Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Síða 29

Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Síða 29
Langisandur, ba'Sströnd Akurnes- inga, fyrsti œfingavöllur Kára. að glæða og auka fegurðarsmekk hennar fyrir því, sem gott er, og auka hagsýni hennar, svo að hún komi auga á það, sem gagnlegt er. Og af framan- sögðu vildi ég á þessum tímamótum Kára telja upp verkefni, sem honum ber skylda til að leysa í fram- tíðinni. Þessi verkefni má segja að séu ótæmandi; mörg þeirra kem ég eflaust ekki auga á, en á nokkur vil ég þó benda, og öll finnst mér þau þess eðlis, að félaginu beri skylda til að leggja þar hönd á plóginn. Eru þau öll að mínum dómi á stefnuskrá íþróttafélagsskaparins og í anda þess, sem að fram- an getur. Einn mesti bölvaldur alls mannkyns er áfengið. Mikill fjöldi manna er ofurseldur þessari ástríðu, og allir, sem um þetta mál tala, eru sammála um skaðsemi þess. Þetta mál þurfa öll íþróttafélög að taka föstum tökum, en því er nú ver að á því vill verða misbrestur. Eins og tíðarandinn er núna, finnst mér aðeins ei i leið fær í þessu máli innan íþróttafélags, en það er sú leið, sem þekking og fræðsla veitir. Ég tók það fram hér að framan, að íþróttafélögin hér á Akranesi hefðu tekið upp sam- eiginlega skemmtifundastarfsemi, en á síðastliðnu ári hefur hún ekki verið sem skyldi, af ýmsum or- sökum, sem ég greini ekki hér frá. Þessi starfsemi þarf að vera ófrávíkjanlegur liður í starfsemi fé- laganna, og þá fyrst og fremst vegna þess skipulags, sem haft hefur verið á þessum fundum. Skipulagið byggist á því að kenna fólki að skemmta sér án eiturnautna. Þar má enginn reykja eða hafa vín um hönd í skemmtisalnum. Þar er gerð tilraun til þess að allir taki þrátt í dansi og öðrum skemmti- atriðum, sem fram fara, og þar er rætt um félags- mál, haldnar tölur um ýmislegt efni. Unga fólkið hefur komið ánægðara út af þessum fundum en af öðrum skemmtunum. Fyrir unga fólkið er dansinn eflaust veigamesta atriðið, ég er viss um það, að kynnu fleiri að dansa, væru þessir fundir enn betur sóttir, og ég er þeirra skoðunar, að danskennsla ætti að vera fastur liður i kennslustarfi efstu bekkja barnaskólans, þvi að þá þyrftu unglingarnir ekki að leita til „Bakkusar“ til þess að létta undir með sér við að læra að dansa. Og þeir, sem ekki kunna að dansa mundu ekki hafa „Bakkus" sér til afþrey- ingar. Þetta er atriði, sem alla varðar, og ég veit, að hver skilur, er á það er bent. Þessari starfsemi þarf að gefa góðan gaum, og foreldrar eiga að hvetja börn sín til að sækja þessa fundi, því að með þeim skapast almenningsafl gegn hvers konar óreglu og það er undirstaða undir því, að skapazt geti gott ástand í bindindismálum. Við, sem byggjum þennan bæ, mumnn öll vera sammála um það, að nauðsyn beri til að fegra og prýða bæinn. Fallegt umhverfi er meira fyrir hvern einstakling en það, sem augað sér. f fallegu umhverfi finnst flestum sem opnist innsýn í annað en það hversdaglega, menn hafa það á tilfinning- unni, að þar opnast nýr heimur, sem krefst annarar framkomu og betri umgengni. Þetta skapast af fegurðartilfinningu hvers manns. Því er það veiga- mikið atriði að skapa fegurðartilfinningu hjá hverj- um ungling. Ég veit, að hver sem hugsar um þetta, er á þeirri skoðun, að hér á Akranesi þurfi ýmissa úrbóta við, og einkennilegur væri sá maður gerður, sem ekki sæi, hversu mjög hér er ábótavant um allt ytra útlit; hér sjást of fáir fallegir blettir kring- AFMÆLISBLAÐ KÁRA 2 7

x

Afmælisblað Kára: 1922-1947

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Kára: 1922-1947
https://timarit.is/publication/1046

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.