Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Side 13
DV Hluturinn minn miðvikudagur 8. ágúst 2007 13
Hluturinn minn
„Uppáhaldshluturinn minn er
Guild-gítar sem ég keypti fyrir tíu
árum af Begga Morthens. Þetta er al-
gjör snilldargripur. Hef samið marga
hittarana á þennan gítar og meðal
annars lagið Síðan hittumst við aftur
á leiðinni. Hann er með mikla sögu
og búinn að ferðast marga hringi um
landið og ber þess merki, hann er
svona vel laminn og sjóaður í brans-
anum og lifir virkilega sjálfstæðu
lífi og þegar maður tekur hann upp
og slær á strengina sér hann bara
svolítið um þetta sjálfur. Þetta er
svona mjög stór og gamall klassískur
kassagítar. Þetta er Guild-gítar sem
er mjög mikilvægt, gamli Guildinn
sko. Þetta er alveg ekta gamldags
blús kassagítar sem gæti hafa dottið
ofan úr tré í Mississipi árið 1930.“
guild-gítarinn
Helgi Björnsson, leikari og söngvari:
Framhald
á næstu opnu
í uppáHaldi
Þótt veraldleg gæði séu fólki misjafnlega mikilvæg eiga flestir hluti
sem þeim þykir vænt um. Við töluðum við nokkra kunna einstaklinga
og spurðum þá um þeirra uppáhalds hlut. Svörin voru æði misjöfn
enda viðmælendurnir úr ýmsum áttum. Ein nefndi ísskápinn sinn,
önnur rúmið, einn nefndi golfsettið en Helgi Björnsson nefndi, eins og
sjá má hér að neðan, Guild-gítarinn sinn. Á baksíðu er rætt við verslun-
arstjóra Góða hirðisins og verslunarstjóra Saltfélagsins.
D
V m
ynd Ásgeir