Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 30
miðvikudagur 10. október 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Ólafur Jóhannesson kvik- myndagerðarmaður er á leiðinni til New York til að dvelja þar næsta einn og hálfan mánuðinn eða svo. Þar hyggst Ólafur vinna að frá- gangi tveggja mynda sinna, Stóra plansins og Queen Raquela. Sú fyrrnefnda er eins konar kung-fu-grínmynd þar sem Pétur Jóhann Sigfús- son fer með aðalhlutverkið en Ólafur sagði í viðtali við DV fyrir ekki löngu að stefnan væri að frumsýna myndina í febrúar/ mars á næsta ári. Queen Raqu- ela, sem er heimildarmynd um filippseyskan klæðskipting, kemur hins vegar fyrir sjónir almennings eitthvað fyrr. Ólafur er ennfremur með nýja mynd í burðarliðnum sem mun heita Dagbók hringfara eða Diary of a Circledrawer. n Þorgrímur Þráinsson er í ítarlegu viðtali í næsta blaði af Nýju lífi sem kemur út á fimmtu- daginn. Þor- grímur lætur gamminn geysa um lífið og til- veruna, samskipti kynjanna og nýútkomna bók sína Hvernig gerirðu konuna þína hamingjusama? Meðal þess sem Þorgrímur segir í viðtalinu er að hann sé óhræddur að við- urkenna að hann vilji sofa hjá öðrum konum en maka sínum og segist lítið skammast sín fyrir þær hugsanir. Þorgrímur segir ekkert vit í að reyna fela slíkar hugsanir og mun betra að velta því fyrir sér hvers vegna þær blossi upp. n Á visir.is er að finna úttekt á nokkrum verkum Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra, „Ógöngur Vilhjálms borgarstjóra“. Þar eru talin upp atriði í stuttri borg- arstjórasetu Vilhjálms sem þykja orka tvímæl- is. Þar segir: „Nú eru um 500 dagar liðnir frá síðustu sveit- arstjórnarkosningum og hefur hann staðið að fjölmörgum um- deildum verkefnum. Á meðal þeirra er að gera útigangsmenn að nágrönnum leikskólabarna og gefa fjárhættuspilafyrirtæki 20 milljónir króna á silfurfati.“ Hver er konan? „Ég er fædd og uppalin í Vestmanna- eyjum en hef búið í Reykjavík síðan ég hóf háskólanám. Lengi vel var ég varaborgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og nú er ég borgarfulltrúi Samfylking- arinnar. Ég á þrjú börn, einn fimmtán ára strák og tvær stelpur, þrettán og þriggja ára.“ Hver er menntun þín? „Ég er matvælafræðingur og með MBA gráðu.“ Hvað drífur þig áfram? „Mér líður ofsalega vel þegar það er mikið að gera hjá mér og ég þarf mikla fjölbreytni. Ég hef gaman af því að rök- ræða og skiptast á skoðunum. Í pólitík er það þörfin til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið.“ Hver eru áhugamál þín? „Ég hef gaman af því að lesa bæk- ur, vera með fjölskyldu og vinum. Ég mála svolítið en hef þó gert allt of lít- ið af því undanfarið. Ég hef gaman af því að elda og borða góðan mat. Ég er fínn kokkur.“ Eftirminnilegasta stund í pólitík? „Þessi örlagaríki undirbúningsfund- ur í Orkuveitumálinu skorar nú ansi hátt á þeim lista, þegar flett var ofan af þessum kaupréttarsamningum. Það var alveg ótrúlegt. Það átti alls ekki að segja okkur frá þeim samningum og hefði ekki verið gert ef ég hefði ekki þráspurt á þessum fundi þegar þetta uppgötvaðist. Hefði þetta ekki upp- götvast hefði borgin á endanum stað- ið frammi fyrir orðnum hlut.“ Hvernig er stemningin á vinnu- staðnum þessa dagana? „Hún er nú sjálfsagt misjöfn eftir því í hvaða flokki fólk er. Það eru auðvit- að allir sammála því að það er mikil- vægt að vinna vel úr þessu máli en það er ekki hlaupið að því enda að mörgu að hyggja í þessu máli. Fólk má ekki gleyma sér í leðjuslagnum.“ Hvernig líst þér á þá hugmynd að selja hlut Reykjavíkurborgar í Reykjavik Energy Invest? „Það eru tveir dagar síðan það var yfirlýst skoðun borgarstjóra að það mundi þjóna hagsmunum borgar- búa að bíða með það að selja þennan hlut, að minnsta kosti þar til fyrirtæk- ið Reykjavík Energy Invest er komið á almennan markað. Þetta er ekki rétta leiðin til þess að hámarka virði fyrir- tækisins fyrir borgarbúa. Þetta væri skelfileg niðurstaða næðist um hana meirihluti. Það gengi gegn hagsmun- um borgarbúa og almennri skynsemi. Björn Ingi og Vilhjálmur þurfa svo að hugleiða það hvort þeir hafi samvisku til þess að sitja áfram í borgarstjórn.“ Hvaða endir væri að þínu mati farsælastur á þessu máli? „Ég vil sjá málið sem mest hreins- að upp. Það verður að fara yfir all- ar þær ákvarðanir sem teknar hafa verið í þessu máli, þar með talda að- komu Bjarna Ármannssonar að mál- inu. Þetta mál þarf að skoða í heild og það má engu leyna. Ég held að það sé langskynsamlegast að halda hlut borgarinnar í Reykjavik Energy Invest. Það er ágætt að líta til einkavæðing- ar bankanna í þessum efnum en þeir voru seldir áður þeir fóru á markað en síðan þá hefur virði þeirra hundrað- faldast.“ Hvað kom til að þú fórst út í stjórnmál ? „Eins og fram hefur komið er ég fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn ráðið lög- um og lofum frá ómuna tíð. Ég sá það þegar ég var unglingur að mér líkaði ekki við þetta stjórnarfyrirkomulag og langaði því að vinna sem mótvægi við íhaldið.“ Hvað einkennir íslenska pólitík í dag? „Það er margt spennandi að gerast í pólitík. Sérstaklega á þingi þar sem nú er komið nýtt stjórnarmunstur sem ég vænti mikils af. Það verður þá hægt að stokka hlutina aðeins upp og skoða upp á nýtt sem er mjög gott.“ MAÐUR DAGSINS NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði Fólk má ekki gleyma sér í leðjuslagnum Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur verið áberandi í umræð- unni um samruna reykjavik energy invest og geys- is green energy. Sigrún elsa segir það ganga gegn hagmunum borgarbúa sem og almennri skynsemi að selja hlut borgarinnar í fyrirtækinu reykjavik en- ergy invest áður en það fer á almennan markað. Við mælum með myndinni Brown Bunny eftir Vincent Gallo sem skifaði handritið og leikstýrði myndinni. Vincent Gallo og Chloë Sevigny leika hér saman og þau eru sko kokkteill sem vert er að horfa á. Nema hvað, í lok myndarinnar er yndislegt atriði sem enginn heilvita maður ætti að láta framhjá sér fara. Blautir draumar og fiðrildi í mag- anum. Við mælum með sem hefst núna á föstudaginn og er til og með sunnu- deginum 21.október. Sequences er hátíð sem enginn ætti að láta fram- hjá sér fara þar sem listamenn alls staðar að koma að hátíðinni. Njótið vel og lengi. Við mælum svo sannarlega með kryddjurtinni kóríander. Það þýðir ekkert að kaupa sér í glasi held- ur aðeins ferska og nóg af henni. Ástæðan er ekki einungis vegna þess að hún er með eindæmum góð heldur er hún einstaklega kynörv- andi. Skellum kóríander í matinn og allir eru sáttir. Við mælum með... ...SEquEncES ...BRown Bunny ...Bloc PaRty Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +3 4 +5 2 +69 +65 +8 6 +9 7 +8 2 +10 4 +7 1 +10 5 +10 5 +8 4 +6 3 +10 2 +8 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.