Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Síða 14
miðvikudagur 10. október 200714 Besti vinur mannsins DV
Eitt Elsta hundakyn í hEimi
Hverrar tegundar er þinn hundur?
„Hún er næstum þriggja ára Tíbet spaniel og er kölluð Tíbrá.
Hún er innflutt frá þekktum og virtum ræktanda í Finnlandi.“
Er hún vel þjálfuð?
„Já, hún er vel þjálfaður sýningarhundur en dóttir mín Auður
Sif hefur þjálfað hana og sýnt með frábærum árangri.“
Hvaða árangri hefur hún náð?
„Tíbrá hefur verið sýnd á hverri sýningu HRFÍ frá því að hún
kom til landsins 2005 og hefur verið mjög sigursæl! Hún hefur allt-
af verið valin besta tík sinnar tegundar, hún er íslenskur meistari
og hefur hlotið þrjú alþjóðleg meistarastig. Á sumarsýningu HRFÍ
2006 var hún valin besti hundur sýningar en þá voru sýndir yfir
600 hundar! Á sýningu HRFÍ síðustu helgi var hún sýnd og var val-
in besti hundur tegundar og fékk sitt þriðja alþjóðlega meistara-
stig.“
Hefur þú átt hund áður?
„Já, ég hef átt hund síðan 1988 og ræktað bæði Tíbet spaniel
og labrador retriever í yfir 10 ár.“
Hvernig myndir þú lýsa skapgerð hennar?
„Hún er yndisleg, ljúf og góð og frábær persónuleiki en getur
verið mjög þrjósk þegar hún tekur sig til. Hún er mjög mannelsk
og elskar börn og alla hunda, stóra og smáa.“
Hver eru karaktereinkenni þessarar tegundar?
„Tíbet spaniel-hundar eru sjálfstæðir, geta verið þrjóskir en
samt sem áður er mjög auðvelt að kenna þeim ef þeim finnst
einhver tilgangur með því sem þeir eru beðnir um að gera. Þeir
voru notaðir sem varðhundar í munkaklaustrunum í Tíbet og
láta þess vegna oft í sér heyra þegar að gesti ber að garði. Þeir
elska fjölskylduna sína og eru trúir og tryggir húsbónda sínum.
Tíbet spaniel-hundar eru eitt elsta hundakyn í heimi og þegar
þeir voru ræktaðir í munkaklaustrunum í Tíbet voru þeir aldrei
seldir heldur aðeins gefnir sérstökum höfðingjum og velunnur-
um munkanna.“
Hvernig er að eiga hund í borg?
„Það er fínt að eiga hund í borg en eigendur hunda þurfa að
sjálfsögðu að vera ábyrgir og hugsa vel um hundana sína, taka tillit
til annarra og síðast en ekki síst, þrífa upp eftir hunda sína.“
Hvernig finnst þér aðstaða fyrir hundaeigendur í Reykjavík?
„Aðstaða fyrir hundaeigendur í Reykjavík mætti vera mun
betri. Hundaeigendur virðast oftar en ekki vera annars flokks og er
það ný til komið að hundahald sé leyft í Reykjavík sem er stór sigur
fyrir hundaeigendur. Aftur á móti er sorglegt að eigendum hunda
er ekki treystandi til að vera með þá alls staðar í borginni eins og til
dæmis á Laugaveginum þar sem hundar eru bannaðir. Eins finnst
mér sárlega vanta ruslafötur á helstu gönguleiðir borgarinnar. Auk
þess mættu vera fleiri sérsvæði fyrir hunda eins og eru til dæmis á
Geirsnefi og í Öskjuhlíðinni.“
Auður Valgeirsdóttir,
heimavinnandi hundamamma
Blaða·maður KK • starfsmaður blaðs, sá sem hefur atvinnu
af að skrifa í blöð - Íslensk orðabók
„Ég heiti Sigurjón M. Egilsson og er ritstjóri DV.
Mér er ekki sama hvernig fjölmiðlum er stjórnað
eða hvernig fréttir þeirra eru unnar. Sjálfstæði,
kjarkur og sanngirni skiptir öllu hjá fjölmiðli eins
og DV. Fólk á skilið dagblað sem talar þeirra máli.
Ég tala þínu máli.“
Talar þínu máli
F
í
t
o
n
/
S
Í
A