Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Page 8
miðvikudagur 10. október 20078 Fréttir DV
Forseti Írans, Mahmoud Ahmad-
inejad, liggur ekki á skoðunum sín-
um og margt þess sem hann lætur
sér um munn fara virðist sérstak-
lega hugsað til þess að vekja deilur
og hörð viðbrögð. Í lok síðasta mán-
aðar var forsetinn staddur í New
York í Bandaríkjunum vegna alls-
herjarþings Sameinuðu þjóðanna.
Meðan á dvöl hans stóð þáði hann
boð um að halda fyrirlestur og svara
spurningum í Kólumbíuháskóla.
Í fyrirlestri sínum sagði Ahmad-
inejad meðal annars að samkyn-
hneigð væri óþekkt fyrirbæri í landi
sínu og þar fyrirfyndist ekki fólk sem
hneigðist til eigin kyns. Nú kann vel
að vera að trúin flytji fjöll og hann sé
í raun þess fullviss að fullyrðing hans
þoli nánari skoðun og Íran njóti sér-
stöðu meðal þjóða heims í því tilliti.
Að margra mati eru fullyrðingar for-
setans í hróplegu ósamræmi við þá
staðreynd að lögum samkvæmt er
refsing fyrir samkynhneigð karla í
landinu dauðadómur og til dæmis
voru tveir menn fundnir sekir um
samkynhneigð árið 2005 og teknir
af lífi. Í aftökum í Íran í júlí á þessu
ári voru nokkrir þeirra líflátnu sak-
aðir um að vera samkynhneigðir.
Samkynhneigð kvenna er ekki litin
eins alvarlegum augum. Kona get-
ur brotið af sér allt að þrisvar sinn-
Kona getur brotið af
sér allt að þrisvar sinn-
um og fyrir hvert skipti
er refsingin hundrað
svipuhögg. Viðurlög
við fjórða broti eru
dauðadómur.
Samkynhneigð fyrirfinnst ekki í Íran. Þar
búa engir samkynhneigðir einstaklingar.
Svo segir forseti landsins, Mahmoud Ahm-
adinejad. Það skýtur því skökku við að lög
landsins kveði á um að dauðarefsing liggi
við samkynhneigð karla. Á sama tíma og
samkynhneigð þekkist ekki fjölgar „kyn-
leiðréttingaraðgerðum“ í Íran.
um og fyrir hvert skipti er refsingin
hundrað svipuhögg. Viðurlög við
fjórða broti eru dauðadómur.
Kynskiptaaðgerð afleiðing
sjúkdóms
Fyrir um það bil fjörutíu árum
skrifaði Ruholla Khomeini, æðsti-
klerkur, um það sem hann kall-
aði „nýjan“ sjúkdóm, sem lýsti sér
þannig að kyn viðkomandi sjúk-
linga var í röngum líkama. Ekki er
loku fyrir það skotið að Kohmeini
hafi verið fyrstur íslamskra fræði-
manna til að vekja máls á aðgerð
sem fól í sér leiðréttingu á kyni.
Eftir að Khomeini komst til valda
og varð andlegur leiðtogi írönsku
þjóðarinnar árið 1979, úrskurðaði
hann að slíkar aðgerðir yrðu heim-
ilar og var sá úrskurður staðfestur
af núverandi andlegum leiðtoga
Írans, Ali Kahmenei. Sú ákvörð-
un að heimila aðgerðir til kynleið-
réttingar, á þeirri forsendu að um
lækningu á sjúkdómi sé að ræða,
gerir ríkisstjórn landsins kleift að
fordæma samkynhneigð og ganga
jafnvel enn lengra og fullyrða, eins
og forseti landsins gerir, að hún fyr-
irfinnist ekki í landinu.
Þó ríkisstjórn Írans hafi ekki hátt
um afstöðu sína til „sjúkdómsins“
og samþykki lækningu hans, hafa
styrkir hins opinbera vegna að-
gerða af þeim toga hækkað síðan
Mahmoud Ahmadinejad tók við
forsetaembætti árið 2005. Ríkis-
stjórnin styrkir þann sem fer í að-
gerð um sem nemur tæplega tvö
hundruð og áttatíu þúsund íslensk-
um krónum og fjármagnar auk þess
hormónameðferð. En þá er ekki allt
upp talið því einnig býður hún upp
á lán skyldi vilji viðkomandi standa
til þess að hefja eigin rekstur eða
opna fyrirtæki. Lánið nemur allt að
þrjú hundruð og fjörutíu þúsund
krónum.
Næstflestar aðgerðir
Í heiminum eru aðeins í Taílandi
gerðar fleiri aðgerðir en í Íran. Sam-
kvæmt opinberum tölum í Íran hafa
á milli fimmtán- og tuttugu þúsund
manns látið leiðrétta kyn sitt, en
óopinberlega er áætlað að fjöldinn
sé allt að eitt hundrað og fimmtíu
þúsund. Einn helsti sérfræðingur
Írans í kynleiðréttingaraðgerðum
er læknirinn Bahram Mirjalali. Að
hans sögn er algengt að evrópsk-
ur læknir framkvæmi kannski um
fjörutíu aðgerðir á áratug. Mir-
jalali framkvæmdi hins vegar þrjú
hundruð og tuttugu aðgerðir á tólf
ára tímabili.
Í samfélagi eins og Íran þar sem
karlmenn eru hærra skrifaðir en
konur eru miklir fordómar gagn-
vart hverjum þeim karlmanni sem
vill verða kona. Að sama skapi er
borin virðing fyrir konu sem kýs
að klæðast eins og maður og hún
álitin sterk persóna. Að vera kona
í Íran er sennilega ekki mjög ein-
falt og tilvera kvenna takmarkast
verulega af samfélagshefðum og
lagaákvæðum. Flestar konur flytj-
ast undan yfirvaldi föður síns til
þess eins að verða undir vald eig-
inmanns síns settar. Mehran var
tuttugu og fjögurra ára þegar hann
ákvað að láta leiðrétta kyn sitt. Eftir
aðgerðina tók hann sér nafnið Mar-
yam og lifði sem kona í einhvern
tíma. Á endanum gafst hún upp;
henni fannst ógerlegt að glíma við
höftin sem hvíldu á konum í hinu
íslamska Íran og lýsti yfir löngun
til að undirgangast aðra aðgerð og
verða karlmaður á ný.
KolbeiNN þorsteiNssoN
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Mahmoud Ahmadinejad
Forseti Írans stendur á því fastar
en fótunum að samkynhneigð
þekkist ekki í Íran.
EngiR HOMMAR BARA VEiKi