Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Side 17
DV Sport miðvikudagur 8. ágúst 2007 17 ÍÞRÓTTAMOLAR Deco til englanDs? samkvæmt hinum margrómuðu götublöðum á Englandi hafa Newcastle united og Chelsea fengið þær upplýsingar að miðjumaðurinn deco sé laus fyrir fimmtán milljónir punda. Bæði þessi ensku úrvalsdeildarlið hafa verið orðuð við þennan portú- galska landsliðs- mann. deco á ekki fast sæti hjá spænska stórliðinu Barcelona en í augnablikinu virðast Yaya toure, andres iniesta og Xavi allir vera á undan honum í goggunarröðinni. Ekki er talið ólíklegt að deco fari til Chelsea en þar er Jose mourinho við stjórnvölinn, fyrrum þjálfari deco hjá Porto. Robben á leið til MaDRiD „Ég er alveg viss um að samkomulag milli real madrid og Chelsea náist í vikunni. Ég held að allt verði orðið klárt á miðvikudag,“ sagði Hans robben, sem er faðir og umboðsmaður arjen robben, í viðtali við as- fréttastofuna. „sonur minn getur ekki gefið nein viðtöl fyrr en búið er að ganga frá málum. Félagið sem hann er hjá núna leyfir honum ekki að tala við fjölmiðla strax. Chelsea er félag sem leggur mikla áherslu á að vernda leikmenn sína,“ sagði Hans. Hleb ekki viss aleksandr Hleb, miðjumaður arsenal, segist ekki vera viss um hvernig muni ganga hjá arsenal án sóknarmannsins thierrys Henry. síðustu ár hefur Henry verið algjör lykilmaður hjá liðinu en hann var seldur til Barcelona í sumar eins og flestir vita. „Eins og stendur verð ég að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvernig okkur muni ganga án Henrys. Hann er frábær leikmaður og hefur verið stór hlekkur í þessu liði. En hann vildi fara. Það er ekki harmleikur að missa hann því að það á að vera hægt að fylla í öll skörð,“ sagði Hleb. getuM HönDlað það að Missa teRRy tal Ben Haim, nýr varnarmaður Chelsea- liðsins, segist vera viss um að leik- mannahópurinn sé nógu góður til að liðið geti höndlað það að vera án fyrirliðans Johns terry. Ben Haim er ísraelskur landsliðsmaður en hann var við hlið ricardo Carvalho í miðri vörn Chelsea síðasta sunnudag þegar liðið lék gegn manchester united um samfélags- skjöldinn. „John terry er magnaður leikmaður og það vita allir. Þá er hann einnig mikill leiðtogi utan vallar og hjálpaði mér að aðlagast hér. En þótt hann vanti erum við enn með frábært lið. Ef allir leggja sig fram í verkefnið getum við fyllt hans skarð,“ sagði Ben Haim. baines til eveRton Everton hefur fengið Leighton Baines frá Wigan en kaupverðið gæti farið upp í 770 milljónir íslenskra króna. Þessi 22 ára vinstri bakvörður hefur skrifað undir fimm ára samning við Everton en hann stóðst læknisskoðun á mánudag. Baines er þriðji leikmaðurinn sem Everton kaupir í sumar en hinir eru Phil Jagielka og steven Pienaar. Baines var einnig á óskalista sunder- land en ákvað að velja Everton. Það er þó óvíst hvort hann geti leikið með Everton í upphafi tímabilsins vegna meiðsla. Það má segja að draumur hans hafi nú ræst en hann var stuðningsmaður Everton í æsku. „Ég er frá svæðinu og öll mín fjölskylda styður Everton svo það er gaman að vera mættur hingað,“ sagði Baines. Sigurður Ingimundarson, lands- liðsþjálfari í körfubolta, hefur valið þá 14 leikmenn sem verða í hópnum fram yfir þá 4 leiki sem eru framund- an. Fyrsti leikur liðsins verður gegn Finnlandi ytra 25. ágúst en þrír leikir verða spilaðir á Íslandi. Sá fyrsti verð- ur 29. ágúst gegn Georgíu en þeir eru gríðarlega sterkir í alþjóðlegum körfubolta. Zaza Pacchulia, leikmað- ur Atlanta Hawks í NBA, er meðal annars í liðinu. Zaza er engin smá- smíði, 211 sentímetra hár og 127 kíló. Hann lék 72 leiki fyrir slakt lið Atlanta í vetur og skoraði 12,2 stig að með- altali. Hann var oftar en ekki valinn besti maður Atlanta í vetur og ljóst að við ramman reip verður að draga hjá íslensku strákunum. „Þetta eru síðari leikirnir í riðlin- um í Evrópukeppninni,“ sagði Sig- urður í samtali við DV. „Þetta eru seinni leikirnir við Finna, Georgíu- menn, Austurríkismenn og Lúxem- borg. Við töpuðum með fimm gegn Finnum hér heima í hörkuleik þar sem við vorum yfir mestallan leik- inn. Við förum aldrei upp úr riðlin- um, það er búið en hver leikur skiptir máli. Við ætlum að fara í hvern leik sem einstakan leik og reyna að gera eins vel og við getum.“ Finnar og Georgíumenn eru stór- ar þjóðir í evrópskum körfubolta. Ís- land lék við Georgíu á þeirra heima- velli þar sem tíu þúsund manns sungu og trölluðu allan leikinn. „Finnland og Georgía eru mjög góð lið, toppkörfuboltalið. Þessi riðlaskipting er reyndar svolítið skrýtin en þessar þjóðir eru stórar og miklar körfuboltaþjóðir. Við spil- uðum við Georgíumenn úti, töpuð- um reyndar með 15 stigum í hörku- leik (80-65). Þeir eru með tíu þúsund manns á leik hjá sér og mikil læti enda stórþjóð,“ sagði Sigurður. benni@dv.is Íslenska landsliðið í körfubolta leikur fjóra leiki á komandi vikum: annar af tveimur Fannar Ólafsson er annar af tveimur kr-ingum sem eru í landsliðinu. Leikmenn ÍsLands: magnús Þór gunnarsson keflavík sigurður Þorsteinsson keflavík Brenton Birmingham Njarðvík Friðrik stefánsson Njarðvík Jóhann Ólafsson Njarðvík Hreggviður magnússon Ír Fannar Ólafsson kr Brynjar Björnsson kr Helgi magnússon Boncourt Jakob sigurðarson vigo Páll axel vilbergsson grindavík kristinn Jónasson Fjölnir Logi gunnarsson gijon Jón arnór stefánsson roma leikirnir sem eftir eru: Finnland (Ú) 25. ágúst georgía (H) 29. ágúst Lúxemborg (Ú) 1. september austurríki (H) 9. september staðan leikir s/t stig 1. Finnland 4 4/0 8 2. georgía 4 3/1 7 3. austurríki 4 2/2 6 4. Ísland 4 1/3 5 5. Lúxemb. 4 0/4 4 Hver leikur skiptir máli Íslandsmeistarar Vals héldu til Færeyja í gær þar sem þær leika í riðla- keppni UEFA-bikars kvenna. Rið- illinn er leikinn í Færeyjum en auk Valsstúlkna leika Klaksvík frá Færeyj- um, Den Haag frá Hollandi og Honka Espoo frá Finnlandi. Valsstúlkur hefja leik á morg- un þegar tekið verður á móti Honka Espoo frá Finnlandi. Á laugardag verð- ur leikið við KÍ frá Klaksvík og lokaleik- urinn verður við Hollendingana í Den Haag 14. ágúst. Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, var á hlaupum þegar DV náði tali af henni en hún var þá í óðaönn að undirbúa sig fyrir flugið til Færeyja. „Liðið er mjög vel stemmt fyrir þessa ferð. Við höfum spilað túrneringa Ís- landsmót og nú erum við búnar með eitt slíkt. Þetta er ógeðslega erfitt hvern- ig sem þetta spilast. Við erum búnar að spila þrjá leiki á viku í Íslandsmót- inu og förum svo beint í þetta. En ég er bara með svo góðan hóp og allar stelp- urnar eru heilar þannig að þetta er allt í góðu,“ sagði Elísabet. Töluverð um- ræða hefur verið um mótafyrirkomu- lag hér á Íslandi og ljóst að Elísabet er ekki par hrifin af því fyrirkomulagi sem er hér við lýði. Risalið ef valur kemst áfram Efsta liðið kemst áfram í milli- riðla en mikilvægt er að ná góðum úrslitum því liðið sem er með best- an árangur í öðru sæti kemst einnig áfram. Tíu riðlar eru leiknir víðsvegar um Evrópu þessa leikdaga og er leik- ið um ellefu laus sæti í milliriðlum. Fimm lið komust beint í milliriðlana, Evrópumeistarar Arsenal, Kolbotn, Umeå, Brondby og Frankfurt. „Við vit- um svona nánast á móti hverjum við spilum komumst við áfram. Þá fáum við Frankfurt og hugsanlega Everton frá Englandi. Þannig að það er enginn smáriðill sem bíður ef við komumst þangað. En þessi riðill sem við erum í núna er bara svo erfiður að maður leyfir sér ekki að hugsa svona langt.“ Elísabet segir að fyrirfram séu finnsku meistararnir í Honka Espoo sterkasta liðið en Finnar hafa löngum þótt góðir í kvennaknattspyrnu. „Landsliði þeirra er raðað fyrir ofan okkar og fótboltinn þar er mjög góður. Við að vísu unnum finnsku meistar- ana fyrir tveimur árum í þessari sömu keppni og Breiðablik vann líka finnsku meistarana í fyrra en báðir leikirnir voru jafnir og hefðu getað dottið hvor- um megin sem var. Þær eru mjög álíka og við mundi ég segja. Ég veit voða lít- ið um hollenska liðið. Mér hefur tekist illa að nálgast upplýsingar um það lið en það er komin atvinnumannadeild í Hollandi og mikið af útlendingum. Til dæmis er Holland ofar en Ísland á styrkleikalistum landsliða þannig að við erum að fara spila við tvö hörku- lið. Færeyska liðið er svona talið lakast fyrirfram.“ Elísabet segir ástandið á leikmönn- um Vals gott og allar séu tilbúnar í slaginn. Þó séu Guðbjörg Gunnars- dóttir og Sif Atladóttir með minnihátt- ar meiðsli sem munu ekki há þeim neitt. Valur leikur á morgun fyrsta leik sinn í forkeppni Evrópukeppninnar. elísabet gunn- arsdóttir þjálfari býst við erfiðum riðli en auk Vals eru finnsku meistararnir Honka Espoo, hollenska liðið Den Haag og gestgjafarnir KÍ frá Klaksvík í riðlinum. STÓRu Liðin bÍðA hAndAn við hORnið tekst þeim að komast áfram þar sem stóru liðin bíða? valskonur eiga ágæta möguleika á að komast áfram úr riðli sínum sem spilaður er í Færeyjum. verður að ná sér á strik Það eru gerðar miklar kröfur til margrétar Láru viðarsdóttur. Ætli valur sér áfram verður hún að pota inn nokkrum mörkum. beneDikt bóas HinkRisson blaðamaður skrifar: benni@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.