Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Síða 27
Ræðst í Mars-
þríleikinn
Teiknimyndarisinn Pixar hefur
staðfest að eitt af framtíðarverkefn-
um fyrirtækisins sé að gera þríleik
byggðan á Mars-ævintýrum
rithöfundarins Edgars Rice
Burroughs sem hann skrifaði í
upphafi 20. aldarinnar. Fjórum
sinnum áður hefur verið reynt að
gera myndir byggða á sögum
Burroughs en alltaf verið hætt við.
Myndirnar verða svokallaðar Live-
Action eða CG-motion-myndir sem
er nýjasta tæknin í teiknimynda-
heiminum og mun sjást mikið af á
næstu árum.
Í ár er sérstakt Myspace-svið á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves og þar er margt spennandi að gerast:
Myspace-svið í HafnarHúsinu
Einn af stærstu samstarfsaðil-
um Iceland Airwaves-hátíðarinn-
ar í ár er Myspace en en aðilar frá
Myspace komu á hátíðina í fyrra og
leist svona líka vel á gang mála. En
eins og flestir vita er Myspace einn
stærsti fjölmiðill heims og er mik-
ið notaður af tónlistarmönnum
sem og öðrum. Samstarfið hefur
þróast með þeim hætti að stærsta
svið Iceland Airwaves-hátíðarinn-
ar í ár verður kynnt sem sérstakt
Myspace-svið. Stærsta sviðið á há-
tíðinni er í Listasafni Reykjavíkur -
Hafnarhúsinu og þar verða teknir
upp hinir ýmsu tónleikar, stemm-
ingin og stuðið baksviðs. Upptök-
ur og myndir frá Myspace-sviðinu
verða svo sýndar á Myspace-síðu
hátíðarinnar sem er myspace.-
com/icelandairwaves. Hátíðin
hefst miðvikudaginn 17. október
og stendur til og með sunnudeg-
inum 21. október og hér er á ferð
stærsta Iceland Airwaves-hátíðin
til þessa þar sem yfir 200 hljóm-
sveitir og listamenn koma fram
á níu tónleikastöðum í miðborg
Reykjavíkur. Auk þess mun veg-
leg Airwaves-dagskrá fara fram
í Norræna húsinu ásamt smærri
viðburðum og tónleikum í plötu-
verslunum, kaffihúsum og annars
staðar í miðbænum – ásamt hinu
árlega Airwaves-partíi í Bláa lón-
inu. Armbandið á hátíðina kostar
8.500 krónur og er hægt að nálgast
það í verslunum Skífunnar Lauga-
vegi, Kringlunni og Smáralind í
Reykjavík og verslunum BT á Ak-
ureyri, Egilsstöðum og Selfossi.
„Þetta hefur farið virkilega vel af
stað,“ segir Árni Rúnar Hlöðversson,
forsprakki sveitarinnar FM Belfast,
um samstarfið við danska tónlist-
armanninn Kasper Björke. Hljóm-
sveitin FM Belfast gerði lag ásamt
Kasper sem var nýlega sett í spil-
un í Bandaríkjunum og Danmörku
samhliða útgáfu fyrstu smáskífu
kappans. Lagið sem Kasper gerði
í samstarfi við FM Belfast er fyrsta
smáskífan af væntanlegri plötu
hans sem heitir In Gumbo. Kasper
vinnur á plötunni með rjómanum af
dönsku raftónlistarsenunni og þar
á meðal mörgu af því fólki sem var
á fyrstu plötu Anders Trentemöller
sem hefur öðlast heimsfrægð und-
anfarin ár.
Hástökkvari vikunnar
„Lagið heitir Back & Spine og það
fór á toppinn á iTunes í Danmörku
í síðustu viku,“ segir Árni sem oftar
en ekki er kallaður Árni plús einn.
iTunes er tónlistarverslun á netinu
sem er einn allra stærsti dreifingar-
aðili tónlistar í heiminum í dag og
því um merkan árangur að ræða.
„Kasper hafði heyrt tónlist eftir okk-
ur og sendi mér og Lóu lag,“ og á
Árni þá við Lóu Hlín Hjálmtýsdótt-
ur, söngkonu FM Belfast og sambýl-
Bætist við
The Goods
Vöðvabúntið og harðjaxlinn Ving
Rhames er nýjasta viðbótin við
grínmyndina The Goods: The Don
Ready Story sem er framleidd af
Paramount. Það er leikarinn Jeremy
Piven sem fer með aðalhlutverk
myndarinnar. Hann leikur mann sem
er ráðinn til að bjarga bílasölu sem er
í erfiðleikum en það gengur ekki
alveg sem skyldi.
Vinnur aldrei
með Affleck
Jennifer Garner, leikkona og
eiginkona leikarans og leikstjórans
Bens Affleck, hefur heitið því að leika
aldrei í mynd sem eiginmaðurinn
gerir. Ástæðan er ekki sú að Garner
vilji ekki vinna með eiginmanni
sínum heldur það að samstarfið
myndi bitna á eins árs dóttur þeirra.
Garner telur mikilvægara að annað
þeirra sé með dóttur þeirra á meðan
hinn aðilinn er að vinna.
miðvikudagur 10. október 2007DV Bíó 27
Ágætis
endurgerð
Datarock Whitest Boy Alive Hafnarhúsið Þar sem myspace-sviðið
mun rísa á hátíðinni í ár.
topplag itunes
iskonu sína. „Við sömdum texta við
lagið, sungum inn á það og unnum
aðeins í því. Síðan sendum við það
til baka,“ og segir Árni að þar með
hafi lagið verið tilbúið. Þegar Árni og
Lóa unnu lagið ásamt Kasper voru
þau aðeins tvö í FM Belfast en síðan
þá hefur sveitin þróast mikið og eru
meðlimirnir allt frá þremur upp í átta
eftir því hvar hver og einn er staddur
í heiminum hverju sinni.
„Auk þess að komast á topp iTu-
nes var lagið einnig valið hástökkvari
vikunnar á sérstökum danstónlistar-
lista í danska ríkisútvarpinu,“ segir
Árni sem er búsettur í New York
Strembin heimferð fyrir
höndum
„Ég er að vinna í tónlistinni hérna
úti en Lóa er í myndlistarnámi,“ seg-
ir Árni um búsetu þeirra skötuhjúa í
New York en Árni er meðlimur í þó
nokkrum hljómsveitum. „Við kom-
um heim næstu helgi og tekur þá
við stíft tónleikahald,“ en Árni teng-
ist hvorki meira né minna en 4 atrið-
um á Airwaves-hátíðinni. Árni mun
kom fram á tónleikum með FM Belf-
ast, Hairdoctor auk þess sem hann
spilar einn síns liðs undir nafninu
plús einn. Þá er Árni einnig partur af
hljómsveitinni Motion Boys og hef-
ur samið tónlist í samstarfi við Birgi
Ísleif, söngvara sveitarinnar, þó Árni
komi sjaldnast fram með sveitinni.
„Það er því óhætt að segja að það
verði lítið slakað á þegar maður kem-
ur heim.“
FM Belfast hyggst gefa út smá-
skífu í Bandaríkjunum á næstunni en
það er útgáfufyrirtækið Thugfucker í
eigu Hólmars Filipussonar sem mun
gefa hana út. „Thugfucker er líka
hljómsveit og við höfum einnig ver-
ið að vinna í lagi með þeim undan-
farið sem er mjög spennandi,“ segir
Árni að lokum og heldur göngu sinni
áfram um götur New York-borgar.
asgeir@dv.is
í danmörku FM BelFASt SpIlAr á AIrWAveS Lagið back & Spine gerir það gott í danmörku.
Lag hljómsveitarinnar
FM Belfast og raftónlist-
armannsins Kasper Björ-
ke náði toppnum á
danska iTunes-vinsælda-
listanum í síðustu viku.
vIð truMp-turnInn í
neW YorK Lóa og Árni
eru kjarni Fm belfast.