Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Síða 23

Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Síða 23
cl Vænt þótti mér um það, er formaður Kára, Egill Sigurðsson, hringdi til mín og bað mig um grein i afmælisrit félagsins. Ekki var gleði min af þessum sökum þó sprottin af fordeild einni saman, heldur hinu, að fá enn einu sinni tækifæri til að kveðja mér hljóðs meðal iþróttamanna á Akranesi, þótt ekki sé það með sama hætti og áður. Síðan ég flutti til Stykkishólms, hefur það marg- oft komið fyrir, að iþróttamálin á Akranesi hafa skotið upp kollinum í huga minum. Þessar hug- renningar, af einum toga spunnar, hafa aðallega verið tengdar ljúfum minningum liðins tima, en þó öðrum þræði nokkurs konar reikningsskil eða uppgjör manns við sjálfan sig og þau málefni, er hann starfaði eitt sinn að. Margur verður hygginn eftir á, en svo er það víst ekki með mig; ég á erfitt með að láta mér vitin að varnaði verða. Og þrátt fyrir of miklar annir, mistök ,og vonbrigði, er stundum áttu sér stað með- an ég starfaði að íþróttamálum á Akranesi, gæti ég vel hugsað mér að lifa þennan þátt ævi minnar upp aftur, ef ég mætti óska mér, þar eð áhyggj- urnar af því, sem miður fór, voru svo hverfandi litlar í samanburði við gleðina og ánægjuna, sem starfið í heild veitti. Kjomi mín við marga góða drengi í K. A. og Kára og náið samstarf við forystumenn þessara tveggja félaga fannst mér ávallt skemmilegasti þáttur starfsins. Þótt ekki væri það sjaldgæft, að upp risi nokkur ágreiningur um leiðir og sjónarmið, olli það þó aldrei vinslitmn né óheilindum; það fannst mér fagurt vitni um svo góðan félagsþroska, að til fyrir- myndar var. Ég átti því láni að fagna, meðan ég var formaður 1. R. Ak. og seinna I. A., að samstarf félaganna var með ágætxun. Og þótt nokkuð færi að brydda á óánægju hjá sumum með þetta samstarf síðasta árið, sem ég starfaði, kom það lítt að sök. En það er trú mín og vissa, að það var fyrst og fremst samstarfið, sem hleypti grósku í íþrótta- lífið á Akranesi undanfarin ár. Og enn er það sannfæring mín, að samstarf og samheldni félag- anna er hið eina, sem dugar til eflingar íþrótta- lífinu, hið eina, sem vænta má góðs af til ávinnings og árangurs. Bágt á ég með að trúa öðru en því, að hver hygginn og góður meðlimur í „K.A.“ og „Kára“ sjái og skilji fyllilega, að án samstarfsins yrði iþróttalíf bæjarins í molum og harla máttvana. Hinu má þó ekki gleyma, að jafnvel viðleitnin til samstarfs getur orðið tvíeggjað vopn, ef ekki fylgir hugur máli. — Um samstarf er ekki að ræða nema það rífi menn upp úr værð og lognmollu áhuga- leysins og hvetji þá til átaka og stefnufestu við framkvæmd sameiginlegra vandamála. „Kári stendur nú á merkilegum tímamótum. Innilega óska ég honum gæfu og gengis um alla framtíð. Vonandi mun hann enn sem hingað til ásamt „K. A.“ marka spor i menningarsögu Akra- ness. Meðlimum beggja þessara félaga þakka ég ljúfar endurminningar, sem þeir hafa gefið mér. Það er ósk mín og von, að „K. A.“ og „Kári“ beri ætíð gæfu til að snúa bökum saman og berjast sameiginlegri baráttu við að hrinda í framkvæmd góðum málefnum og að þeim gleymist aldrei að sundrung er afl, sem eyðir, en samheldnin og stefnufestan er leiðin til sigurs. Þorgeir Ibsen AFMÆLISBLAÐ KÁRA 21

x

Afmælisblað Kára: 1922-1947

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Kára: 1922-1947
https://timarit.is/publication/1046

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.