Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Qupperneq 10
„Hugmyndin um það að vera góð-
ur er einhvern veginn týnd. Í dag
vilja flestir bara græða peninga
og það gerir okkur ekki endilega
góð,“ sagði Yoko Ono þegar hún
var spurð að því hvað ylli henni
áhyggjum. Yoko tendraði frið-
arsúlu sína í Viðey í gærkvöldi
að viðstöddu fjölmenni. Súlan
var tendruð á afmælisdag Johns
Lennon, 9. október. Hún mun lýsa
upp úr nokkurs konar óskabrunni
sem reistur hefur verið í Viðey, frá
9. október til 8. desember ár hvert,
en þann dag árið 1980 var eigin-
maður hennar John Lennon myrt-
ur.
Yoko hitti fjölþjóðlegt lið blaða-
og fréttafólks í Listasafni Reykja-
víkur í gærdag. Hún segir að hægt
sé að koma friði á í heiminum, en
til þess þurfi fólk að vera meðvitað
um það og hugsa um frið. „Áhyggj-
ur mínar beinast fyrst og fremst að
ofbeldi og stríðsrekstri í veröldinni.
Við getum breytt þessu og snúið
þróuninni við,“ segir Yoko.
Ringo kátur
Ringo Starr, trommari Bítlanna,
mætti til leiks í einkaþotu í gærdag.
„Ég elska stóra ljósið,“ sagði Ringo
um friðarsúluna við fréttamann
Stöðvar 2 við komuna. „Ég fæ ekki
nóg af því. Hvenær kemur Ringo-
súlan?“ spurði Ringo.
Hann er kominn hingað í fylgd
Oliviu Harrison, ekkju Bítilsins
George Harrison. Þegar Ringo var
spurður út í fyrri heimsókn sína
til Íslands sagðist hann hafa kom-
ið fyrir mörgum árum. „Það er
langt síðan. Ég kom á einhverja
rokkhljómleika, reið hesti og datt
af baki,“ sagði Ringo. „Við erum
öll hér í afmælinu hans Johnnys,“
bætti hann við.
Paul McCartney kom hins veg-
ar ekki. Komu hans hafði verið
spáð en engar frekari upplýsingar
borist. Ringo taldi það ólíklegt að
McCartney myndi láta sjá sig.
Allir boðnir
„Allir sem óska sér friðar í
heiminum verða með okkur í
kvöld. Fólk sem nú er í fangelsum
og líður pyntingar og kvalir getur
verið með okkur í anda. Allir geta
verið með okkur. Við bjóðum öll-
um,“ sagði Yoko Ono við blaða-
menn þegar hún var spurð hvers
vegna meðlimum í Samtökum
hernaðarandstæðinga hefði ekki
verið boðið að vera viðstaddir af-
hjúpun friðarsúlunnar í Viðey í
gærkvöldi.
Svanhildur Konráðsdóttir frá
Reykjavíkurborg svaraði því þá til
að ekki hefði verið hægt að bjóða
öllum að vera viðstöddum í Við-
ey, fyrst og fremst vegna plássleys-
is. „Það verður aldrei mjög vinsælt
að takmarka aðgang að svona við-
burðum. Þessu verður sjónvarpað
beint og verður aðgengilegt á int-
ernetinu,“ sagði Svanhildur.
Töfralandið Ísland
„Fyrir mitt leyti er þessi friðar-
súla nóg. Það eru margir sem vilja
gera eitthvað til að stuðla að heims-
friði,“ segir Yoko Ono. Henni finnst
fullsnemmt að segja til um það
hvort fleiri friðarsúlur verði reistar
í heiminum. Blaðamenn frá Japan,
Bretlandi og Spáni voru forvitnir
um staðarvalið og hvers vegna Ís-
land hefði orðið fyrir valinu þegar
hægt hefði verið að stinga súlunni
niður hvar sem er í veröldinni.
„Viskan kemur úr norðrinu. Ís-
land er hreint og fallegt. Hér er
hreint vatn og hrein raforka. Þess
vegna varð ég að velja Ísland,“
sagði Yoko og varð tíðrætt um það
hve töfrandi staður henni þykir Ís-
land vera.
Unga fólkið skynsamt
Yoko segir yngri kynslóðirnar
í dag vera skynsamari en hennar
eigin kynslóð var á sjöunda ára-
tugnum. „Það spruttu upp góðar
hugmyndir á sjöunda áratugnum
en þær urðu ekki allar að veruleika.
Nú verðum við að læra af mistök-
um fyrri kynslóða,“ sagði Yoko á
fundinum.
„Við höfum betri tækifæri í dag
til þess að stuðla að heimsfriði.
Netið og önnur þróun í samskipt-
um hefur hjálpað okkur mikið
áleiðis. Við þurfum óhjákvæmilega
að leggja eitthvað af mörkum ef
friður í heiminum á að verða að
veruleika.“
Hún segir mörg börn í veröld-
inni verða fyrir hugarangri vegna
stríðsreksturs og átaka. „Það er
margt sem börnin geta gert til þess
að stuðla að friði. Þau geta hugsað
um frið, það er nóg,“ sagði Yoko.
miðvikudagur 10. október 200710 Fréttir DV
ALLIR SEM ÓSKA
FRIÐAR ERU MEÐ
SigTRyggUR ARi jóhAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
yoko og Sean í Viðey ekkja og sonur Johns Lennon voru
mætt. Yoko segir John Lennon vera ánægðan með súluna.
„Í dag vilja flestir bara græða peninga og það gerir okkur ekki endilega góð.“