Alþýðuhelgin - 13.08.1949, Blaðsíða 15

Alþýðuhelgin - 13.08.1949, Blaðsíða 15
ALÞÝÐUHELGIN 223 HUGURINN KEIKAR. Magnús Jónsson prúði var skáld gott á sinni tíð, svo sem kunnugt er. Hann orti m. a. Pontusrímur Þar er þessi vísa í mansöng sjöttu rímu: Enginn drengja yrkir par, sem er með þanka sárum. Hugurinn reikar hér og þar sem hafskip eitt á bárum. ÞÓRÐUR OG SMALI. Einhverju sinni mislíkaði Þórði á Strjúgi við smalamann sinn og kvað: Fáðu skömm fyrir fíflslegt hjal, fúll og leiður glanni. Héðan af aldrei happ þér skal hljótast af neinum manni. En strákur var skáldmæltur líka, og lét ekki standa á svari: Rækallinn, bið ég, reisi upp tögl, rétt sem nú ég greini. Hafi hann af þér hár og nögl, hold og skinn með beini. margrétarvísa. Magnús lögmaður Jónsson á Ingj- aldshóli átti dóttur þá, er Margrét hét. Hún stóð til að erfa Mávahlíð og Brimilsvelli, og þótti kvenkostur góður. Um hana kvað Gísli Jónsson: Held ég bezta hlutskipti hverjum það til félli, mega cignast Margréti, Mávahlíð og Velli. GAMANKVÆÐI IIALLDÓRS GUNNLAUGSSONAIl. Þegar Halldór Gunnlaugsson, síð- ast héraðslæknir í Vestmannaeyjum, var læknir Rangæinga (1905-—1906), var einhverju sinni haldin skugga- myndasýning í Garðsauka. Um sýn- ingu þessa orti Halldór brag einn,' næsta skoplegan, og eru þetta tvær vísur úr bragnum: Inngangurinn ekki þótti alveg gefinn. Syndum hlaðinn selur maura seldi hann á 15 aura. Mynd af Goethe meðal annars maðurinn sýndi. Þarfa skýring þá til bjó hann: „Þessi maður heitir Jóhann.“ Þeir, sem kynnu að eiga brag þennan í fórum sínum, eru vinsam- legast beðnir að senda „Alþýðu- helginni“ afrit af honum. Eru ekki til fleiri óprentuð gamankvæði eftir Halldór lækni Gunnlaugsson? FRÁ þórði strokumanni. Þennan tíma (um 1803) sat á Ak- ureyri verzlunarstjóri Þórður Helga- son, Húnvetningur að ætt. Hafði hann ungur verið tekinn af volæði í móðuharðindunum af Stiesen kaup- manni á Skagaströnd. Ólst hann þar síðan upp um nckkur ár og hneigðist hugur hans til verzlunar. Sigldi hann síðan og komst í kynningu við Frisch jústisráð í Kaupmannahöfn. Gerði hann út skip með vörur, er hann fékk honum til íslandsferðar, skyldi hann reka þar verzlun fyrir hann. Líkaði Frisch í fyi’stu vel við hann og lét hann íæka fasta verzlun á Akureyri og byggja þar vöruhús. Var Þói'ður framkvæmdamaður mikill og brauzt í möi'gu, hafði hann og sjálfur skip í förum, brotnaði það við Hrísey aldamótaárið. Gekk þá Stefán Þórarinsson amtmaður sjálf- krafa í borgun fyrir hann um þúsund ríkisdali, útvegaði honum síðan lán hjá Jóni sýslumanni Jakobssyni 400 í'd. og hjá Vigfúsi sýslumanni Schev- ing 200 rd. Svo fckk hann og bændur nokkra auðuga að ganga í sömu boi'gun. Gei'ðu bæði sýslunxenn og bændur þetta flestir allnauðugir. Gazt þeim illa að yfii'læti Þói'ðar og þótti hann leggja allt of mikið í kostnað. Komst og orð á að hann mundi eyða eigum húsbónda síns meir en góðu hófi gegndi, en með því að Þórður var bæði skarpvitur og skjótráður, var sagt, að hann um hríð gæti dulið hann þess með því að grípa til ýmissa óleyfilegra með- ala í reikningsfærslu þeirri, er hann lagði fyrir hann. Kom þó svo að lyktum, að Frisch sendi umboðs- mann sinn með verzlunarskipi út hingað til að krefja Þórð reikninga og ganga hart að honum ef hann stæði eigi í skilum. En sama kvöld og skipið kom, féklc Þórður sér hest á laun og ötulan fylgdarmann og hélt af stað um nóttina, þá er allir voru háttaðir, á leið suður til Reykjavíkur. Þá er hann kom þang- að, var þar skip fyrir að öllu ferð- búið til útlanda, og mátti eigi tæp- ara standa að hann næði í það. Þó tókst honum það og fór hann þegar fram á það alfarinn. Undir eins um morguninn eftir að Þórður fór um nóttina frá Akureyri, voru menn sendir þaðan, cr áttu að elta liann og liandsama, en það var um seinan, því þegar þeir lcomu til Reykjavík- ur, var skipið, er Þórður fór^mcð, komið úr augsýn. Voru eigur stroku- manns þessa síðan seldar og fengu margir þeii'ra, cr gengið höfðu í boi'gun fyrir hann, harða útreið. Kona hans var Oddný Ólafsdóttir frá Vindhæli Guðmundssonar, systir Björns Ólsens umboðsmanns á Þing- eyrum. Voru þeirra dætur Guðrún, kona Björns sýslumanns Blöndals, og Soffía, kona Péturs Pétux’ssonar hreppstjóra í Miðhópi. Það er talið með öllu víst, þótt litlar séu sönnur fyrir, að Þórður kæmi nokkru seinna til Húnavatnssýslu sem skip- hen'a á fiskiskipi hollenzku, en gei'ði lítið vart við sig og vildi fá Oddnýju konu sína með sér, en Björn bróðir hennar vildi eigi að hún færi, og vai'ð eigi af því. (Annáll 19. aldar.) GUÐMUNDUIt KETlLSSON OG KJAFTA-SVEINN. Guðmundur Kctilsson, bróðir Natans, var gáfumaður og skáld. Ilann var eigi að ölltx gæfumaðui', fremur en bróðir hans, hafði enda eitt sinn verið hýddur fyrir þjófnað. Einu sinn gisti hann á Geitaskarði, og varð honum þar samnátta um-

x

Alþýðuhelgin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.