Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 96
FLORUNYJUNGAR
1966
Sumarið 1966 ferðaðist ég um Austurland frá Norðfirði til Breiðamerkursands.
Einnig fór ég nokkrar stuttar ferðir um Norðurland. Enda þótt engin þessara ferða
væri sérstaklega gerð til rannsókna á háplöntum, rakst ég þó á nokkrar þeirra, sem
mér þykir vert að skýra hér frá:
1. Athyrium filix femina, fjöllaufungur. — Við Snæclalsfoss í Hamarsfirði, Au. Tveir stórir
brúskar í hvammi í klettunum vestan við fossinn. Ólafur bóndi á Hamri taldi sig hafa
séð þennan burkna langt inni í Hamarsdal, og einnig það sem bann kallaði burkna-
bróður, sem Iíklega er þúsundblaðaburkni. (Ath. alpestre.)
2. Woodsia ilvensis, liðfætla. — Hjallaland í Vatnsdal, Hún., N. í klettum neðst í Jöruncl-
arfelli, við lækjargil.
3. Polypodium vulgare, sæturót. — í Spákonufellshöfða á Skagaströnd, N., Selbjalli við
Hamarssel í Hamarsdal, Au., Við Snædalsfoss í Hamarsdal, Au. og í Hrollaugshólum á
Breiðamerkursandi, Au.
4. Juniperus communis, einir. — Vatnsskógar í Skriðdal, Au.; Stóragerði, Myrkárdal, N.
5. Sorbus aucuparia, reynir. — Lindarbrekka í Berufirði. Stór, margstofna hrísla í stór-
grýtisurð fyrir ofan bæinn. Helgi bóndi í Hoffelli í Hornafirði kvað reyni finnast á fá-
einum stöðum í Hoffellsdal eystri. í Hólagerði í Fáskrúðsfirði frétti ég einnig um
reyni, sem á að vaxa þar inni í dalnum.
6. Carex pilulifera, dúnhulstrastör. — Strönd í Stöðvarfirði.
7. Poa flexuosa, lotsveifgras. — Lónsheiði, ca. 500 m h.
8. Lathyrus maritimus, baunagras. — Við brúna á Jökulsá í Lóni.
9. Saxifraga aizoon, bergsteinbrjótur. — Hjallaland í Vatnsdal, Hún. Ilrunnlækjargil við
Ormsstaði í Breiðdal, Au.
10. Saxifraga cotyledon, klettafrú. - Brunnlækjargil við Ormsstaði í Breiðdal, Au. og víða
þar fyrir sunnan til Breiðamerkursands.
11. Chamaeonerion angustifolium, sigurskúfur. — Stóragerði, Mýrkárdal, Hörgárdal, N.
H.Hg.
94 Flúra - tímarit um íslenzka grasafræði