Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Síða 30
miðvikudagur 8. ágúst 200730 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Í skemmtilegu viðtali Kolbrún-
ar Bergþórsdóttur við fyrrum for-
stjóra Glitnis, Bjarna Ármanns-
son, sem birtist í Blaðinu, sýndi
Bjarni á sér nýja, óþekkta hlið.
Maðurinn,
sem er búinn
að eyða síð-
ustu fimmtán
árunum í að
græða pen-
inga, segist
núna allt í
einu hafa
gert sér grein
fyrir því að peningar eru ekki allt.
Það er eins gott að hann fattaði
það ekki áður en hann hætti sem
bankastjóri! Nú rær hann á ára-
báti á Skorradalsvatni og nýtur
lífsins með fjölskyldunni.
n Árni Johnsen hefur ósjald-
an stjórnað hinum svokallaða
Brekkusöng á Þjóðhátíð í Eyjum,
þrátt fyrir að misjafnar sögur fari
af því hversu flinkur hljóðfæra-
leikari og söngvari hann er, og
gerði hann það einmitt nú í ár.
Þjóðhátíðargestir tóku ekkert sér-
staklega eftir því hversu lélegar
undirtektir Brekkusöngurinn fékk
fyrr en Hreimur í Landi og son-
um steig á svið strax að Brekku-
söngnum loknum. Þá tók hann
lagið Lífið er
yndislegt og
fyrst þá mátti
greina að um
alvöru fjölda-
söng væri
að ræða því
undirtektirn-
ar voru þvílíkt
myndarlegar
að annað eins hefur varla heyrst í
Herjólfsdal. Í þessu samhengi er
nauðsynlegt að benda á þá stað-
reynd að Hreimur er einmitt sá
sami ungi piltur og Árni Johnsen
gaf á kjammann um árið - en það
var einmitt árið sem Hreimur
söng þjóðhátíðarlagið Lífið er
yndislegt í fyrsta sinn.
n Það fór ekki fram hjá neinum
sem mætti á skemmtunina í Fjöl-
skyldugarðinum um verslunar-
mannahelgina að Laddi er og
verður uppáhald allra. Áhorfend-
ur fögnuðu einn sem allir þegar
hann sté á svið og fór í líki hvers
fjölskylduvinarins á fætur öðrum.
Það er ekki að undra að sýning
Ladda í Borgarleikhúsinu hafi
slegið í gegn
og 25 þúsund
áhorfendur
hafi keypt sig
inn á hana
því Laddi er
löngu orð-
inn hluti af
þjóðarsálinni
ásamt vinum
sínum Eiríki Fjalar, Saxa lækni,
Skúla rafvirkja, Elsu Lund, Þórði
húsverði og mörgum fleiri.
Hver er konan?
„Bæjarstjóri á Akureyri.“
Af hverju bæjarstjóri?
„Þetta kom þannig til að ég var í öðru sæti
eftir prófkjör sjálfstæðismanna í fyrra. Krist-
ján Þór, þáverandi bæjarstjóri, ákvað að fara á
þing og í kjölfarið sóttist ég eftir starfinu sem
ég síðan fékk í janúar síðastliðnum.“
Kemur starfið á óvart?
„Þetta er skemmtilegt starf. Það eru alltaf
ný og ný verkefni sem ég þarf að takast á við.
Það er mikil reynsla í þessu fólgin.“
Skiptir kyn máli í stjórnmálum?
„Nei. Ég held að það skipti engu máli.“
Hvað drífur þig áfram?
„Trúin á að gera eins vel og ég get. Það
skiptast á skin og skúrir í þessu starfi eins og
öllum krefjandi störfum. Ég legg mig fram um
að vera samkvæm sjálfri mér.“
Hvernig var verslunarmannahelgin?
„Hún var fín. Ég var með fullt hús af gestum
og naut dagskrárinnar í bænum með þeim.
Síðan fór ég í gönguferður. Ég ætlaði að
ganga á Súlur en það viðraði ekki nógu vel til
þess þannig að ég gekk bara í bæjarlandinu.“
Hvað var skemmtilegast um helgina?
„Að fylgjast með góðri dagskrá í bænum.
Þetta var mjög vel heppnuð fjölskylduhelgi
þótt veðrið hefði mátt vera betra.“
Hvort heldurðu með Þór eða KA?
„Ég held með þeim báðum. Þau hafa bæði
marga kosti til að bera.“
Hvað skiptir þig máli?
„Ég legg áherslu á að vera heiðarleg. Það
skiptir máli að koma fram við fólk af heiðar-
leika og sanngirni.“
Hvað gerir þú utan vinnunnar?
„Afskaplega lítið. Það er ekki mikill tími
utan hennar. En ég reyni að lesa. Eiginlega
les ég allt; skáldsögur, rit í félagsvísindum og
fleira. Þessa dagana er ég að lesa Huldukonur
í íslenskri
myndlist.
Mér finnst
hún alveg
frábær.
Síðan
fer ég gjarnan í gönguferðir og er með fjöl-
skyldunni. Við erum fjögur, börnin tvö eru níu
og ellefu ára.“
Í DAG Á MORGUN
HINN DAGINN
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xx
+16
3
xx
xx
xx
xx
xxxx
+11
3
xx
xx
xx
xx
xx
+15
5
xx
xx
xx
xx
+122
+123
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
xx
xx
xx
xxxx
+12
3
+15
3
+11
3
+13
6
+13
3
+12
3 +102
xx
xx
xx
xx
xx
+14
3
+12
2 xx
xx
xx
xx
+153
-xx
-xx
MAÐUR
DAGSINS
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DV Á DV.IS DV er
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr. á
mánuði
Fín Fjölskyldu-
helgi á Akureyri
Sigrún Björk Jakobsdóttir,
bæjarstjóri á akureyri, segist ánægð með liðna
helgi en hátíðin í bænum var sú önnur stærsta á
landinu. sigrún leggur áherslu á að koma fram
við fólk af heiðarleika og sanngirni. Hún hefur
gaman af gönguferðum og er alæta á bækur.
Það er fátt fegurra á góðviðrisdegi
en að fljóta niður fallega á meðfram
klettum og skógum í blautbúningi
og gúmmíbát. Flúðasiglingar eða
River Rafting eru líka alveg stór-
skemmtilegt sport og hentar jafnt
ofurhugum sem og veimiltítum því
allir ættu að fá eitthvað fyrir sinn
snúð. Í Hvítá býðst ofurhugunum að
stökkva út í ískalda jökulána af sex
metra háum kletti en hinir rólegri í
ferðinni geta bara leyft sér að standa
hjá og fylgjast með.
Það er bara eitthvað svo hrikalega
notalegt að hlamma sér í heita pott-
inn. Hvort sem um er að ræða á sól-
ríkum sumardegi með vinunum eða
á kvöldu vetrarkvöldi með elskhug-
anum. Það sem er ennþá betra er að
taka með sér svalandi drykkjarföng
og góða tónlist - sem þó er æskileg-
ast að geyma á bakkanum en ekki
ofan í pottinum. Ef farið er í heita
pottinn að kvöldi til sofnar maður
líka eins og smábarn og vaknar end-
urnærður.
Nýtum okkur síðustu dagana áður
en frostið og kuldinn fara að segja til
sín og skellum okkur í smágöngu-
ferð í góðra vina hópi og njótum
náttúrufegurðarinnar sem Ísland
hefur upp á að bjóða. Það eru marg-
ar fallegar gönguleiðir í Reykjavík,
svo sem í Laugardalnum og við
Nauthólsvíkina en auk þess getur
verið gaman að keyra aðeins út fyrir
bæjarmörkin til dæmis í Hvalfjörð-
inn eða örlítið lengra í Þrastaskóg-
inn.
Við mælum með...
...HeitUM potti í gArðinn
...FlúðASiglingU
niðUr Hvítá
...göngUFerð í náttúrUnni