Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Side 14
fimmtudagur 6. september 200714 Jaðarsport DV
Hvenær prófaðir þú
brimbretti fyrst?
„Ég prófaði það fyrst haustið 2005 hér
á Íslandi og hef stundað það af og til
síðan.“
Hvað varð til þess að
þú prófaðir þetta sport?
„Mig hafði alltaf langað að prófa brim-
bretti. Ég var svolítið að leika mér á
snjóbretti og langaði að prófa þetta.
Svo kynntist ég strákum sem stund-
uðu þetta sport og ég eiginlega tróð
mér með þeim.“
Hversu oft ferðu á brimbretti?
„Ég hef tvisvar farið til útlanda til að
fara á brimbretti, bæði til Portúgal, þar
sem ég var í tvær vikur, og svo fór ég til
Filippseyja í tvo og hálfan mánuð. Ég
hef stundað þetta mest í útlöndum
hingað til en nú er ég nýbúin að fá mér
góðan galla sem ver mig gegn kuldan-
um í sjónum hér heima.“
Hvað er það við
brimbretti sem heillar?
„Krafturinn í öldunum og þessi skrítna
en skemmtilega tilfinning að vera úti
á sjónum á bretti. Ísland er ágætlega
fallið til brimbrettaiðkunar ef maður
er vel klæddur. Öldurnar eru reynd-
ar ekki miklar á sumrin, þegar maður
vildi helst vera á bretti, en það eru góð-
ar öldur á öðrum árstímum.“
Hefurðu orðið hrædd
á brimbretti?
„Mér brá einu sinni mjög mikið þegar
ég var á bretti í Filippseyjum. Allt í einu
sá ég eitthvað flykki við hliðina á mér
sem ég vissi ekki hvað var. Maður hugs-
ar nú stundum út í hákarla og slíkt en
sem betur fer hef ég alveg sloppið við
svoleiðis. Skepnan við hliðina á mér
reyndist vera risaskjaldbaka sem átti
leið þarna hjá. Mér var mikið létt þegar
ég áttaði mig á því. Þetta er í eina skipt-
ið sem ég hef orðið smeyk á bretti.“
Hvenær prófaðirm
þú kajak fyrst?
„Það eru sjö ár síðan ég prófaði
þetta fyrst.“
Hvað varð til þess að þú
prófaðir þetta sport?
„Ég var að vinna í útivistarbúð og
kynntist þar strák sem hafði ver-
ið að stunda þetta úti í Nepal og
víðar. Við fórum stundum á snjó-
bretti saman og svo ákvað ég að
prófa kajak. Í kjölfarið fór ég að
vinna við river rafting og þá fór ég
að stunda þetta meira.“
Hversu oft ferðu á kajak?
„Ég fer þegar ég hef tíma og tæki-
færi til. Ég hef reyndar svolítið
reynt að fara á kajak í útlöndum.
Ég hef tvisvar farið til Nepal og svo
fór ég einu sinni til Sikin, sem er
hluti af Indlandi.“
Hvað er það við
kajak sem heillar?
„Stór hluti af þessu er góður fé-
lagsskapur. Það er frábært að
vera úti í náttúrunni og djöflast í
straumhörðum ám.“
Hefurðu orðið
hræddur á kajak?
„Já, ég hef oft orðið skíthræddur.
Það hefur reyndar alltaf reddast.
Ég var að sigla niður kraftmikla á
í Nepal. Áin er í stóru gljúfri sem
ekki er hægt að komast upp úr
nema á ákveðnum stað. Við ætl-
uðum að taka okkur daginn í að
sigla niður ána en hún var erfiðari
en við bjuggumst við. Þegar kvölda
tók áttum við langt eftir og húktum
rennblautir í 3 gráðu hita á árbakk-
anum. Við vorum hvorki með mat
né klæði með okkur og reyndum
af veikum mætti að kveikja eld og
hlýja okkur. Nóttin var mjög lengi
að líða en við komumst svo upp úr
gljúfrinu daginn eftir. Þegar við hitt-
um burðarmennina, sem hjálpuðu
til við að bera dótið þriggja daga
leið til byggða, sögðu þeir okkur
að þeir hefðu séð tígrisdýr á gangi
þegar þeir leituðu að okkur kvöld-
ið áður. Það hefði ekki verið spenn-
andi að hitta það í gljúfrinu.“
Hvenær prófaðir
þú sjósund fyrst?
„Það hljóta að vera þrjú ár síðan.“
Hvað varð til þess að
þú prófaðir sjósund?
„Það voru nokkrir vinir mínir sem
plötuðu mig til þess að prófa þetta.
Ég fór fyrst í febrúar eða mars og lof-
aði sjálfum mér að prófa þetta aldrei
aftur. Svo prófaði ég aftur að sumri
til og upp frá því fór ég að gera þetta
reglulega.“
Hversu oft stundar þú sjósund?
„Við förum yfirleitt vikulega á sumr-
in á sunnudagsmorgnum og stund-
um oftar ef veður er gott. Á veturna
förum við sjaldnar enda getur sjór-
inn verið ansi kaldur. Þegar hann er
sem kaldastur þarf maður að passa
sig að vera ekki of lengi í sjónum í
einu og þarf að vera snöggur að
koma sér í fötin aftur.“
Hvað er það við sjósund
sem heillar þig?
„Þetta er svona þægilega hressandi.
Við teljum okkur trú um að þetta
sé gott fyrir líkama og sál. Við erum
auðvitað bara að leika okkur. Við
erum engir sjósundskappar og förum
aldrei langt út. Félagsskapurinn er
líka góður og okkur finnst þetta svona
heilbrigðara en að glápa á fótbolta og
drekka bjór. Þetta er líka alltaf dálítið
afrek í hvert sinn, sérstaklega ef sjór-
inn er kaldur.“
Hefurðu orðið hræddur?
„Nei. Við syndum út við golfvöll á
Seltjarnanesi og þar er mjög grunnt.
Við erum ekkert að synda langar
vegalengdir út á rúmsjó. Eina sem
hefur komið upp á er þegar ein-
um úr hópnum lá við yfirliði þegar
við vorum búnir að vera fulllengi í
sjónum. Það var nú ekki alvarlegra
en það.“
Þægilega hressandi
Guðni Thorlacius Jóhannesson,
lektor við Háskólann í Reykjavík.
Erlendur Þór Magnússon kajakræðari.
hef oft orðið skíthræddur
Mætti risaskjaldböku
Sólveig Pétursdóttir, 22 ára flugmaður.