Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Qupperneq 26
Stefán Bjarnason form. í. A.:
Skólaleikfimi hefur um margra ára skeið verið
föst námsgrein við alla barnaskóla þéttbviisins.
Er það vel, þar sem vitað er og viðurkennt, að
menningargildi leikfimi er meira en flestra arm-
ara námsgreina. f leikfimistima læra börnin að
ganga og hlaupa í takt ásamt ýmsum æfingum,
sem hæfa aldri þeirra. Þau komast þar í kynni við
aga, og það sem mest er um vert, aginn grundvall-
ast ekki á ótta barnsins við kennarann, heldur á
gleði við eðlilega áreynslu í skemmtilegum leik.
Æfingar eru útbúnar þannig, að þær laga smátt og
smátt ýmsa líkamsgalla barnsins og móta vöxtinn.
Eftir ferminguna ættu leiðir barnanna að liggja í
íþróttafélög á viðkomandi stað, þar sem þau gerðusí
þátttakendur í raunhæfu félagsstarfi. Kemur þá i
ljós, hvort leikfimikennara á hverjum stað hefur tek-
izt að skjóta rótum leikfimiáhugans í hug óg hjarta
barnsins. Ef svo er, þá heldur það áfram að þjálfa
líkama sinn og skapgerð við æfingar á göfugri íþrótt.
Sýninga- eða úrvalsflokkaleikfimi er sú grein,
sem mest ber á innan iþróttafélaga. Æfingar ei'u
þar samsettar og meira krefjandi, en um leið al-
hliða þjálfandi. Þar er lögð áherzla á samstilltar,
fagrar hreyfingar. Hverjum emstakling kennt að
ganga og hlaupa tígulega og lögð áherzla á frjáls-
lega framgöngu.
Áhaldaæfingar, sem er annar aðal-þáttur við
sýningaleikfimi, þroska kjark og áræði og ýmsar
aðrar dyggðir, sem dáðar hafa veríð að fornu og
nýju með þjóð vorri. Þrátt fyrir það að leikfimi er
stefnt að tveimur göfugum viðfangsefnum: Annars
vegar inn á við að þroska persónuleika, hins vegar
út á við til líkamlegs atgervis, skortir mjög á, að
þátttakendafjöldi sé samboðinn því göfuga tak-
marki, sem stefnt er að.
Sannleikurinn er sá, að íþróttafélög víðs vegar
um landið — Reykjavík ekki undanskilin -— verða
að sætta sig við að æfa fámenna flokka, þar eð al-
mennur áhugi virðist ekki vera fyrir hendi. Ég
hef hugleitt mikið, eins og sjálfsagt margir áhuga-
menn, hver sé hin raunverplega orsök áhugaleysis
unglinga á úrvalsflokkaleikfimi. Hef ég komizt að
Fyrsti fimleikaflokkur /. A.,
eftir stofnun IþróttaráSs
Akraness. Þjálfari Stefán
Bjarnason.
24
AFMÆLISBLAÐ KÁRA