Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Síða 13
besti vinur
Hverrar tegundar eru þínir hundar?
„Ég á tvær retriever-tíkur en retriever eru sækjandi veiðihundar sem
voru ræktaðir af veiðimönnum í Bretlandi. Þeir vinna eftir skot, sækja feld
eða bráð. Helsti eiginleiki retriever er gott skapferli og þar af leiðandi er
þessi tegund ein sú vinsælasta hér á landi.“
Hvað heita tíkurnar þínar og hvað eru þær gamlar?
„Sú eldri heitir Sýn en hún er á ellefta ári. Við skýrðum hana Sýn því
mamma hennar, hún Píla, greindist með gláku og talið var líklegt að Sýn
myndi erfa þann skjúkdóm og verða blind. Við ákváðum því að hún myndi
heita Sýn svo hún hefði þó einhverja sýn. Það er mjög algengt að fólk spyrji:
„Af hverju heitir hún ekki Stöð 2?“ en nafnið hefur ekkert með sjónvarps-
stöðina að gera. Yngri tíkin heitir Teista eftir svartfuglinum. Hún er rúm-
lega tveggja ára. Frúin á Sýn og ég á Teistu.“
Eru þær vel þjálfaðar?
„Já, við hjónin notum þær í skotveiði og þær eru mjög duglegir veiði-
hundar sem og heimilishundar.“
Hlýða þær öllum á heimilinu?
„Já, þær hafa nú gert það. En nú þegar aldurinn er að færast yfir Sýn leyf-
ir hún sér ýmislegt sem hún ekki gerði áður. Það eru þó helst skipanirnar
frá krökkunum sem eru látnar sem vind um eyru þjóta. En Teista, sú yngri,
hlýðir öllum.“
Hafa þær verið sýndar?
„Já, Sýn er búin að fara á nokkrar sýningar. Teista fór á sína fyrstu sýn-
ingu í sumar en þær hafa aldrei unnið til verðlauna. Þær eru svona í létt-
ari kantinum. Dómararnir vilja hafa hundana í þyngra lagi. En þar sem við
notum okkar tíkur á veiðar uppi um fjöll og firnindi er betra að hafa hund
sem er léttur á fæti.“
Hvernig myndir þú lýsa skapgerð tíkanna þinna?
„Mesti styrkur retriever-hundanna er skapferlið. Þeir eru viljugir að
þóknast og því er mjög auðvelt að þjálfa þá. En svo hefur auðvitað hver
hundur sinn karakter sem gerir þetta svo skemmtilegt. Þrátt fyrir að vera
eldri er Sýn miklu meiri hvolpur í sér og æsist öll upp er við förum út. Teista
er miklu rólegri og yfirvegaðri.“
Hvernig er að eiga hund í borg?
„Það hefur aldrei háð mér eða pirrað mig. Ég hef ekkert að gera nið-
ur í miðbæ. Tíkurnar mínar hafa aldrei beðið um að fara í göngutúr niður
Laugaveginn. Ég bý í Hafnarfirði og það er því stutt að fara út í hraun eða
upp í Heiðmörk. Svo förum við mikið á veiðar og göngum til fjalla.“
Hvernig er viðmót samborgaranna gagnvart þér sem hundaeiganda?
„Það er auðvitað hlutverk okkar hjá Hundaræktunarfélagi Íslands
að sýna fram á að hundaeigendur eru upp til hópa ábyrgir. Auðvitað eru
svartir sauðir í þessu eins og öllu öðru en í langflestum tilvikum er þetta
mjög ábyrgur hópur sem sinnir hundunum sínum vel. Uppi eru alls kyns
fordómar sem snúa að hundaeigendum og er það markmið okkar hjá
Hundaræktunarfélaginu að reyna að uppræta þá.“
Finnur Fyrir
Fordómum
Sigurður Magnússon, forsvarsmaður
retriever-deildar hjá Hundaræktunar-
félagi Íslands
mannsins
Umsjón Baldur Guðmundsson
Framhald á
næstu opnu