Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Side 2
Sól á Suðurlandi Félagssamtökin
Sól á Suðurlandi hafa verið iðin við
að vekja athygli á hugsanlegri
virkjun í Þjórsá en þau vilja meina
að áhættumat sé ekki hlutlaust.
miðvikudagur 8. ágúSt 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Félagsmaður Sólar á Suðurlandi, Ólafur Sigurjónsson, gagnrýnir áhættumat vegna
virkjunaráforma í Þjórsá. Tvær hönnunarstofur koma að áhættumatinu sem munu
einnig koma að uppbyggingu virkjunarinnar verði hún að veruleika. Þessu hafnar
Helgi Bjarnason, verkefnastjóri hjá Landsvirkjun, og vill hann meina að vinnu
brögðin séu eðlileg.
SÓL Á SUÐURLANDI
GAGNRÝNA ÁHÆTTUMAT
„Við eigum rétt á hlutlausu mati í
okkar byggð,“ segir Ólafur Sigur-
jónsson, einn af félagsmönnum
Sólar á Suðurlandi, en samtökin
gagnrýna áhættumat sem unnið
er að fyrir Hvammsholta- og Ur-
riðafossvirkjun. Verkfræðistofurn-
ar VST og VGK-hönnun hafa ver-
ið ráðnar til verksins. Þær stofur,
ásamt Rafhönnun, reka einnig verk-
fræðistofuna HRV sem sér um um-
hverfismat fyrir hugsanlegt álver
í Helguvík. Í frétt, sem birtist í DV
fyrir tæpum tveimur vikum, kom í
ljós að VGK-Hönnun á hlut í Geysi
Green Energy. Það félag keypti hlut
í Hitaveitu Suðurnesja fyrr í sum-
ar og sagði þá iðnaðarráðherrann,
Össur Skarphéðinsson, að tengsl-
in væru óheppileg þótt þau vörp-
uðu ekki skugga á umhverfismatið
sjálft.
Milljón tonn af vatni
„Það myndi fara hrollur um Reyk-
víkinga ef það væri 27 milljón tonna
vatnsstífla yfir þeim og það væri
spurning hvort vafaatriði félli þeirra
megin eða hjá Landsvirkjun,“ segir
Ólafur sem vill hlutlaust mat. Hann
segir það óeðlilegt að VST og VGK-
hönnun sjái um áhættumatið og svo
muni sömu aðilar hanna virkjun-
ina sjálfa. Að sögn Ólafs spurðu þeir
Helga Bjarnason hjá Landsvirkjun
hver yrði ábyrgur fyrir matinu. Þá
fengu þeir þau svör að það væri Há-
skóli Íslands sem færi með matið.
Síðar kemur í ljós að það eru þess-
ar tvær hönnunarstofur sem fara
með áhættumatið. Hann hefur af
því áhyggjur að með þessu móti geti
niðurstöður úr áhættumati orðið lit-
aðar hagsmunum þeirra sem byggja
virkjunina.
Vinna ekki grunnupplýsingar
„Háskóli Íslands er einn af
mörgum aðilum sem gefa þessum
hönnuðum grunnupplýsingar til
þess að nota við áhættumat,“ segir
Helgi Bjarnason, verkefnastjóri hjá
verkfræði- og framkvæmdasviði
Landsvirkjunar. Hann segir hönn-
unarstofurnar ekki koma að þess-
ari grunnupplýsingaleit heldur fái
þær álit og upplýsingar hjá sérs-
fróðum aðilum. Þar af leiðandi gera
þær áhættumatið sem verður opið
fyrir rýni að lokum. Að sögn Helga
þurfa hönnunarstofurnar að fylgja
alþjóðlegum stöðlum þar sem gert
er ráð fyrir hugsanlegum hættum.
Eðlileg vinnubrögð
„Það er eðlilegt að þeir sem sjái
um áhættumatið komi svo að hönn-
un virkjunarinnar sjálfrar,“ seg-
ir Helgi og blæs á þær fullyrðingar
Sólar á Suðurlandi að matið sé ekki
hlutlaust vegna þess að hönnun-
arstofurnar muni einnig koma að
uppbyggingu hugsanlegrar virkj-
unar. Helgi bætir við að ferlið sé
afar gegnsætt þar sem matið verð-
ur opið fyrir gagnrýni að lokum og
þá er hægt að gera athugasemdir við
það sem íbúum á svæðinu kynni að
þykja miður.
Nokkur hiti hefur verið í Rangár-
sýslu vegna málsins en Sól á Suður-
landi hefur meðal annars reist skilti
til þess að vekja athygli á því hversu
mikið landsvæði fari undir vatn.
Skiltin voru hins vegar rifin niður
örfáum dögum síðar af andstæð-
ingum Sólar á Suðurlandi. Þá hefur
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaáð-
herra lýst yfir andstöðu við hugsan-
lega virkjun.
„Það myndi fara hrollur
um reykvíkinga ef það
væri 27 milljón tonna
vatnsstífla yfir þeim
og það væri spurning
hvort vafaatriði félli
þeirra megin eða hjá
landsvirkjun.“
Valur grEttiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Jóhannes Jónsson er óhress með ákvörðun bæjaryfirvalda á Akureyri:
Hrein og bein niðurlæging
„Áttatíu prósent af okkar starfs-
fólki eru á aldrinum 18 til 23 ára og
mér finnst þetta vera hrein og bein
niðurlæging fyrir þau,“ segir Jóhann-
es Jónsson, eigandi Bónuss. Jóhann-
es er mjög óhress með ákvörðun bæj-
aryfirvalda á Akureyri um að meina
þessum hópi aðgang að tjaldsvæðum
bæjarins. „Ég get ekki séð annað en
að þetta sé niðurlæging fyrir þenn-
an hóp. Mér finnst rangt að stimpla
þennan hóp sem hundrað prósent
óferjandi. Ég get engan veginn sætt
mig við svona vinnubrögð.“
Aðrir verslunareigendur á Ak-
ureyri hafa lýst yfir mikilli óánægju
með þessa ákvörðun og minnk-
uðu viðskiptin mikið vegna þessar-
ar ákvörðunar. „Það voru áberandi
minni umsvif í verslun hér á Akur-
eyri, til dæmis hjá veitingahúsum.
Þetta hefur haft neikvæð áhrif.“
Jóhannes segir þessa ákvörðun
vera undarlega í ljósi þess að lög-
reglan hafi hrósað aðstandendum
hátíðarinnar Ein með öllu fyrir gott
skipulag. „Síðustu þrjár verslunar-
mannahelgar hafa verið mjög góðar
og lögreglan hefur sagt að lítið hafi
verið um útistöður.“
Jóhannes segir að ef bæjarvöld
hefðu hugsað málið ítarlega hefðu
þau ekki tekið þessa ákvörðun. „Ég
tel að ákvörðunin hefði orðið önnur
hefðu bæjaryfirvöld tekið alla kosti
og ókosti inn í. Að mínu mati er þessi
ákvörðun handahófskennd fljót-
færni.“
Jóhannes segir þessi vinnubrögð
vera furðuleg í ljósi þess að Vinir Ak-
ureyrar hafi verið búnir að gefa út
auglýsta dagskrá. „Nokkrum dögum
síðar gefur bæjarstjórnin það út að
fólk á þessum tiltekna aldri fái ekki
aðgang. Ég vona að bærinn muni sjá
að sér á næsta ári því ef hann gerir
það ekki munum við gera það. Við
höfum lagt fjármagn í þessa hátíð
og við munum ekki standa að neinni
dagskrá ef þessi vinnubrögð verða
höfð að leiðarljósi á næsta ári. Okk-
ur hefur verið hrósað fyrir vel unnin
störf og að ætla sér að útiloka fullorð-
ið fólk finnst mér vera niðurlæging.“
DV Páskablað mikvikudagur 4. apríl 2007 53
É
g segi að fólk sem
er fætt 40+ eld-
ist öðruvísi en þeir
sem fæddust tut-
tugu árum fyrr. Við
höfum ekki liðið
vosbúð, þrældóm
eða hungur eins
og þetta fólk bjó víða við. Svo kveða
lögin á um að fólk í fullu fjöri eigi að
hætta að vinna úti, 67 ára. Þetta hlýt-
ur að eiga að þróast með öðru og fólk
að eiga kost á því að fá að vinna eitt-
hvað áfram ef kraftar þess leyfa.“
Það er ekki annað að sjá en að Jó-
hannes í Bónus sé í góðu formi. Hann
hefur aldrei litið betur út, hann geisl-
ar af lífsgleði og gerir óspart að gamni
sínu. Hann var að koma frá Færeyj-
um og eftir hálftíma leggur hann af
stað norður í páskafrí.
„Ég hafði lofað því að segja nokkur
orð við opnun ræðismannsskrifstofu
Íslands í Færeyjum og fólk á alltaf að
standa við orð sín,“ segir hann spurð-
ur út í Færeyjarferðina.
Hann er mættur í morgunte til að
svala forvitni minni um samskipti
sín við móður sína, Kristínu Jóhann-
esdóttur og frænda sinn Óla Kr. Sig-
urðsson, Óla í Olís – en svo reynist
auðvelt að færa sig upp á skaftið og
spyrja um fleira.
„Ég veit nú ekki hvort ég er eitt-
hvað betri við móður mína en menn
almennt eru við foreldra sína,“ segir
hann. „Mamma er 89 ára, býr í eig-
in íbúð við Aflagranda og er sjálfri sér
næg. Miðað við aldur og fyrri störf
held ég að ég geti fullyrt að hún lifi
góðu lífi. Hún gengur að minnsta
kosti upp og niður Laugaveginn á
háum hælum eins og skvísa!“ seg-
ir hann. „Við Ester systir mín skipt-
umst á að fá hana í heimsókn til okk-
ar, við höfum farið saman til útlanda,
síðasta sumar kom hún með okkur
fjölskyldunni til Kaupmannahafnar
og eins kemur hún norður til okkar
og við erum einnig alltaf í símasam-
bandi. Við mamma eigum sem betur
fer í ágætu sambandi.“
1940: Undramódel
Sömuleiðis segist hann eiga góð
samskipti við Ester systur sína, sem er
sjö árum yngri en hann og hafi vissu-
lega verið dekurdúkka fjölskyldunn-
ar.
„Ég man fyrst eftir mér á Skeggja-
götu 15, en þegar ég fæddist árið
1940 leigðu mamma og pabbi íbúð
þar. Pabbi keypti svo fokhelda hæð
og ris við Mávahlíð 13, fullkláraði
þær íbúðir og þangað fluttum við
þegar ég var sex ára. Ári síðar fæddist
Ester systir mín.“
Hér hnýt ég um fæðingarár Jó-
hannesar. Fer að hugsa um þá sem
voru 67 ára þegar ég var barn og man
ekki betur en mér hafi fundist það
vera gamalmenni...og svo man ég
enn eftir Cliff Richard sem ég sá fyrir
viku. Líka fæddur 1940.
„Já, vissirðu ekki að árið 1940
var afbragðs ár, bæði hvað snertir
bíla og menn?!“ spyr hann og bros-
ir. „Þetta voru undramódel, eitthvert
besta módel sem komið hefur fram
á sjónarsviðið...! – En ég held ég geti
sagt það með sanni að æska mín var
dans á rósum. Foreldra mína skorti
ekki neitt, og þar af leiðandi mig ekki
heldur. Ég naut þeirra forréttinda að
fá að fara í sveit í níu sumur til frænd-
fólks míns á Sólheimahjáleigu í Mýr-
dal og þar leið mér vel.“
Hættulaust að vakna snemma á
laugardagsmorgnum
Þar segist hann hafa lært að bera
virðingu fyrir hlutum og fólki, nokk-
uð sem hann segir skorta of mikið hjá
ungu fólki í dag.
„Ég tók ekki þátt í húsverkun-
um heima, en gerði það hins vegar
í sveitinni. Þar lærði ég líka að það
skiptir ekki máli hvaða dagur er;
kýrnar fara ekki í frí um helgar. Þær
þarf að mjólka á mjaltatímum, líka
á laugardögum og sunnudögum.
Ég ólst því ekki upp við að það væri
F ll í t Fi
aF tö ulyk
Framhald á
næstu opnu
Jóhannes Jónsson
Önnu Kristine
dv myndir gúndi
Jóhannes í
Bónus Er óhress
með bæjaryfirvöld
á akureyri og segir
ákvörðun þeirra
vera fljótfærnis-
kennda.
Sextán ára
á fjórhjóli
Sextán ára próflaus öku-
maður fjórhjóls var fluttur með
þyrlu Landhelgisgæslunnar til
Reykjavíkur eftir að hann keyrði
hjólið ofan í á um helgina. Hann
var með tvo farþega á hjólinu
sem voru á aldrinum þrettán til
sextán ára. Hjólið steyptist 6 til
8 metra niður í á en ungmennin
köstuðust af hjólinu áður en það
hafnaði í ánni sjálfri. Farþegarnir
hlutu smámeiðsl og voru fluttir á
sjúkrahúsið á Hólmavík. Lögregl-
an á Vestfjörðum gagnrýnir for-
eldra fyrir að leyfa börnum sínum
að aka slíkum hjólum án réttinda
og nauðsynlegs hlífðarbúnaðar
en börnin voru ekki með hjálma.
21 ölvunarakstur
Tuttugu og einn ökumaður
var tekinn fyrir ölvunarakstur um
verslunarmannahelgina á höf-
uðborgarsvæðinu. Flestir voru
stöðvaðir á laugardag eða átta.
Tveir voru stöðvaðir á föstudag,
fimm á sunnudaginn og sex í
fyrradag. Sextán ökumenn voru
teknir í Reykjavík, þrír í Hafnar-
firði og tveir í Kópavogi. Í þessum
hópi voru tvær konur á móti nítj-
án körlum. Yngsti ökumaðurinn
sem stöðvaður var er fæddur árið
1990. Hann þarf einnig að svara
til saka fyrir að ljúga til um nafn
en hann framvísaði skilríkjum
annars manns. Hann hefur áður
komið við sögu lögreglu en hann
var nýlega stöðvaður fyrir að aka
á 74 kílómetra hraða þar sem há-
markshraði er 30.
Fimmtán
stungu af
Þrjátíu og sjö umferðaróhöpp
voru tilkynnt til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu um versl-
unarmannahelgina en tvö þeirra
má rekja til ölvunaraksturs. Í
fæstum tilvikum urðu slys á fólki.
Fimmtán ökumenn stungu hins
vegar lögregluna af en slíkt mun
víst teljast hátt hlutfall.
Sem fyrr komu réttindalausir
ökumenn nokkuð við sögu hjá lög-
reglu en um helgina voru fimmtán
slíkir stöðvaðir víða í umdæm-
inu. Níu þeirra höfðu þegar verið
sviptir ökuleyfi en hinir sex höfðu
aldrei öðlast ökuréttindi.
LSD gert
upptækt
Nokkuð magn af fíkniefn-
um var gert upptækt af lög-
reglunni á Sauðárkróki um
helgina. Efnin sem voru hald-
lögð eru amfetamín, kókaín
og LSD. Hundrað skammt-
ar af LSD fundust á farþega í
fólksflutningabíl í Varmahlíð
en það var fíkniefnahundur
sem fann efnin. Naut lögregl-
an á Sauðárkróki aðstoðar frá
lögreglunni á Akureyri. Sami
fíkniefnahundur og fann efnin
í Varmahlíð fann einnig amfet-
amín í bifreið sem var stöðvuð
á Þverárfjallsvegi að morgni
föstudags.