Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Qupperneq 6
Óánægja og reiði borgarstjórnar-
flokks sjálfstæðismanna beinist að
Guðmundi Þóroddssyni, forstjóra
Reykjavik Energy Invest, REI, og
að hluta til að Bjarna Ármanns-
syni, stjórnarformanni REI. Borg-
arfulltrúarnir kenna Guðmundi um
þann trúnaðarbrest sem varð milli
þeirra og lykilstjórnenda Orkuveitu
Reykjavíkur í aðdraganda samein-
ingar REI og Geysis Green Energy.
Samkvæmt heimildum DV vilja
borgarfulltrúarnir reka Guðmund
úr starfi forstjóra Orkuveitu Reykja-
víkur við fyrsta tækifæri.
Guðmundur yrði þá annar mað-
urinn sem víkur sæti eftir að reiði
greip um sig í samfélaginu vegna
vinnubragða við sameininguna
og ekki síst umdeildra kauprétt-
arsamninga lykilstarfsmanna REI
og Orkuveitunnar. Borgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins sættust á að
Haukur Leósson, þeirra fulltrúi í
stjórn Orkuveitunnar og REI, viki
sæti og í hans stað verður skipaður
einhver borgarfulltrúanna. Hauki
og Guðmundi hefur síðustu daga
einna helst verið kennt um upplýs-
ingaskort og samskiptaleysi í að-
draganda sameiningarinnar.
Samskiptaleysi stjórnenda
Mikil óánægja hefur verið und-
anfarið innan borgarstjórnar með
vinnubrögð borgarstjórans Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar og for-
manns borgarráðs, Björns Inga
Hrafnssonar. Vilhjálmur naut um
skeið ekki trausts eigin borgarfull-
trúa og Björn Ingi hefur ekki unn-
ið sér inn miklar vinsældir innan
Framsóknarflokksins.
Vilhjálmur hef-
ur náð sátt-
um í sínum
hópi og
borgar-
stjórn-
arflokkur hans vísar ábyrgðinni á
stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur.
Allir borgarfulltrúar hans telja mik-
ilvægt að kanna til hlítar framferði
stjórnenda í aðdraganda samein-
ingar REI og Geysis Green Energy.
Jafnframt er Hauki vikið úr stjórn
Orkuveitunnar sökum samskipta-
leysis.
Sama staða
Það vekur athygli að á meðan
Haukur er látinn víkja bæði úr stjórn
Orkuveitunnar og REI er Björn Ingi
Hrafnsson, formaður borgarráðs,
sagður njóta fyllsta trausts í meiri-
hlutasamstarfinu við sjálfstæðis-
menn í borginni. Samt er aðkoma
Hauks og Björns Inga að sameining-
unni nákvæmlega sú sama og báðir
hafa þeir komið að sömu ákvörðun-
um málsins. Báðir sitja þeir í stjórn
Orkuveitunnar og í stjórn REI.
Í moldviðri undanfarinna daga
hafa margar kenningar farið á kreik.
Viðmælendur DV hafa bent á hversu
margir þræðir málsins liggi til Fram-
sóknarflokksins. Bjarni Ármanns-
son og Árni Magnússon, fyrrver-
andi ráðherra Framsóknarflokksins,
eru tengdir saman í gegnum Glitni
og Björn Ingi situr í stjórn REI sem
setti saman listann yfir þá sem áttu
að fá að kaupa hlutabréf í REI á sér-
kjörum. Hér verður ekki lagt mat á
sannleiksgildi ofangreindra kenn-
inga, aðeins vísað til þess að þær
hafa litað umræðu þeirra
sem standa í málinu.
Borgarstjóri sakaður um lygar
Hvorki Guðmundur né Björn Ingi
kannast við trúnaðarbrest milli lykil-
starfsmanna Orkuveitunnar og borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, eins
og sjálfstæðismenn fullyrtu að væri
á blaðamannafundi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins. Guðmundur og
Björn Ingi eru báðir hissa á borgar-
stjóranum og báðir segja þeir borg-
arstjóra hafa haft allar upplýsing-
ar um sameininguna, þar á meðal
um kaupréttarsamninga. Undir það
tekur einnig Svandís Svavarsdótt-
ir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar,
sem sakar borgarstjóra annað hvort
um að segja ósatt eða klaufalega frá.
Öll þrjú sátu eigendafund Orkuveit-
unnar þegar sameiningin var kynnt.
Þau Gunnar Sigurðsson, stjórnar-
maður hjá Orkuveitunni, Sigrún Elsa
Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar, og Vilhjálmur borgar-
stjóri hafna því öll að listi yfir þá sem
fengju kaupréttarsamningana hafi
verið kynntur á fundinum. Öll þrjú
sátu einnig umræddan fund. Hinn
síðastnefndi er verulega ósáttur við
að því sé haldið fram að hann segi
ósatt um vitneskju sína um listann.
„Ég sá aldrei neinn endanlegan lista
yfir þessa aðila og slíkur listi var ekki
lagður fram á eigendafundi Orku-
veitunnar. Ég var búinn að heyra af
því að einhverjir starfsmenn fengju
þennan rétt en það er alveg fráleitt
að halda uppi ósannsögli um það
að ég hafi vitað um eða séð þennan
lista,“ segir Vilhjálmur.
Heitt undir Bjarna
Samkvæmt heim-
ildum DV er einnig
vilji til þess inn-
an borgar-
stjórnar-
flokks sjálfstæðismanna að losna við
Bjarna Ármannsson frá REI en til
þess hefur borgin ekki völd sökum
þess hversu mikil völd Geysir Green
Energy hefur í hinu nýja sameinaða
félagi. Sú tillaga var einnig rædd að
afnema seinni kauprétt Bjarna í REI.
Þrátt fyrir meirihlutaeign í REI hefur
borgin hins vegar minnihluta í stjórn
sameinaða fyrirtækisins.
Heimildarmenn DV staðhæfa
jafnframt að meirihluti borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins ráðist gegn
því að staðið verði við samkomulag
flokksins við Björn Inga þess efnis
að hann taki sæti stjórnarformanns
Orkuveitunnar í vor.
Hermt er að Guðlaugur Þór Þórð-
arson heilbrigðisráðherra hafi var-
að Vilhjálm borgarstjóra eindregið
við ráðningu Bjarna Ármannsson-
ar í stöðu stjórnarformanns REI.
Vilhjálmur fór ekki að hans ráðum
og kaupréttarsamningar Bjarna við
ráðninguna hafa skapað usla fyrir
vikið.
Treystir báðum
Aðspurður segist Björn Ingi bera
traust til bæði Bjarna og Guðmund-
ar til áframhaldandi starfa. Hann
segir ekki rétt að kenna Hauki Leós-
syni einum um upplýsingaskort og
samskiptaleysi. „Það eru margir sem
bera ábyrgð og ég er einn þeirra og
hef aldrei skorast undan því. Enda
hef ég talið að þessi samruni sé mjög
gott mál og það muni sanna sig á
næstunni. Ég á ekki von á öðru en að
meirihlutasamstarfið haldi út kjör-
tímabilið,“ segir Björn Ingi.
Hegðun stjórnenda rannsökuð
Allir borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins segja mikilvægt að
framferði stjórnenda Orkuveitu
Reykjavíkur verði skoðað til hlítar í
aðdraganda sameiningarinnar. Full-
trúarnir hafa lýst því yfir að vinnu-
brögð stjórnendanna hafi ekki verið
góð í málinu.
Samtök fjárfesta tóku undir gagn-
rýnina í gær. Í ályktun samtakanna
kemur fram að skiljanlegt sé að al-
menn- ingi misbjóði þeir
gjörningar sem
stjórnendur
Reykjavik
En-
ergy Invest viðhöfðu í síðustu viku.
Jafnframt er þess getið að augljóst
sé að skortur á upplýsingagjöf hafi
valdið þeim usla sem varð raunin.
Efast um lögmæti
Sameinaður minnihluti borgar-
stjórnar krafðist aukaborgarstjórn-
arfundar í dag til að fara ítarlega
yfir aðdraganda og vinnubrögðin
í sameiningu Reykjavik Energy In-
vest, REI, og Geysis Green Energy.
Jafnframt vill minnihlutinn ræða til
hlítar áætlanir borgarstjórnarflokks
sjálfstæðismanna að selja hlut Orku-
veitu Reykjavíkur í REI tafarlaust.
Sigrún Elsa Smáradóttir, borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar, seg-
ir spurningar sem engin svör hafa
fengist við hlaðast upp. Hún telur
mikilvægt að fá upp á yfirborðið allt
um aðdraganda sameiningarinn-
ar. „Við setjum til dæmis spurninga-
merki við hvort það hafi verið lög-
legur gjörningur að bjóða Bjarna og
Jóni Diðriki kaupréttarsamningana.
Við viljum líka vita hvernig gengi fyr-
irtækisins var kokkað upp því gengið
virðist ekki hafa verið rétt metið þar
sem það hækkaði með mjög dram-
atískum hætti á innan við mánuði,“
segir Sigrún Elsa.
„Heilt yfir þarf að fá alfarið upp
á borðið hvernig gullæðið greip um
sig hjá fyrirtækinu. Fá þarf á hreint
hver bað um hvað og hvenær, hverj-
um bauðst hvað og hvenær og hvað
menn vissu á hvaða tímapunkti. Mér
finnst sú staða ólíðandi að nú eigi að
fórna fjármunum borgarbúa til að
meirihlutinn haldi völdum og sætta
eitthvert stuttbuxnalið í Sjálfstæðis-
flokknum.“
Heimta afsögn
Veruleg óánægja hefur gripið um
sig meðal almennings vegna sam-
einingarinnar og ekki síst kaupréttar-
samninganna sem gera átti. Svandís
telur eðlilegast að bæði Björn Ingi
og Vilhjálmur víki úr borgarstjórn
og axli ábyrgð á gjörðum sínum. Það
vill einnig Magnús Þór Hafsteinsson,
fyrrverandi þingmaður Frjálslynda
flokksins.
Bjarni Harðarson, flokksbróðir
Björns Inga, birti einnig þá skoðun
sína í gær. Hann segir tvímenning-
ana hafa orðið uppvísa að spillingu
og óheiðarlegu gróðabralli með eig-
ur almennings. „Það er ekki hægt að
skjóta sér undan þeirri umræðu og
ábyrgð sinni með því að tala um
eitthvað annað. Ég fullyrði
að þeir menn sem
að öllu
miðvikudagur 10. október 20076 Fréttir DV
Vilja reka Guðmund
Guðmundi Þóroddssyni, starfandi forstjóra REI, verður vikið úr
starfi hjá Orkuveitu Reykjavíkur fljótlega, samkvæmt heimildum
DV. Hann er sakaður um trúnaðarbrest og að hafa ekki sinnt hlut-
verki sínu við upplýsingagjöf til borgarfulltrúa. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri var í gær sakaður um lygar.
TrauSTi HafSTEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
fær annað tækifæri Þrátt fyrir
að samherjar vilhjálms vilhjálms-
sonar borgarstjóra hafi verið æfir
út í hann hafa þeir nú ákveðið að
standa með honum eftir að
samkomulag náðist um að hlutur
orkuveitunnar í rei yrði seldur.
nýtur trausts Þrátt fyrir að björn ingi
Hrafnsson hafi verið samstiga guðmundi
Þóroddssyni segjast sjálfstæðismenn treysta
honum. Sumir vilja þó ekki að hann verði
stjórnarformaður orkuveitunnar á næsta ári.