Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Side 9
DV Fréttir miðvikudagur 10. október 2007 9
Tyrknesk yfirvöld hafa ávallt
hafnað þeirri skoðun að fjölda-
morðin á Armenum í upphafi tut-
tugustu aldarinnar skuli skilgreind
sem þjóðarmorð. Nú er til umfjöll-
unar hjá Bandaríkjaþingi frumvarp
að lögum um þjóðarmorð, en sam-
kvæmt því yrðu fjöldamorðin sem
framin voru á Armenum skilgreind
sem þjóðarmorð. Í bréfi sem Ab-
dullah Gul forseti Tyrklands sendi
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta sagði hann að hlyti frumvarp-
ið samþykki myndi það hafa í för
með sér „alvarleg vandamál“. Á ár-
unum milli 1915 og 1917 lést um
ein og hálf milljón Armena í fjölda-
morðum Ottóman-veldisins. Tyrk-
ir hafa viðurkennt að margir hafi
fallið, en það hafi verið afleiðing
vopnaðra átaka í Tyrklandi á tímum
fyrri heimsstyrjaldarinnar. Armen-
ar hafa barist fyrir því að fá morð-
in viðurkennd sem þjóðarmorð og
hafa nokkur lönd gert það.
Abdullah Gul sagði Bush forseta
Bandaríkjanna að gagnkvæm sam-
skipti landanna myndu bíða mik-
inn skaða yrði frumvarpið samþykkt.
Þingmaðurinn Koksal Toptan var-
aði við því að það gæti tekið ára-
tugi að bæta skaðann sem af hlytist
að ógleymdum viðbrögðum tyrk-
nesks almennings. Aðrir leiðtogar
í Tyrklandi ýjuðu að því að Banda-
ríkjamönnum yrðu meinuð afnot af
herstöðvum sem væru þeim nauð-
synlegar til flutninga vegna átakanna
í Afganistan og Írak.
Svipuðum frumvörpum var hafn-
að af stjórnmálamönnum í Banda-
ríkjunum árin 2000 og 2005. Tyrkir
slitu hernaðarsamstarfi við Frakka
á síðasta ári vegna viðhorfa þeirra til
fjöldamorðanna.
Ein og hálf milljón
Er Ekki þjóðarmorð
Margir Armenar féllu, en samt ekki um þjóðarmorð að ræða:
Kona og mynd
Faðir konunnar ásamt bræðrum sínum
sem urðu fórnarlömb fjöldamorðanna.
Ayatollah Khomeini æðstiklerkur
vakti máls á „nýjum“ sjúkdómi fyrir um
fjörutíu árum.
Lýtaaðgerðir í Íran
Í lokin má geta þess að lýtaað-
gerðir njóta vaxandi vinsælda í Íran.
Algengastar eru aðgerðir á nefi,
ungt fólk vill losna við krókinn sem
er einkennandi fyrir andlitsfall stórs
hluta þjóðarinnar. Fyrst um sinn
voru íranskar konur í meirihluta
þeirra sem gengust undir aðgerðir
á andliti. Það var á þeim tíma þeg-
ar strangar reglur giltu um klæðn-
að þeirra og samkvæmt íslömskum
sið var andlitið það eina sem sást.
Írönskum konum var umhugað að
það litla sem sást af þeim liti vel út.
Hin síðari ár hafa ungir karlmenn
fylgt í kjölfarið þó forsendur þeirra
séu af öðrum toga. Nýjasta æðið
meðal írönsku kvenþjóðarinnar er
brjóstastækkun og hrukkur í kring-
um augu eru illa séðar og skulu
fjarlægðar. Lýtalæknar og eigend-
ur snyrtistofa hafa himin höndum
tekið og sjá fram á gósentíð á sama
tíma og byltingarvörðurinn í land-
inu reynir að sporna við vestræn-
um viðhorfum og áhrifum í klæða-
burði.
Aftaka í Íran 2005
Sakargiftir ungu mannanna
tveggja voru samkynhneigð.
Höfuðborg teheran
Opinbert tungumál Persneska
Stjórnarfar Íslamskt lýðveldi
Andlegur leiðtogi ali khamenei, æðstiklerkur
Forseti mahmoud ahmadinejad
Stærð 1.648.195 ferkílómetrar
Fólksfjöldi 70.472.846
Íran
Öryggisverðir í einkaþjónustu
urðu tveimur konum að bana í Bag-
dad, höfuðborg Íraks, í gær. Atvik-
ið átti sér stað á sama tíma og ríkis-
stjórn landsins lagði fram þá kröfu
að fjölskyldum þeirra sautján, sem
féllu fyrir kúlum Blackwater-örygg-
issveitarinnar í síðasta mánuði, yrðu
greiddar bætur. Lengi var talið að um
ellefu fórnarlömb hefði verið að ræða
í því tilviki.
Ekki lá fyrir hjá hvaða fyrirtæki
öryggisverðirnir unnu, en þeir voru
að fylgja fjórum farartækjum gegn-
um Bagdad og að sögn vitnis höfðu
þeir gefið ökumanni bifreiðar merki
um að stöðva, en hófu skothríð þeg-
ar ekki var farið að fyrirmælunum. Og
tvær konur lágu í valnum.
Vill Blackwater burt
Íröksk stjórnvöld þrýsta nú á
Bandaríkin að rifta öllum samning-
um sem gerðir hafa verið við Black-
water-öryggisþjónustuna, vegna at-
viksins í síðasta mánuði. Niðurstaða
rannsóknar Íraka á málinu hefur
leitt í ljós að starfsmenn Blackwaters
lágu ekki undir árás, en létu fyrirvara-
laust kúlum rigna yfir fjölda óbreyttra
borgara á Nisoor-torginu í Bagdad.
Samkvæmt AP-fréttastofunni hafa yf-
irvöld í Írak krafist þess að fá afhenta
þá starfsmenn Blackwaters sem hlut
áttu að máli, ef svo skyldi fara að þeir
yrðu sóttir til saka fyrir írökskum
dómstóli.
Skjóta fyrst og spyrja svo
Enginn er öruggur fyrir starfsmönnum öryggisfyrirtækja í Írak:
Bretland vinsælast
Bretland er vinsælasti kost-
ur Evrópusambandsríkjanna í
augum flóttafólks. Frakkland
var áður vinsælast. Árið 2006
sóttu 27.850 flóttamenn um hæli
í Bretlandi og 26.300 sóttu um
hæli í Frakklandi. Í þriðja sæti
var Svíþjóð með 24.300 umsókn-
ir og Þýskaland í því fjórða með
21.000 umsóknir. Ófýsilegustu
kostirnir í augum flóttafólks voru
Eistland, fimm sóttu um hæli
þar, og tíu sóttu um hæli í Lett-
landi. Alls bárust 192.300 um-
sóknir um hæli til Evrópusam-
bandsins á síðasta ári.
Skóli rýmdur á austurbrú
Vibenhus-skólinn á Austurbrú
í Kaupmannahöfn var rýmd-
ur og afgirtur í gær. Ástæðan var
sú að í skólanum fannst gömul
flaska sem innihélt eter og hafði
innihaldið umbreyst í öflugt og
óstöðugt sprengiefni þau tíu til
tuttugu ár sem flaskan hafði verið
til staðar. Sprengjusérfræðing-
ar hersins fjarlægðu flöskuna svo
hægt væri að gera eterinn skað-
lausan. Lögreglan lagði áherslu á
að ekki hefði verið um nein glæp-
samleg tengsl í málinu, en eterinn
hefði sennilega verið notaður við
efnafræðikennslu á árum áður.
Engir hommar Bara VEiki