Alþýðuhelgin - 13.08.1949, Blaðsíða 7

Alþýðuhelgin - 13.08.1949, Blaðsíða 7
ALÞÝÐUIíELGIN 215 sem er mikið notað til þess að eyða of miklum sýrum. * Algengt kínverskt berklalyf er búið til á þennan hátt: Maginn úr nýslátruðum grís er fylltur með eftirfarandi: mold, sem tekin er við norðurvegg musteris, grasvisk, sem vaxið hefur í skugga, lifandi smá-skjaldböku, lifandi pöddn, afklipptum nöglum allra fingra, nema litla fingurs, nokkrum hárum, ösku brenndra goðamynda og seyði af „kraftrótum11. Sjóðist í nokkrar klukkustundir. Dr. G. C. Basil, fyrrverandi for- stöðumaður sjúkrahúss eins í Chungkong, telur, að efnin, sem eru uppistaðan í þessu lyfi, geti áreiðan- lega reynzt vel gegn berklurn. Hann bendir á, að úr moldinni hafi fengizt málmsölt, fjörefni úr grasinu, eggja- hvítuefrú úr skjaldbökunni, kalk úr nöglunum og trékol úr öskunni. Kraftræturnar drógu úr sársauka. Læknar nútímans hafa komizt að raun um, að seyði af svínsmaga er gott lyf við blóðleysi. Dr. Basil seg- ir enn fremur, að soðin asnahúð, sem oft er notuð við blóðsjúkdóm- Um, hafi inni að halda þýðingarmik- il, styrkjandi efni. *!» Dr. Frey, sem var í hjúkrunarliði kínverska hersins á stríðsárunum, segir svo í skýrslu til kínversku bjálparnefndarinnar í New York: „Með rannsóknum og tilraununum höfum við sannfærzt um, að mikið af kínversku lyfjunum eru verjanleg vísindalega, enda þótt enginn kín- Verskur læknir hafi hugmynd um, hvers vegna þau eru það.“ Ham Din er þessu sammála. „Öldum saman hafa Kínverjar Uotað eins konar myglu, er þeir uefna „Quoon“, til þess að draga úr sársauka við lekanda og syfilis,“ segir hann. ,,En það leið langur tínii, þar til penisillinið var upp- götvað." Læknar undruðust líka mjög, hvers vegna Kínverjar nota sels- hreifa. Nú hefur komið í ljós, að sundfit hreifanna er auðug að fjör- efnum. í þúsundir ára hafa Kínverjar vitað, hvað læknaði sjúkdóma. Nú skýra hvítu læknarnir okkur frá Því, hvers vegna lyf okkar eru svo áhrifamikil.“ Þýtt. Á þeim tímum, þegar vegur Jóús biskups Arasonar var sem jnestur, og hann þóttist hafa alla landsmenn á valdi sínu, nema „hálfan annan kotungsson", var það annað en gam- an að rísa öndveröur gegn honum eða áreita hann í neirsu. Þeir menn, sem tengdir voru vináttu- eða skyldleikaböndum við höfuðand- stæðinga biskups, svo sem Martein Einarsson eða Daða í Snóksdal, máttu gá að sér, ef þeir vildu halda frelsi og fjöri. Um þetta leyti bjó Brandur Ein- arsson á Snorrastöðum í Snæfells- nessýslu. Hann var röskleikamaður mikill 03 xak stórt bú. á jörð sinni. Ekld var hann áleitinn við nágrann- ana, en sökum vináttu og frændsemi við Daða í Snóksdal hafði hann veitt ho.ium að málum og verið fylgjend- um Jóns biskups óþægur ljár í þúfu. Fyrir þessar sakir báru biskups- menn til hans þungan hug og voru ákveðnir í að veita honum ráðningu, þegar færi gæfist. Einhverju sinni var það á yfir- reiðum biskups, að leið hans lá um Snæfellsnes, ekki langt frá Snorra- stöðum. Urðu þá ýmsir til að minna á það, að þar sæti fjandmaður bisk- ups, sem gjarnan mætti hegna fyrir mótþróa sinn og misgerðir. Var það brátt ákveðið að ríða heim á staðinn og finna Brand í fjöru, svo að hann ræki minni til þess, hverjir komið hefðu. Brandur bóndi var verkmaður mikill og áhugsasamur um alla bú- sýslu. Dag þann, sem biskup og menn hans riðu um Snæfellsnes, vann hann að því, ásamt vinnu- mönnum sínum, að byggja útihús nokkurt. Hlóðu þeir veggi þess úr grjóti og torfi. Þegar þeir voru að þessu starfi, sjá þeir allt í einu stór- an hóp manna ríða heim að bænum. Þekkir Brandur brátt, að þar er Jón biskup Arason á ferð, og væntir sér lítils góðs af komu hans. Maður sá, sem forustuna hafði fyrir veggjahleðslunni, var snarráð- ur mjög og hugkvæmur. Kvað hann það eitt til ráða fyrir Brand, ef hann vildi losna við hirtingu biskups- sveina, að skipta klæðum við strák þann, sem flutti moldai-hnausana úr flaginu, og taka við verki hans Gerði Brandur þetta, þótt nauougur væri, því hann átti ekki um marga kosti að velja, úr því sem komið var. Skömmu síðar komu biskupsmenn og létu ófriðlega. Spurðu þeir eftir > Brandi, töldu hann maklegan þess, að hljóta hrakninga nokkra, og höfðu mjög í heitingum. Var þeim sagt að hann væri ekki heima, en þeir tortryggðu það. Létu þeir illa við konu Brands, og hótuðu hinu versta, ef hún segði ekki til manns síns. Fór hún grátandi á fund bisk- ups og bað hann með mörgum fögr- um orðúm að þyrma börnum sínum og heimili. Biskup bað hana þá að segja hið sanna um það, hvar Brand- ur væri, en hún lézt ekkert vita um það. Hélt biskup þá með sveinum sínum þangað, sem veggjasmiðurinn var. Það sáu þeir, að hann hamaðist mjög við hleðsluna og kallaði fast að hjálparmanni sínum, sem torfið flutti, og skipaði honum að hraða sér með hnausana. Hinn fór sér rólega að öllu, unz hleðslumaður hljóp að honum, illilegur mjög, og sagði að sá letingi svikist alltaf um verk sín, þegar húsbóndi hans væri fjarri staddur. Síðan þreif hann vettling- ana af höndum sér, blauta og mold- uga, og sló þeim af miklu afli á báð- ar kinnar félaga síns, svo að hann varð allur svartur í framan. Sá, sem fyrir barsmíðinni varð, tók þessu öllu með mestu stillingu og sagði ekki orð, en biskupsmenn hlógu dátt. Kom þeim ekki til hugar, að manngarmur sá, sem hlaut svo háðulega meðferð, væri Brandur bóndi, riðu þeir því sína leið. Brand- ur var hleðslumanni þakklátur fyr- ir ráðkænsku hans og þóttist vel hafa sloppið. En eftir þetta var hann jafnan kallaður „Moldar-Brandur“. ---------------♦---------- Ólafur Magnússon frá Þóru- stöðum í Bitru kvað: Á SLÆTTI. Hér er orðið hart að slá, hrífu er bezt að taka, nú er komin nokkur ljá, nú má fara að raka.

x

Alþýðuhelgin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.