ár í íþróttunum hér, enda höfðum við þá skapað okkur miklu betri skilyrði þar sem hið nýja íþróttahús var komið í fulla notkun, og kem ég að þvi síðar. Þjálfari hjá félögunum báðum er mi Hafsteinn Guðmundsson, og er nú í fyrsta sinn lögð allmikil áherzla á hand- knattleik pilta. Fyrsta handknattleiksmót innan- húss hér var um vorið og kepptu K. A. og Kári i þrem aldursflokkum pilta og einum kvennaflokki. Kári sigraði alla flokkana að undanskildum II. fl. pilta. Nú var markið sett hátt og var sótt um þátttöku í Islandsmóti í knattspyrnu í meistaraflokki, en það getur verið gott að stefna hátt. Leikar fóru svo, að íþróttabandalag Akraness, en undir því nafni kepptu Akurnesingar, töpuðu fyrir Fram, K. R. og Val, en gerðu jafntefli við Akureyringa og Víking. I tilefni af því að þetta var í fyrsta sinn, er Akranes og Akureyri tóku þátt í Meistaraflokks- móti Islands í knattspyrnu, bauð bæjarstjórn Reykjavíkur keppendum þessara félaga og nokkr- um gestum í skemmtiferð til Þingvalla og víðar. Forseti I. S. I., Ben. B. Waage, var með í förinni og var hrókur alls fagnaðar, eins og hans var von og vísa. Snæddur var hádegisverður í Valhöll, og kunna allir þátttakendur bæjarstjórn Reykjavíkur hinar beztu þakkir fyrir þetta ágæta boð. Bæjarstjórn Akranesskaupstaðar hefir heitið í sama tilefni að gefa veglegan bikar til keppni á Akranesi í knattspyrnu, og var það vel þegin við- urkenning af hálfu stjórnarvalda bæjarins. Vormót Akraness í knattspyrnu fór svo, að K. A. varð Akranesmeistari að þessu sinni, en Kári vann III. FLOKKUR. KAPPLIÐ Á HAUSTMÓTI 1947 Aftasta röS frá vinstri: Hreinn Árnason, Helgi Daníelss., Helgi Björgvinsson, Kristján Sigur- jónsson, Jón ÞórSarson. MiSröS frá vinstri: Janus Sigur- björnsson, Leifur Ásgrímsson, örn Steinþórsson. Fremsta röS frá vinstri: Þórh. Bjarnason, Björgvin Hjaltason, Björn Björnsson. AFMÆLISBLAÐ KÁRA 17

x

Afmælisblað Kára: 1922-1947

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Kára: 1922-1947
https://timarit.is/publication/1046

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.