Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 51
STEINDÓR STEINDÓRSSON:
UM HALENDISGROÐUR ISLANDS
ÞRIÐJI HLUTI.
5. HEIÐI
(The Heath vegetation)
Heiðin er eitt víðáttumesta gróðurlendi hálendisins, þeirra sem
gróður er samfelldur í. Hún er þurr og fremur ófrjó og einkennisteg-
undir hennar eru smárunnar og þyrrkingslegar, grasleitar plöntur. í
einu gróðurfylki hennar verður gamburmosi (Rhacomitrium) drottn-
andi. Á nokkrum stöðum eru fléttur, einkum fjallagrös (Cetraria is-
landica) og hreindýramosi (Cladonia rangiferina) og Alectoria ein-
kennistegundir í heiðinni. Gróðurlendi þetta er ýmist kallað mólendi
eða heiði á íslenzku. Er það nokkuð rakið í riti mínu 1945, og stakk
ég þar upp á að nota bæði þessi nöfn, mólendi um gróðursveitir lág-
lendisins, en heiði um hálendið, vegna þess, að svipur gróðurlendisins
er mismunandi. Á láglendi er yfirborðið næstum ætíð þýft og oft stór-
þýft, en á hálendinu er það miklu sléttara, og oft aðeins nabbaþýft
eða alveg slétt. Við nánari athugun, hefi ég komizt að þeirri niður-
stöðu, að kalla allt þetta gróðurlendi heiði án tillits til legu þess, og
hefi ég notað það nafn í Skrá 1951. Sakir breytilegs gróðurs kemur til
greina að skipta heiðagTÓðrinum í þrjú megin belti, lágheiði, mið-
heiði og háheiði. Lágheiðin mundi þá helzt talin frá sjávarmáli upp
í um 300 m hæð, miðheiðin 300—450 m og háheiðin þar fyrir ofan
svo hátt, sem samfeldur heiðargróður nær, sem óvíða mun vera hærra
en 600—700 m. y. s. En vitanlega liggja þessi mörk misjafnlega hátt eftir
landshlutum og staðháttum. Gróðurfarslega skiptist heiðin í þrjú fylki
grasheiði (Graminé-heath) með drottnandi grasleitum tegundum,
runnaheiði (Dtvarfshrub-heath), þar sem smárunnar drotna og mosa-
heiði eða mosaþembu (Rhacomitrium-heath) þar sem gamburmosinn
þekur mestan hlut yfirborðsins, en blómplöntur fáar og strjálar. í þess-
ari ritgerð eru þau gTÓðurhverfi, sem fléttur eru áberandi í, talin til
mosaheiðarinnar, en réttast væri að tala þar um fjórða fylkið fléttu-
heiði (Lichen-heath). Eftir áðurnefndum hæðabeltum skiptast gróður-
4 TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra 49