Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Side 12
82
HELGAFELL
Gunnlaugur Scheving í vinnustofu sinni
í heiminum, já og öllum fjáranum, að menn
fá aldrei svalað þorsta sínum, gefa sér aldrei
tóm til að setjast niður og vera einir með
kyrrð sinni. Vandinn er sá að kunna sjálf-
ur að fvlla út þessa kyrrð sína; láta ekki
alla aðra gera það fyrir sig. Þeir, sem eru á
sífelldum þönum eftir einhverju, sem eng-
inn veit hvað er, minna mig einna lielzt á
mann, sem er að reykja sígarettu og finnst
hann ekki vnnta ncitt nema tóbak. Lista-
maðurinn á að sækja andann í verk sitt, inn
í sjálfan sig og einveru sína. Inn i tómleik-
ann. Listin er einmitt í því fólgin að fylla
út þennan tómleika. Svo má leita á náðir
annarra, þegar maður er korninn í strand.
En þú varst að spyrja urn hvað væri list.
Mér hefur einhvern tíma dottið í hug, að allt
það væri list, sem vel væri gert. Allt það
sem leitaðist við að fylla einveruna, tóm-
leikann og kyrrðina með lífi og fegurð. Ef