Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Side 12
Það er ekki bara hann Guðni Ágústsson sem ekkert skil-ur í þessu Orkuveitumáli. Kannski er bara enginn sem skil- ur neitt í þessu Orkuveitumáli. Kannski er bar- asta ekki hægt að skilja neitt í Orkuveitu- málinu. Sama hvað hefur verið reynt og hvað verð- ur reynt. Sumt er bara ekki hægt að skilja. Það á við um fleiri en Guðna. Guðni hefur skilið margt um dagana. Hann skilur ekki Björn Inga og hann skilur ekki Orku- veitumálið. Guðni er eins og þjóð- in. Þjóðin er eins og Guðni. Hann skilur ekki og þjóðin skilur ekki. Hér verður reynt að skilja. Þannig er að sjálfstæðis-menn stofnuðu áhættu-kompaní Orkuveitunnar í vor sem leið. Það skilja allir. Þeir vildu að Orkuveitan færi í útrás eins og allir aðrir sem vettlingi geta valdið. Þetta skilja líka allir. Jæja, svo kom sumar og sumri tók að halla og það kom haust. Þá var komið að framkvæmdunum. Útrásin var fram undan. Þetta skildu allir og sennilega enginn betur en Bjarni Ármannsson. Hann skildi þetta svo vel að hann kom með fimm hundruð milljónir með sér. Og ekki bara það. Hann skildi þetta sem sagt betur en aðrir. Fimm hundr- uð milljónirnar hans eru orðnar að þúsund, ef ekki meira. Og svo virð- ist sem verðmætin hafi dottið af himnum ofan. Guðni skilur þetta ekki og þjóð- in skilur þetta ekki. Það skilur enginn hvers vegna borg-arfulltrúarnir sem vildu vera í útrásinni vildu svo ekki fara í útrásina þegar hún er að byrja. Það skilur enginn. Ekki heldur skilur neinn af hverju nýliðunum, sem eiga að vinna við útrásina, var boðið að fá auka margar milljónir. Svo skilur enginn hvers vegna var hætt við að sumir fengju að kaupa fáar millj- ónir og fá margar, en aðrir mega áfram kaupa fáar milljónir og fá margar. Þjóðin skilur þetta ekki og ekki Guðni. Svo gerist það þegar allt er komið á heljarþröm og enginn skilur í raun hvers vegna það varð, gerist það að Haukur ein- hver Leósson er látinn fara. Hann er vondi maðurinn en hefur samt verið alveg frábær, segir borgarstjórinn. Hver skilur þetta? Haukur var í stjórn Orkuveitunn- ar rétt eins og Bingi og Haukur var í stjórn útrásarinnar, rétt eins og Bingi. Samt er Haukur látinn fara þar sem hann er ekki traustsins verður en Bingi, sem sat við hlið hans í öllum sullumbullinu, fær hvítþvott og traustsyfirlýsingar eins og hann vill og jafnvel fleiri en hann hefur not fyrir. Þjóðin skilur ekki og ekki Guðni. miðvikudagur 10. október 200712 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm. fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson Umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. aðaLnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010, Áskriftarsími 512 7080, augLýsingar 512 70 40. Alveg eins og guðni daggeisli ReyniR TRausTason RiTsTjóRi skRifaR. Því verður ekki haldið fram að borgarstjóri sé óheiðarlegur og hann maki krókinn. Peðum fórnað leiðari Sú staða sem upp er komin í meirihlutanum eftir fárviðr-ið um orkumálin er óskiljanleg. Björn Ingi Hrafnsson, for-maður borgarráðs, leggur á það áherslu að sjálfstæðis-menn beri ábyrgð á málinu og ber af sér allt annað en að hafa gefið kosningastjóra sínum meðmæli svo hann kæmist inn í gæðingahópinn hjá Reykjavik Energy Invest. Hann viðurkennir að hafa vitað af kaupréttarsamningunum sem sprengdu málið í hæstu hæðir en vísar á framkvæmdastjórn hins nýja fyrirtækis varðandi ábyrgð. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri þykist ekkert hafa vitað um kaupréttarsamningana og vísar á Hauk Leósson, trúnaðarmann sinn og stjórnarmann Orkuveitunnar, sem hann lætur sæta ábyrgð. Því verður ekki trúað að borgarstjóri hafi verið svo grænn að hann hafi ekkert vitað. Vilhjálmur gerir lítið úr uppreisn innan eigin borgar- stjórnarflokks sem náði hæstu hæðum þeg- ar andófsfólkið hitti formann og varafor- mann flokksins á laun og án borgarstjóra. Því verður ekki haldið fram að borgarstjóri sé óheiðarlegur og hann maki krókinn í eig- in þágu. En hringlandaháttur hans er algjör og hann er uppvís að ósannindum eða í versta falli hvítri lygi. Hvað um yfirlýsingar hans um að borgarfull- trúar ættu ekki að sitja í stjórn Orkuveitunnar? Ætlar borgarstjóri að láta Björn Inga verða stjórnarformann Orkuveitunnar í vor? Hefur Sjálfstæðisflokkurinn enga sjálfsvirðingu lengur? Eftir að gruggið sest í Orkuveitumálinu er full ástæða til þess að gera upp þátt aðalleikaranna Björns Inga og Vilhjálms í þessum málum öll- um. Almenningi ofbýður framgangan. Undansláttur og afsakanir duga ekki. Það er fráleitt að Haukur Leósson sé látinn undirgang- ast ábyrgð í málinu með því að honum verði hent út úr Orkuveit- unni. Hermt er að Guðmundur Þóroddsson, framkvæmdastjóri Orkuveitunnar, verði einnig látinn taka pokann sinn. Það skortir á hina pólitísku ábyrgð í málinu og hana verða menn að axla. Sá hluti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins sem reis gegn ofríkinu og stefnuleysinu má ekki lyppast niður og láta draga sig inn í samtrygginguna. Þjóðin verður að geta treyst því að stjórnmálamenn sem komast til áhrifa sinni störfum sínum með heiðar- leika að leiðarljósi en umgangist ekki fyr- irtæki í almenningseigu eins og þau séu í einkaeigu þeirra. Sú krafa er eðlileg að stjórnmálamenn axli sína ábyrgð í stað þess að fórna peðum. dómstóll götunnar Er rétt að sElja rEykjavik EnErgy invEst? „nei, mér finnst það ekki rétt. Ég vil að þetta sé áfram í almannaeigu.“ Ingibjörg Björnsdóttir, 76 ára ellilífeyrisþegi „nei, ég held ekki. ekki eins og staðan er. Þetta á bara eftir að hækka í verði. mögulega hefði verið skynsamlegra að selja síðar.“ Þór Gíslason, 43 ára nemi við Háskóla Íslands „nei, alls ekki. menn eiga að klára það sem þeir eru byrjaðir á. Það er aumingjaskapur hjá vilhjálmi að standa ekki við sitt.“ Tryggvi Þór Tryggvason, 21 árs járnamaður „Ég er á móti þessu. mér finnst þetta rugl frá upphafi til enda. Ég get ekki sagt annað. Þeir eiga bara að anda djúpt og vera rólegir.“ Gunnur Svanbjörg Friðriksdóttir, 68 ára ellilífeyrisþegi sandkorn n Borgarstjórnarsamstarfið er laskað eftir Orkuveituuppnám- ið og í raun í uppnámi. Nú velta menn fyrir sér hvort Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ætli ekki að víkja úr stjórn Orku- veitunnar en eftir kosn- ingar lýsti hann því yfir að þar ættu borgarfulltrúar ekki að sitja. Þá fóru Haukur Leósson og Guðlaugur Þór þórðarson inn í stjórn. Þegar Guðlaugur Þór varð ráðherra hætti hann en Vilhjálmur fór inn í staðinn. Athygli vakti að Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi, sem setið hafði í stjórninni í þrjú ár í minnihluta og gjörþekk- ir til Orkuveitunnar, fór ekki í stjórnina. Nú velta menn fyrir sér hvort Villi verði ekki að setja hana í stjórn. n Í vor sest Björn Ingi Hrafns- son í stjórn Orkuveitunnar sem formaður og stjórnar millj- arðafyrirtækinu síðustu tvö ár kjörtímabils- ins. Urgur er meðal sjálfstæð- ismanna í minnihlut- anum vegna þessa og kröfur hafa verið uppi um að Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son borgarstjóri taki upp samninga við Björn Inga til að breyta þessu. Þar verði haft til hliðsjónar að Björn Ingi fái ekki þau tækifæri sem Orkuveitan gefur óneitanlega. Hermt er að Vilhjálmur hafi ekki þann kjark sem þarf til að breyta samning- um meirihlutans. n Það hefur mikið mætt á Jóni Kristni Snæhólm aðstoðar- manni í öllu strögglinu í kring- um borgarstjórann. Eftir mold- viðrið um Orkuveit- una hefur nú lægt en ekki eru allir ósárir. Að- stoðarmað- urinn brá sér í veiði í Múlá sem er í landi ættaróðals hans vestur á fjörðum. Ekki vildi betur til en svo að Jón Kristinn missti fram- an af fingri í atganginum við veiðarnar. n Óskar Bergsson, varaborgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, er nú að komast í feitt ef marka má umræðuna í kringum borg- arstjórn. Hermt er að Óskar, sem hraktist frá verkefnum fyrir Faxa- flóahafnir, sé nú að taka við yfirstjórn allra eigna Reykjavíkurborgar í umboði Björns Inga Hrafnssonar. Það væsir því ekki um varaborgar- fulltrúann í faðmi borgarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.