Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Síða 4
fimmtudagur 6. september 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Nauðgari rannsakaður Sérstakir matsmenn verða fengnir til að meta sakhæfi nauðgarans Jóns Péturssonar: Matsmenn verða fengnir til að meta sakhæfi hins margdæmda nauðgara Jóns Péturssonar. Þetta samþykkti Héraðsdómur Reykja- víkur í gærmorgun. Jón var fundinn sekur um hrottafengna nauðgun á tveimur konum og fékk hann fimm ára fangelsisdóm fyrir. Sá dómur var kveðinn upp í júní á þessu ári. Nokkrum mánuðum áður, í okt- óber 2006, hafði Jón hlotið annan fimm ára dóm í héraðsdómi vegna nauðgunar og misþyrmingar á fyrr- verandi sambýliskonu sinni. Sá dómur var staðfestur af Hæstarétti í apríl. Í seinni dómnum sem kveð- inn var upp í júní segir að brot Jóns hafi verið sérlega hrottafengið en hann notaði meðal annars búrhníf og kjötöxi í ofbeldinu. Jón bar því við að slys sem hann varð fyrir í Egyptalandi fyrir átta árum hafi valdið skaða á framheila. Héraðsdómur Reykjavíkur sam- þykkti að rannsakað yrði sérstaklega í taugasálfræðilegu mati hvort hugs- anlegur framheilaskaði hefði getað valdið þessari hömlulausu hegðun hjá Jóni. Jón lenti í slysi í nóvem- ber árið 1999 þegar hann datt fram af hestvagni. Fallið hafði þær af- leiðingar að mænuvökvi lak úr nefi hans. Þrjár tölvuskannamyndir voru teknar og kom í ljós á fyrstu tveim- ur þeirra að loft hefði komist í heila Jóns. Á síðustu myndinni var þó allt orðið eðlilegt. Jón bar því við fyrir dómi að hegðun hans væri afleiðing af slysinu. Í beiðninni sem Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jóns, lagði fram segir að slysið hefði getað valdið hömluleysi þannig að Jón hafi ekki verið sjálfráður gerða sinna og því ósakhæfur. Þegar Jón hóf afplánun á Litla- Hrauni var hann í meðferð hjá geð- lækninum John Donne De Niet. Í bréfi sem John skrifaði 13. apríl kom fram að Jón hefði einkenni framheilaskaða. Til að greina slíkan skaða þarf sérstakt virknirit og taugasálfræðilegt mat. Fag- leg rök De Niets mæltu því með að ít- arlegri rannsókn yrði gerð á Jóni. Sak- sóknari vísaði þessum rökum á bug þar sem hann benti á að bréfið hefði þegar legið fyrir. Hann vísaði einnig til rannsóknar sem Tómas Zoëga gerði en þar kom fram að Jón væri hald- inn langvinnu alkóhólisma-fíkniheil- kenni. einar@dv.is Nauðgari Jón pétursson lenti í slysi fyrir átta árum. Hann ber því við að skaðinn sem hann varð fyrir hafi valdið breytingu á hegðun sinni. Heitir bara Landspítali Nafnið Landspítali - háskóla- sjúkrahús heyrir sögunni til vegna nýrra laga sem tóku gildi 1. september. Heitir hann núna Landspítali en skammstöfun hans stendur enn óbreytt, LSH. Frá því að sjúkrahúsin samein- uðust í Reykjavík árið 2000 hefur opinbert heiti sjúkrahússins ver- ið Landspítali - háskólasjúkra- hús. Hér eftir verður heitið hins vegar bara Landspítali. Björgvin G. Sigurðsson hyggst breyta lögum um fyrningu skulda til að koma í veg fyrir að varnarlaust fólk sé elt uppi með draugakröfum. Starfshópur á hans vegum vinnur einnig að breytingu á lögum um seðilgjöld og fit-kostnað. Í nýju frumvarpi eiga skuldir að fyrnast á fjórum árum þannig að þær fái ekki að ganga kaupum og sölum fólki til hrellingar. VIÐSKIPTARÁÐHERRA Í STRÍÐ VIÐ RUKKARA „Það þarf að girða fyrir þann mögu- leika að venjulegt og varnarlaust fólk sé hundelt fyrir kröfur sem annað hvort eru löngu greiddar eða ættu að vera fyrndar,“ segir Björgvin G. Sig- urðsson viðskiptaráðherra. DV greindi frá því í gær að Þor- gerður Elíasdóttir, húsmóðir í Grinda- vík, þarf nú að mæta til sýslumanns og halda uppi vörnum vegna skuldar sem Úlfar Nathanaelsson telur sig eiga rétt á að innheimta af henni. Skuldina greiddi Þorgerður fyrir mörgum árum og bar gæfu til þess að geyma kvittun og staðfestingu á því. Björgvin segir sitt brýnasta verk sem ráðherra neytendamála vera að taka á málum varðandi hvers konar óréttláta gjaldtöku á borð við seðil- gjöld, yfirdráttargjöld og innheimtu- kostnað. Í stríð við rukkara Björgvin hefur ákveðið að segja óréttlátum rukkurum stríð á hendur og segir að á borði viðskiptaráðuneyt- isins séu nokkur stór mál sem tengj- ast neytendum með beinum hætti. „Við erum að leggja lokahönd á frum- varp um fyrningarfrest á fjárhagskröf- um. Þar er gert að meginreglu að kröf- ur fyrnist á fjórum árum en gangi ekki kaupum og sölum árum saman fólki til hrellingar. Þetta er mikið réttlætis- mál sem við munum kynna sérstak- lega á næstu vikum,“ segir Björgvin. Einnig eru til skoðunar í ráðu- neytinu lög um gjaldþrotaskipti og greiðsluaðlögun. Björgvin segir að hér sé á ferðinni mikið réttlæt- is- og sanngirnismál. „Kjarni þess er að koma á úrræði til að aðstoða ein- staklinga sem eru í mjög alvarlegum greiðsluerfiðleikum. Hugsunin að baki þessu er sú að finna megi leið sem er ekki aðeins til hagsbóta fyrir einstakl- inga eða heimili í miklum greiðslu- erfiðleikum, heldur einnig fyrir lán- ardrottna og samfélagið í heild,“ segir Björgvin. Tekið á seðilgjöldum Björgvin hefur einnig ákveðið að skipa starfshóp sem á að gera úttekt á lögum sem varða viðskipti neytenda og banka. Starfshópurinn á einkum að beina sjónum sínum að gjöldum sem bankarnir leggja á viðskiptavini sína í rafrænum viðskiptum með kredit- og debetkortum, ásamt því að fara ítar- lega yfir forsendur bankanna fyrir svo- kölluðum fit-kostnaði og ýmiss konar seðilgjöldum. „Ef bankar beita fólk refsingum fyr- ir að fara yfir á tékkareikningum verður lagastoðin fyrir slíku að vera alveg skýr og óumdeild,“ segir Björgvin. Hann telur lagagrunninn fyrir þessari gjald- töku ekki vera nægilega skýran. „Það er ekki endilega rétt að allir bankarn- ir innheimti nákvæmlega sömu upp- hæð í tilvikum sem þessum.“ Starfs- hópurinn á að skila af sér skýrslu með drögum að lagafrumvarpi fyrir 1. jan- úar 2008. Í mál vegna draugakröfu Í tilviki Þorgerðar Elíasdóttur í Grindavík er um að ræða kröfu sem lögmaðurinn Úlfar Nathanaelsson keypti frá þroatbúi bókaútgáfu. Upp- haflega krafan var 17 þúsund krónur, en Þorgerður greiddi alls um 60 þús- und krónur eftir að krafan fór í inn- heimtu. Viðskipti Þorgerðar við bóka- útgáfuna áttu sér stað árið 1988, fyrir tæpum tuttugu árum síðan. Sjálfur er Úlfar Nathanaelsson hvað þekktastur fyrir að hafa keypt kröfur þrotabús tímaritsins Þjóðlífs á sínum tíma. Hann lögsótti fjölda fólks í köl- farið vegna skuldanna sem fyrst og fremst voru áskriftargjöld. Þorgerður segir að um hreina fjár- kúgun sé að ræða. Í viðtali í DV í gær segist hún ekki ætla að láta neitt slíkt yfir sig ganga. Hún ætlar að kæra Úlfar. F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð miðvikudagur 5. SEPTEmBEr 2007 dagBlaðið víSir 137. TBl. – 97. árg. – vErð kr. 235 >> Vilhelm Anton Jónsson heldur útgáfutónleika í kvöld en nýlega kom út platan The Midnight Circus sem er fyrsta sólóplata Villa. Auk þess hefur hann verið önnum kafinn við að taka upp barnaefni með Sveppa fyrir Stöð 2. Útgáfutónleikar Villa Hundelt fyrir Skuld Sem var löngu greidd ÚLFAR NATHANAELSSON ENN AÐ INNHEIMTA áSkRIFTIR AÐ þjóÐLíFI: Þorgerði elíasdóttur krossbrá þegar Úlfar nathanaelsson stefndi henni á dögunum til greiðslu áratuga gamallar kröfu. krafan er frá 1988 og hana greiddi Þorgerður með innheimtukostnaði og vöxtum á nokkrum árum. nú er hún rukkuð aftur. Úlfar keypti þrotabú tímaritsins Þjóðlífs 1991 og hóf að innheimta skuldir úr því með miklum innheimtukostnaði. nú er hann kominn á stjá aftur til að innheimta kröfur frá níunda áratug síðustu aldar. Sjá bls. 2 fréttir HÓTA AÐ HÆTTA HJÁ SÍMANUM>> Símtölunum rigndi yfir starfsfólk Símans eftir að auglýsingar byggðar á síðustu kvöldmáltíðinni hófu að birtast. Margir hótuðu að færa viðskipti sín annað. ANGI AF BAUGSMÁLUM>> Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, telur að tengsl kunni að vera milli Baugsmála og reglugerðar Björns Bjarnasonar um að færa saksóknara efnahagsbrota vald til að gefa út ákærur. Hann segir að svo virðist sem reglugerðin hafi verið undirbúin þegar málaferli um vanhæfi Haraldar Johannesen ríkislögreglu-stjóra stóðu yfir. fréttir DV Í Gær Þorgerður elíasdóttir sagði á því í dV í gær hvernig Úlfar Nathanaels on lögmaður eltir hana uppi vegna löngu greiddrar skuldar. Kvittun og staðfesting Þorgerður geymdi kvittanir vegna málsins. Hún hefði annars getað setið varnarlaus gegn kröfum Úlfars. SiGTryGGur Ari JóhANNSSoN blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Viðskiptaráðherra björgvin g. sigurðsson vill að komið verði í veg fyrir að gamlar skuldir geti gengið kaupum og sölum árum saman, varnarlausu fólki til hrellingar. Frumvarp um ráðuneytin Geir H. Haarde forsætis- ráðherra segir í bréfi til Guðna Ágústssonar í fyrradag að rík- isstjórnin muni í haust flytja frumvarp um breytingar á verka- skiptingu ráðuneyta. Þar með svarar Geir bréfi frá Guðna þar sem hann benti á að breytingar á stjórnarráðinu væru ekki einka- mál Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar. „Þingmönnum mun að sjálf- sögðu gefast eðlileg tækifæri til að fjalla um áform ríkisstjórnar- innar,“ segir Geir í bréfi sínu til Guðna. Óhöpp á Höfn Lögreglan á Höfn í Horna- firði hafði í nógu að snúast í fyrradag. Um miðjan daginn valt húsbíll um tuttugu kíló- metrum vestan við Jökulsárs- lón en vindhviða hafði feykt honum um koll. Í bílnum voru hjón frá Sviss og sluppu þau alveg ómeidd. Þau höfðu tekið bílinn á leigu og voru á leið í kringum landið. Um miðnættið í fyrrakvöld valt flutningabíll með tengi- vagn rétt austan við Reyni- velli. Mjög hvasst var á þess- um slóðum þegar óhappið varð en vindhviða kippti bílnum út af veginum. Hann náði þó að haldast á hjólun- um en þegar hann stöðvaðist féll hann á hliðina. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. Bruggaði og seldi landa Lögreglan á Hvolsvelli handtók rúmlega tvítugan mann í síðustu viku en hann hafði verið að brugga landa heima hjá sér. Að sögn lög- reglunnar fannst ekki mikið magn en hún hafði fengið ábendingar um að maðurinn væri að selja bruggið í bæn- um. Lögreglan gerði tvo lítra af landa upptæka auk tóla og tækja en hann var með efni í gerjun þegar lögreglu bar að dyrum. Maðurinn hefur ekki komið við sögu lögreglu áður. Við leitina notuðust lögreglumenn við fíkniefna- leitarhund en hann hafði ekki erindi sem erfiði í þeirri ferð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.