Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Síða 2
miðvikudagur 10. október 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Sektaður fyrir
ítrekuð brot
Birkir Magnússon, 24 ára, var
í gær dæmdur til að greiða tvö
hundruð þúsund krónur í sekt
til ríkissjóðs ella sæta fangelsi í
fjórtán daga. Sektina fær hann
fyrir ítrekuð umferðarlagabrot
en hann var stöðaður í febrúar
með tveggja daga millibili þar
sem hann ók réttindalaus. Birkir
var auk þess tekinn með 1,94
grömm af hassi í fórum sínum
þann 3. ágúst í sumar. Birkir var
fyrst dæmdur fyrir umferðarlaga-
brot árið 2001 en síðan þá hefur
hann margsinnis komist í kast
við lögin.
Sjoppu lokað
eftir snuffleit
Lögreglan á Selfossi fékk
nýlega ábendingu frá
foreldri í bænum um
að í söluturni
í verslunar-
miðstöðinni
Kjarnanum
á Selfossi
væri verið
að selja svo-
kallað „snuff“, eða
sænskt neftóbak, sem
smyglað er inn í landið. Í sam-
vinnu við tollgæslu á Selfossi
var gerð leit í söluturninum í
síðustu viku. Við leitina fund-
ust þrettán snuffdósir. Hald
var lagt á dósirnar og mun
sá sem bar ábyrgð á þeim
verða kærður fyrir ólögmæt-
an innflutning og sölu. Eftir
þessa aðgerð hefur rekstri
söluturnsins verið hætt, en
lögregla vill ekki leggja mat á
hvort þessi aðgerð hafi riðið
baggamuninn.
Vilja fá þyrlu til
Hornafjarðar
Bæjarstjórn Hornafjarðar vill
að björgunarþyrla verði á Horna-
fjarðarflugvelli. Í bókun sem var
gerð á síðasta fundi bæjarstjórn-
ar ítrekar bæjarstjórnin fyrri yfir-
lýsingar um þetta.
„Hornafjarðarflugvöllur er
mikilvægur hlekkur í björgun-
ar- og öryggisþjónustu í landinu.
Lendingarskilyrði eru góð og
flugvöllurinn hefur gegnt mik-
ilvægu hlutverki í björgunarað-
gerðum bæði til lands og sjávar
á Suður- og Austurlandi,“ segja
bæjarfulltrúar í bókuninni.
Færri fast-
eignakaup
Þinglýstir kaupsamningar
á höfuðborgarsvæðinu voru
211 í liðinni viku. Heildarvelt-
an var 7.349 milljónir króna
og meðalupphæð á samning
34,8 milljónir króna.
Þetta er fækkun frá vikunni
á undan þar sem 248 samn-
ingum var þinglýst og heildar-
veltan var 8.857 milljónir.
Rannsókn á kynferðisbrotum í Byrginu komin til ríkissaksóknara:
Níu mánaða rannsókn á enda
Guðmundur Jónsson, kenndur
við Byrgið, og eiginkona hans Helga
Haraldsdóttir höfðu bæði réttar-
stöðu sakborninga í yfirheyrslum hjá
lögreglunni á Selfossi í tengslum við
Byrgismálið svokallaða. Gögn vegna
rannsóknarinnar bárust ríkissak-
sóknara í gær. Um níu mánuðir eru
síðan rannsókn hófst en málið var
á vormánuðum endursent frá rík-
issaksóknara til frekari rannsóknar
sem þá þótti ábótavant.
Átta konur hafa lagt fram kæru á
hendur Guðmundi vegna kynferð-
isbrota. Þeirra á meðal er Ólöf Ósk
Erlendsdóttir, fyrrverandi vistmaður
Byrgisins.
Í samtali við blaðamann DV í ág-
úst sagði Ólöf að Helga hefði tekið
þátt í kynlífsathöfnum með sér og
Guðmundi. Magnús Einarsson, fyrr-
verandi starfsmaður Byrgisins, full-
yrti þá að misnotkun Guðmundar á
vistmönnum hefði verið með fullri
vitneskju eiginkonu hans. Magnús
sagði einnig að Guðmundur hefði
tekið sumar stúlkurnar í þjálfun sem
drottnara í lesbísku valdakynlífi með
Helgu.
Guðmundur keypti mikið af leðri í
nafni Byrgisins hjá fyrirtækinu Hvítl-
ist. Efnahagsbrotadeild taldi vegna
umfangs viðskiptanna að leðuriðja
væri starfrækt á meðferðarstofnun-
inni. Í DV í mars segir Magnús hins
vegar að Guðmundur hafi keypt
skinnin til að sauma leðurgrímur og
svipur sem hann notaði í kynlífsleikj-
um sínum með konunum í Byrginu.
Allar eignir Guðmundar, að verð-
mæti tæpar 38 milljónir króna, voru
kyrrsettar af efnahagsbrotadeild rík-
islögreglustjóra á sínum tíma til að
koma í veg fyrir að hann geti fært þær
yfir á aðrar kennitölur áður en rann-
sókn lyki.
Hjá efnahagsbrotadeildinni feng-
ust þær upplýsingar einar að mál-
ið væri í rannsókn en ekkert annað
væri látið uppi að svo stöddu. Ekki
fékkst uppgefið hvort séð væri fram á
hvenær þeirri rannsókn myndi ljúka
en vonast er til þess að það verði sem
fyrst. erla@dv.is
Guðmundur Jónsson Átta konur hafa kært hann fyrir kynferðislega misbeitingu.
Íbúum á Hringbraut 121 var í gær boðin áfallahjálp í kjölfar morðsins á Borgþóri
Gústafssyni á sunnudag. Enginn íbúi í húsinu þáði hjálpina en fólkið er engu að síð-
ur skelkað. Lögregla hefur ekki gefið upp hvort játning liggi fyrir í málinu. Þórarinn
Kr. Gíslason hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á mánudag.
ÍBÚAR AFÞAKKA
ÁFALLAHJÁLPINA
Íbúum á Hringbraut 121 var í gær
boðin áfallahjálp í kjölfar morðsins
á Borgþóri Gústafssyni sem framið
var í íbúð hans í húsinu á sunnu-
dag. Fæstir íbúa komu til dyra þegar
prestur og fulltrúar Félagsþjónustu
Reykjavíkurborgar vitjuðu þeirra.
Tveir svöruðu þegar dyrabjöllu var
hringt og afþökkuðu alla hjálp.
Þeir íbúar sem rætt hefur verið
við eru skelkaðir eftir atburði helg-
arinnar. Tilkynnt var um að Borg-
þór lægi meðvitundarlaus í blóði
sínu um klukkan 13.30 á sunnu-
daginn. Seinna um daginn var Þór-
arinn Kr. Gíslason handjárnaður og
leiddur á brott af lögreglu. Þórarinn
býr í þarnæstu íbúð við Borgþór.
Einn þeirra sem blaðamaður
heimsótti sagði að búið væri að yf-
irheyra sig, hann væri saklaus. Lög-
regla hefur ekki gefið upp hvort
játning liggi fyrir. Þórarinn hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarðhald
til 15. október.
Í framhaldi af Vatnsstíg
Íbúðirnar í húsinu við Hring-
braut 121 eru allar í eigu Félags-
bústaða Reykjavíkurborgar. Mikill
meirihluti íbúanna á við geðrask-
anir að stríða og margir hverjir
eiga einnig í stríði við áfengissýki
og aðrar fíknir.
Húsnæðið á Hringbraut tók
við af íbúðum við Vatnsstíg 11 í
Reykjavík, þar sem fólk í þessari
stöðu átti þess kost að leigja íbúð-
ir. Íbúarnir leigja íbúðirnar af Fé-
lagsbústöðum og leigusamning-
arnir eru með hefðbundnu sniði,
að öðru leyti en því að fulltrúi
frá Félagsbústöðum kemur á sex
mánaða fresti og athugar ástand-
ið á fasteignunum.
Þurfum að bregðast við
Sigursteinn Másson, formað-
ur Öryrkjabandalags Íslands, seg-
ir mikilvægt að íslenskt samfé-
lag tileinki sér það sem kallað er
snemmtæk íhlutun. „Ég get nátt-
úrulega ekki tjáð mig um þetta
einstaka atvik. Hitt er annað mál
að með snemmtækri íhlutun er
hægt að nálgast vanda eins og
þennan áður en svona fer,“ segir
Sigursteinn.
Hann segir að í þessu felist að
heilbrigðiskerfið, almannatrygg-
ingar, félagsþjónusta og önn-
ur kerfi samfélagsins vinni kerf-
isbundið saman. „Þetta þýðir til
dæmis það að þegar fólk veikist
og er vikum saman frá vinnu eða
skóla fer í gang ákveðið viðbragð.
Þá er reynt að meta hvað þarf að
gera og hvers konar þjónustu og
stuðning þarf að veita. Þetta verð-
ur til þess að við erum ekki sífellt
að bregðast við afleiðingunum,“
segir hann.
Veikir einstaklingar
„Við höfum talað um að hér
þurfi að koma á laggirnar per-
sónulegri liðveislu, þannig að
hægt sé að koma í veg fyrir svona
harmleiki,“ segir Sveinn Magnús-
son, framkvæmdastjóri Geðhjálp-
ar. Hann segir að fleiri dæmi megi
rekja en voðaatburð síðastliðinnar
helgar. „Hér má nefna aldraða og
geðsjúka sem finnast heima hjá
sér látnir og hafa kannski legið þar
svo dögum og vikum skiptir. Hvað
er eiginlega í gangi hjá okkur,“ spyr
Sveinn.
Hann segir að jafnvel þótt sumt
fólk vilji ekki þiggja þá hjálp sem í
boði er sé möguleikinn á að veita
hjálp ávallt fyrir hendi. „Sumt fólk
er bara dæmt aumingjar af samfé-
laginu og þá höfum við ekki lengur
heimild til þess að hjálpa því.“
Hann segir að stundum þegar
minnst sé á snemmtæku úrræðin
séu svörin á þá leið að persónu-
réttindi fólks séu brotin með því
að þröngva upp á það hjálpinni.
„Þetta snýst ekkert um það. Þetta
eru veikir einstaklingar.“
SiGtryGGur Ari JóhAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
„Sumt fólk er bara dæmt aumingjar af sam-
félaginu og þá höfum við ekki lengur heim-
ild til þess að hjálpa því.“
erfiður
nágranni
barinn til bana
ógæfumaður barinn til bana á heimili sínu við hringbraut:
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjudagur 9. október 2007 dagblaðið vísir 161. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
FRÉTTIR
nágrannar mannsins sem lést eftir barsmíðar á heimili sínu við Hringbraut höfðu lengi kvartað undan hávaða og látum. félagsbústaðir reyndu að fá borgþór borinn út fyrir skemmstu en tókst ekki. Maðurinn var í óreglu og illa á sig kominn.
„Ég vildi gjarnan hjálpa honum en vissi ekki hvað
ég gat gert,“ segir georg Viðar björnsson
húsvörður. Sjá bls. 2.
>> Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari
kvenna í fótbolta, er í þjálfaranámi með Roy
Keane. Að loknu námi verður hann mennt-
aðasti starfandi þjálfari í landinu, kominn
með UEFA-PRO gráðuna. Eini Íslendingurinn
sem er með hana í dag er Teitur Þórðarson.
Hálfgert
trúboð
>> „Ég er svo sannarlega forfallinn
aðdáandi og búinn að vera það í
þó nokkurn tíma,“ segir
Þröstur Helgason. Hann hefur
skrif ð bók um tónlistar-
manninn Tom Waits sem
hann birtir endurgjaldslaust á
heimasíðu sinni. Hann segir
skrifin hálfgert trúboð.
í námi með
roy keane
>> Ólöf Ósk Erlendsdóttir, sem
kærði Guðmund Jónsson í Byrginu
fyrir kynferðisbrot og sætir nú
ákæru fyrir að kefla og pynta mann,
er farin að hjálpa til í sunnudaga-
skóla. Hún lýsti sig seka í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær af ákæru
um húsbrot ásamt fjórum öðrum.
Snúa bökuM SaMan
SjálfStæðiSMenn bundu enda á
deilur Sínar uM reykjaVik energy
inVeSt og ákVáðu að Selja fÉlagið.
borgarfulltrúarnir Sex SeM deildu á
VilHjálM Þ. VilHjálMSSon borgarStjóra
Hafa tekið Hann í Sátt. kauprÉttar-
SaMningar Við StarfSMenn og
Stjórnendur ollu Mikilli óánægju.
dV birtir nöfn allra Þeirra SeM áttu
uppHaflega að fá kauprÉtt.
>> Tugir manna bíða
við dyrnar á Góða
hirðinum hvern dag
eftir að búðin verði
opnuð til að missa
ekki af því nýjasta
sem er í boði. DV tók
nokkra nokkra
þeirra sem stóðu í
biðröðinni tali.
bíða í
röðuM
Fólk
Hjálpar
til í kirkju
ÞriðJudAGinn 9. oKtóBer.
Vettvangur voðaverksins Lögregla hefur
bæði innsiglað íbúð borgþórs gústafssonar og
Þórarins kr. gíslasonar við Hringbraut 121.
Þórarinn situr í gæsluvarðhaldi til mánudags.
hringbraut 121 allar
íbúðirnar í húsinu eru í eigu
Félagsbústaða reykjvíkurborg-
ar. Húsið tók við hlutverki
vatnsstígs 11, þar sem fólk með
geðraskanir og áfengissýki fékk
að leigja íbúðir.