Árbók Reykjavíkurbæjar - jan. 1946, Blaðsíða 161
147
Athugasemdir um stofnkostnað, afskriftir og rekstur fyrirtækja
Keykjavíkurbæjar, bls. 146.
1 bæjarreikn. er stoi'nkostnaSur og afskriftir
af stofnkostnaði sýndar' frá byrjun fyrir Vatns-
og Hitaveitu (frá Laugunum), Gasveitu og Höfn,
ásamt viðbótum og afskriftum á árinu. Hjá Raf-
magnsveitu og Sogsveitu er hins vegar aðeins
sýndur bókfærður stofnkostnaður og afskriftir á
árinu. Hér í töflunni er stofnkostnaður og af-
skriftir tilfærðar fyrir öll fyrirtækin frá byrjun,
svo og viðbætur og afskriftir árlega.
Til stofnkostnaðar eru talin mannvirki (og
hús), lóðir og lönd, vatnsréttindi, áhöld, vélar og
bifreiðir. Bókfærður stofnkostnaður fyrirtækj-
anna hér i þessari töflu er því = „fasteignir og
áhöld" í töflu bls. 142—143, með eftirfarandi und-
antekningum: Hjá Vatns- og Hitaveitu, húsgögn
og skrifstofuáhöld (liður I, 5), hjá Gasveitu áhöld
(liður I, 2) og hjá Rafmagnsveitu E.-Sog (vatns-
réttindi) og jörðin Úlfljótsvatn (liður I, 2. b).
Þótti ekki rétt að telja þessar eignir Rafmagns-
veitu hér til stofnkostnaðar, þar sem þær eru
rekstri hennar óviðkomandi.
Um stofnkostnaðinn að öðru leyti skal tekið
fram eftirfarandí:
Inn á stofnkostnað Vatns- og Hitaveitu hér hef-
ir verið tekinn stofnkostnaður Reykjaveitunnar,
eins og kostnaöur við framkvæmdir við hana hefir
verið færður árlega í bæjarreikn. Árlegar viðbæt-
ur vegna Reykjaveitunnar hafa verið, sem hér
segir:
1935 .............. kr. 152107,50
1936 ................ — 47396,28
1939 .................— 7589,34
1940 .................— 23808,76
1941 .................— 134305,96
1942 .................— 7248183,95
1943 — 14349139,14
1944 ................ — 7045641,33
Samtals kr. 29008172,26
1 þessum stofnkostnaði eru innifalin hitarétt-
indi (kostnaðurinn 1935), borvél (kostnaðurinn
1936), íbúðarhús í smíðum á Reykjum (kr.
179321,20 í ársl. 1944), bifreiðir, vélar og áhöld
(kr. 114498,78 í ársl. 1944). — Þess má geta, að
endanlegar tölur um áfallinn stofnkostnað Reykja-
veitunnar í árslok 1944 liggja enn ekki fyrir.
Hlutfallstölur í töflu Vatns- og Hitaveitu eru
reiknaðar þannig: Hlutfallstölur stofnkostnaðar-
aukningar árlega eru teknar beint af stofnkostnaði
í ársbyrjun, eins og hann er sýndur í töflunni.
Hlutfallstölur afskrifta hvers árs eru hins vegar
eingöngu miðaðar við stofnkostnað Vatnsveitunnar
og hitaveitunnar frá Laugunum, að viðbættum
stofnkostnaði borvélar, frá og með árinu 1937,
þvi að afskriftir af henni hafa verið innifaldar i
afskriftum Vatns- og Hitaveitu (frá Laugimum)
allan þann tíma. Afskriftir af stofnkostnaði
Reykjaveitunnar hafa ekki verið færðar fram til
ársloka 1944, að undantekinni borvél. Hlutfalls-
tölur bókfærðs stofnkostnaðar i árslok eru teknar
af heildarstofnkostnaði í árslok, eða eins og hann
er færður í töflunni í ársbyrjun næsta árs. Hlut-
fallstölur heildartekna á árinu eru miðaðar við
samsvarandi stofnkostnað, þ. e. við stofnkostnað
Vatns- og Hitaveitu (frá Laugunum) fram að
árinu 1944, en 1944 við heildarstofnkostnaðinn,
eins og hann er færður í töflunni, enda starfaði
Reykjaveitan allt það ár. Hlutfallstölur reksturs-
árangurs eru að sjálfsögðu reiknaðar af heildar-
tekjum sama árs.
1 sambandi við stofnkostnað Rafmagnsveitu
má geta þess, að háspennulínan til Hafnarfjarðar
er hér talin með í stofnkostnaðinum. Stofnkostn-
aður við hana kemur inn á árinu 1938 með kr.
74940,24, en var í árslok 1944 kominn upp í kr.
309935,65. — Stofnkostnaður hennar hefir ekki
verið afskrifaður enn, og er hann þvi dreginn
frá heildarstofnkostnaði við útreikning hlutfalls-
tölu afskrifta árlega. Við útreikning hlutfallstölu
heildartekna er Hafnarfjarðarlinan hins vegar
talin með í stofnkostnaðinum, enda hefur Raf-
magnsveitan haft tekjur af henni frá því í nóv.
1938.
1 stofnkostnaði Sogsveitu hefir hér verið talinn
„verðjöfnunarkostnaður" samkv. bæjarreilcn., sem
kemur inn á árinu 1939, vegna sænska skulda-
bréfalánsins frá 1935, við gengislækkun ísl. kr.
1939. Þessum kostnaði var á árinu 1944 dreift á
hina ýmsu stofnkostnaðarliði veitunnar, og hverf-
ur hann því úr reikn. á því ári, sbr. eignayfirl.
Sogsveitu bls. 143. Raunveruleg aukning stofn-
kostnaðar Sogsveitu, vegna framkvæmda við
hana, hefir verið árlega sem hér segir (aurum
sleppt):
1935 ................. kr. 2812885
1936 ................... — 2114687
1937 .................. — 1953364
1938 ................. — 145348
1939 .................. — 32350
1940 ....................— 5986
1941 ....................— 19446
1942 ................. — 144644
1943 ...........*......— 5033914
1944 ................... — 1490828
Samtals kr. 13753452
Mismunurinn á árlegri aukningu stofnkostnaðar
hér og í töflunni stafar af breytingum á „verð-
jöfnunarkostnaðinum", sbr. eignayfirlit.
Við stofnkostnað Hal'nar er það að athuga, að