Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Blaðsíða 15
DV Sport fimmtudagur 6. september 2007 15
Sport
Fimmtudagur 6. september 2007
sport@dv.is
Eiður byrjaður að æfa
ísland vann austurríki 91–77 í lokaleik sínum í B-deild evrópukeppni landsliða. Bls 16
Magnús Gylfason, þjálfari Vík-
ings, og Guðjón Þórðarsson, þjálf-
ari ÍA, voru í gær ávíttir og knatt-
spyrnudeildir liðanna dæmdar til
að greiða sekt er nemur tíu þúsund
krónum eftir að dómur aganefndar
KSÍ féll. Að mati nefndarinnar létu
þeir Magnús og Guðjón niðrandi orð
falla um frammistöðu dómaranna
eftir leiki liðanna í 14. umferð Lands-
bankadeildarinnar þar sem Víkingar
léku gegn Breiðabliki á Kópavogs-
velli og ÍA lék gegn KR í Frostaskjóli.
Tveir þjálfarar í viðbót, þeir Ól-
afur Kristjánsson og Leifur Garðars-
son, voru ákærðir af aga- og úrskurð-
arnefnd KSÍ en þeir voru einungis
áminntir og ekki kom til sektar vegna
ummæla þeirra.
Magnús Gylfason sagði eftir leik
Breiðabliks og Víkings að dómarinn
hafi verið „hreint út sagt lélegur“ og
hann hafi verið að „bíða eftir því að
reka mann út af“ en í leiknum voru
Víkingar einum fleiri þegar leikmað-
ur í liðinu var rekinn af velli fyrir litlar
sakir . Hann hefur áður verið dæmd-
ur af aganefndinni í sumar en hann
fékk leikbann eftir ummæli við dóm-
ara eftir leik ÍA og Víkings í 16 liða úr-
slitum í VISA bikarkeppni karla.
Guðjón Þórðarson sagði að „KR-
ingar hefðu verið þrettán inni á vell-
inum“ og átti þar með við að honum
fyndist dómarinn og annar aðstoðar-
dómarinn vera heldur hliðhollir KR-
ingum. „Mér finnst mjög furðulegt að
þeir hafi að jöfnu það sem ég sagði
og það sem Guðjón sagði. Hann vildi
meina að dómarinn hafi verið með
KR-ingum í liði en ég sagði að dóm-
arinn hefði verið að bíða eftir því að
gefa leikmanni Víkings rautt spjald.
Það er eðlismunur á þessum orð-
um og ég er ósásttur við þessa nið-
urstöðu aganefndar,“ segir Magnús
Gylfason.
dagur@dv.is
Þjálfarar í Landsbankadeild karla ávíttir og knattspyrnudeildunum gert að greiða sekt:
Magnús og Guðjón ávíttir af aganefnd
öruggur
sigur
Magnús Gylfason er ósáttur við að fá sömu refsingu og guðjón Þórðarson þar sem
eðlismunur sé á ummælum þeirra.
Enskir fá ekki séns