Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Síða 18
miðvikudagur 8. ágúst 200718 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Garcia handarbrotinn
Óheppnin virðist elta handboltakapp-
ann Jaliesky garcia, leikmann
göppingen og
íslenska
landsliðsins. Hann
handarbrotnaði í
æfingaleik með
göppingen um
helgina og verður
frá keppni í
einhvern tíma.
garcia átti við
meiðsli að stríða á
síðustu leiktíð og missti meðal annars af
Hm í Þýskalandi og af leikjunum gegn
serbíu í undankeppni Em vegna
meiðslanna. Hann lék aðeins fimm leiki
með göppingen á síðustu leiktíð og nú
er ljóst að hann missir af fyrstu leikjum
tímabilsins.
birGir slÆr vel
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfing-
ur úr gkg, er í tuttugasta sæti yfir þá
kylfinga á evrópsku mótaröðinni sem
hitta flestar flatir
að meðaltali með
réttum högga-
fjölda. Birgir Leifur
er með 13,1 flöt
hitta að meðaltali
og skákar þar ekki
ómerkari
mönnum en
Padraig Harring-
ton, sergio garcia
og Colin montgomerie svo dæmi sé
tekið. Efstur á listanum er angel Cabrera
með 14,2 flatir hittar. meðalskor Birgis
Leifs á hverju móti er 71,44 högg sem
skilar honum í 72. sætið á þeim lista.
Hann er í 181. sæti á mótaröðinni en
115 efstu kylfingarnir halda þátttöku-
rétti sínum á mótaröðinni á næsta ári.
Morales tapaði
Erik morales mistókst að verða fyrsti
mexíkómaðurinn til að vinna heims-
meistaratitla í
fjórum þyngdar-
flokkum þegar
hann tapaði
naumlega fyrir
léttvigtarmeistar-
anum david diaz á
laugardaginn.
morales sló diaz í
gólfið í fyrstu lotu
en var svo sjálfur
sleginn niður í þeirri annarri. Bardaginn
fór í tólf lotur og diaz var dæmdur sigur,
114-113, 115-113 og 115-112. Búist er
við því að hinn þrítugi morales leggi
hanskana á hilluna. Hann vann sinn
fyrsta heimsmeistaratitil árið 1997.
enn seinkar tevez
Ekkert varð úr því að Carlos tevez
skrifaði undir samning við manchester
united í gær, eins
og búist var við og
verður að öllum
líkindum ekki
kominn með
leikheimild fyrir
fyrsta leik
tímabilsins. tevez
er byrjaður að æfa
með ensku
meisturunum.
Lögfræðingar ensku úrvalsdeildarinnar
ákváðu að skrifa ekki undir leikheimild
fyrir tevez en samningur manchester
united og kia Joorabchian, eiganda
Carlosar tevez, er svipaður og
samningurinn sem Liverpool gerði við
Joorabchian um Javier mascherano. Það
tók þá leikheimild nokkrar vikur að
ganga í gegn. manchester united gerir
sér hins vegar vonir um að leikheimild
verði klár fyrir leikinn gegn reading á
sunnudaginn.
barcelona vann nauMan siGur
giovanni dos santos tryggði Barcelona
1-0 sigur á Yokohama marinos með
marki á 75. mínútu eftir sendingu frá
ronaldinho. Þetta
var annar sigur
Barcelona í
jafnmörgum
leikjum í
æfingaferð liðsins í
asíu. á sunnudag-
inn vann Barcelona
Beijing gou‘an 3-0
og á föstudaginn
leikur Barcelona
sinn síðasta leik. Æfingaferðin hefur verið
gagnrýnd af nokkrum leikmönnum
Barcelona, þar á meðal gianluca
Zambrotta og Lilian thuram sem sögðu
að betra væri að æfa á spáni en að fara í
til asíu til að spila þrjá tilgangslausa leiki.
Eiður smári guðjohnsen er ekki með
liðinu þar sem hann glímir við meiðsli.
Fernando alonso og lewis hamilton eiga í hatrammri deilu eftir óvenjulegt atvik sem
átti sér stað í Formúlu 1-keppni helgarinnar þar sem Alonso tafði vísvitandi fyrir Ham-
ilton á þjónustusvæðinu.
Það virðist anda köldu á milli
McLaren-félaganna Fernando Alonso
og Lewis Hamilton. Um helgina fór
fram kappakstur í Ungverjalandi þar
sem Alonso var dæmdur til að hefja
kappaksturinn sjötti á ráslínu eftir að
hafa hindrað Hamilton á þjónustu-
svæðinu í tímatökunni.
Hamilton var með besta tímann
fyrir lokaumferðina í tímatökunni.
Þegar hann kom inn á þjónustusvæð-
ið fyrir síðustu umferðina var Alonso
þegar mættur þar. Alonso fékk grænt
ljós frá starfsmönnum McLaren en
hann kaus að bíða í tíu sekúndur með
að aka inn á brautina. Biðin varð til
þess að Hamilton missti af síðustu
umferðinni í tímatökunni og Alonso
náði besta tímanum.
Skipunin um að bíða kom frá
tæknistjóra Alonso sem taldi niður
áður en hann sagði Alonso að fara af
stað. Áður hafði Hamilton virt skipan-
ir frá McLaren að vettugi og hindrað
Alonso í að komast fram úr sér.
Eftir að hafa hlustað á samskipt-
in sem fram fóru í tímatökunni og
skoðað gögn ákvað stjórn Formúlu 1
að Alonso skyldi hefja keppni sjötti á
ráslínu og að Hamilton skyldi hefja
keppnina fremstur. Svo fór að Ham-
ilton hrósaði sigri en Alonso náði að-
eins fjórða sæti.
Fregnir herma að Ron Denn-
is, yfirmaður McLaren, hafi tilkynnt
Alonso að hann megi yfirgefa lið-
ið eftir yfirstandandi tímabil. „Mínar
heimildir herma að honum hafi verið
sagt að hann megi fara af því að lið-
ið sé mjög óánægt með hann. Ron er
mjög óánægður með þá báða (Alonso
og Hamilton),“ er haft eftir ónefndum
heimildarmanni innan raða McLar-
en.
Þegar Alonso var spurður út í
framtíð sína hjá McLaren í viðtali við
spænska blaðið Marca varð lítið um
svör. „Ég veit ekkert. Það kemur í ljós,“
segir Alonso. Hann reyndi að draga
úr alvöru atviksins og sagði að hann
hafi fengið skipanir frá liðinu um að
bíða. „Í hverri tímatöku stoppum við
og bíðum. Stundum í tíu sekúndur,
stundum í fimm og stundum í 45 eins
og gerðist í fyrsta stoppinu í dag,“ lét
Alonso hafa eftir sér eftir tímatökuna
á laugardaginn.
talar ekki við hamilton
Hamilton staðfestir að mikil
spenna sé á milli þeirra. Samkvæmt
því sem Hamilton segir hefur Alonso
ekki yrt á hann eftir atvikið. „Hann
hefur ekki yrt á mig frá því á laugar-
daginn, þannig að ég veit ekki hvort
hann eigi við eitthvað vandamál að
stríða,“ segir Hamilton og bætir við að
þetta mál komi á slæmum tíma enda
á liðið í harðri baráttu við Ferrari.
Hamilton segist þó ólmur vilja
koma hlutunum í réttar skorður og
semja frið við Alonso. „Þetta skapar
einungis meiri pressu á liðið. Ef við
eigum að halda okkar striki þurfum
við að greina það hvað gerðist um
helgina, eins og alltaf. Við þurfum að
setjast niður og ræða saman sem lið
og sameinast á nýjan leik. Ég hef litlar
áhyggjur af þessu,“ segir Hamilton.
Alonso hefur haldið því fram að
Ron Dennis styðji frekar Hamilton í
baráttunni um heimsmeistaratitilinn.
Dennis segir hins vegar að liðið komi
eins fram við báða ökumenn og lofar
að svo verði áfram þrátt fyrir atburði
helgarinnar.
„Það er okkar afstaða. Það er krefj-
andi verk að stjórna og ég geri mér
grein fyrir því. En það fylgir mínu
starfi. Ég verð að taka ákvörðun sem
hentar liðinu best. Við verðum að
gæta þess að sýna sanngirni og koma
eins fram við báða ökumenn,“ segir
Dennis.
FRAMTÍÐ ALONSO ÓRÁÐIN
deilur
Lítil samstaða virðist vera
hjá þeim Lewis Hamilton
og Fernando alonso sem
báða hungrar í heims-
meistaratitil ökumanna.
erfitt verk fyrir höndum
ron dennis hefur í nógu að snúast við að
setla málin innan mcLaren.
Jermaine o‘neal segir að orð sín um skipti yfir til Lakers hafi verið tekin úr samhengi:
Jermaine O‘Neal dregur úr orðum sínum
daGur sveinn daGbJartsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
Jermaine O‘Neal, leikmað-
ur Indiana Pacers í NBA-deild-
inni, sagði í viðtali við heimasíð-
una SI.com á mánudaginn að hann
myndi taka skiptum yfir til L.A. La-
kers fagnandi. O‘Neal nefndi einnig
New Jersey Nets. Í gær neitaði hann
því að hafa beðið um að fara til La-
kers, en segist opinn fyrir þeirri
hugmynd.
O‘Neal hefur verið orðaður við
nokkur félög eftir að Indiana mis-
tókst að komast í úrslitakeppnina í
vetur, í fyrsta sinn í tíu ár. Hann dró
úr ummælum sínum í gær.
„Ég tel að þrátt fyrir að ég hafi
sagt að ég væri til í að spila með
þessum liðum hafi ég ekki verið
að biðja um að fara,“ segir O‘Neal.
Indiana ætlar sér að byggja lið-
ið upp á ungum leikmönnum og
O‘Neal segist gera sér grein fyrir því
að hann gæti þurft að fara vegna
þessa.
„Ef félagið vill fara í aðra átt hef
ég ekkert á móti því. Ef mér verður
skipt út hef ég átt sjö frábær ár með
liðinu. Ef ég verð hér áfram tek ég
því opnum örmum,“ segir O‘Neal.
Umboðsmaður leikmannsins neit-
aði að viðræður væru í gangi á milli
Lakers og Indiana um hugsanleg
skipti.
Larry Bird, forseti Indiana, vildi
ekki útiloka skipti á leikmönnum.
„Í umræðum um hann og aðra leik-
menn eru væntingar hagsmunaað-
ila og stuðningsmanna okkar þær
að við fáum sanngjarnt markaðs-
verðmæti ef við ætlum að íhuga
skipti,“ segir í yfirlýsingu frá Larry
Bird.
O‘Neal hefur verið í deildinni í
ellefu ár. Hann skoraði 19,4 stig að
meðaltali í leik á síðustu leiktíð og
tók 9,6 fráköst að meðaltali í leik.
O‘Neal hefur sex sinnum verið val-
inn í stjörnuleik NBA-deildarinnar.
Kobe Bryant, leikmaður Lakers,
hefur sagt við yfirmenn félagsins að
þeir þurfi að fá betri leikmenn til
liðsins ef Lakers eigi að ná árangri.
Þar á bæ ríkir óánægja með að hafa
misst af Kevin Garnett til Boston og
talið er að Lakers reyni að fá annað-
hvort Jermaine O‘Neal eða Ron Art-
est, leikmann Sacramento Kings.
dagur@dv.is
verða þeir samherjar?
Jermaine O‘Neal segir að hann muni
taka þeirri ákvörðun sem indiana Pacers
tekur um framtíð hans með jafnaðargeði.