Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Qupperneq 32
Það verður ljóst á morgun hvort
Gunnari Stefáni Möller Wathne verð-
ur sleppt úr gæsluvarðhaldi í borg-
inni Nýju-Delí á Indlandi. Gunnar
Stefán hefur setið í gæsluvarðhaldi
í rúmar tvær vikur, eða frá því hann
var handtekinn við komuna á Ind-
ira Gandhi-alþjóðaflugvöllinn af
flugvallarlögreglunni. Hann hafði
þá verið eftirlýstur af bæði Inter-
pol og bandarísku fíkniefnalögregl-
unni, DEA. Upphaflega átti úrskurð-
ur dómara að liggja fyrir í gær um
hvort Gunnar Stefán yrði leystur úr
haldi gegn tryggingu en málflutning-
ur í málinu hófst á föstudag í síðustu
viku.
Satish Aggrwala, saksóknari í mál-
inu, sagði við DV að öllum málflutn-
ingi í málinu væri lokið og Gunnar
Stefán væri enn í haldi í það minnsta
þar til á morgun þegar dómari í mál-
inu úrskurðar hvort Gunnar Stefán
sitji í áframhaldandi gæsluvarðhaldi
eða verði aðeins úrskurðaður í far-
bann á Indlandi og gert að mæta fyr-
ir dómara á tilsettum tíma. Aggrwala
getur ekki tjáð sig um hvert framhald
málsins verður, en vitað er að banda-
rísk stjórnvöld undirbúa nú framsals-
kröfu á hendur honum eins og fram
hefur komið í DV. Gunnar Stefán kom
sér undan handtöku í Bandaríkjun-
um árið 2003 fyrir aðkomu sína að
peningaþvætti á söluágóða af fíkni-
efnaframleiðslu. Verði hann fund-
inn sekur getur hann átt von á allt
að tuttugu ára refsivist í bandarísku
fangelsi. Eins og fram kom á vefnum
dv.is í gær hefur Gunnar Stefán búið
síðustu ár í Rússlandi þar sem hon-
um hefur vegnað vel í viðskiptum.
Skömmu eftir komuna til Rússlands
árið 1990 stofnaði Gunnar Stefán
ferðaskrifstofuna Bisnost sem bauð
upp á skipulagðar ferðir fyrir erlenda
ferðamenn innan Rússlands. Hjá fyr-
irtækinu störfuðu um tíma um það
bil hundrað manns. valgeir@dv.is
Þór Fannar Ólafsson, endurskoð-
andi Búnaðarfélags og ræktunar-
sambands Djúpárhrepps, hefur
kært Sigurbjart Pálsson, formann
félagsins, til lögreglu fyrir einnar
milljónar króna fjárdrátt á árunum
2000 til 2005. Þór Fannar sakar Sig-
urbjart um að hafa í heimildarleysi
notað fé félagsins til að greiða lög-
fræðikostnað. Sá kostnaður var til
kominn vegna einkamáls sem Sig-
urbjartur höfðaði gegn Þór Fannari
sem hófst árið 2003.
Í lögum félagsins segir að ný
stjórn skuli kosin á þriggja ára fresti.
Enginn aðalfundur var hins veg-
ar haldinn í rúm sex ár og því hafði
Sigurbjartur ekki umboð félags-
manna til að fara með peninga fé-
lagsins, segir Þór Fannar.
Stórfelldur fjárdráttur
Í kærunni sem lögð var fram
gegn Sigurbjarti segir að engir fund-
ir hafi verið haldnir í félaginu frá ár-
inu 1999 til nóvember 2006. Það var
ekki fyrr en félagsmenn voru farnir
að krefjast þess að fundur yrði hald-
inn í félaginu að loks var boðað til
hans. Á fundinum var Þór Fannar
kosinn endurskoðandi félagsins.
Þegar farið var ofan í reikninga fé-
lagsins kom í ljós að ýmis gögn úr
bókhaldinu vantaði og að í sjóði
þess hafi vantað eina milljón króna
sem hvorki voru skýringar á né fyr-
irliggjandi reikningar fyrir.
Við nánari athugun á bókhaldi
félagsins kom í ljós að tiltekin ávís-
un hafði verið skrifuð árið 2003, en
hún hafði verið innborgun fyrir lög-
fræðiaðstoð vegna einkamáls sem
Sigurbjartur Pálsson höfðaði gegn
Þór Fannari árið 2003. Sigurbjartur
tapaði málinu og var dæmdur til að
greiða málskostnað.
Liggur á sálinni
Sigurbjartur Pálsson undrast
kæruna og segist með öllu saklaus
af ásökununum. „Maðurinn sem
kærði þetta hefur staðið í málaferl-
um lengi og undantekningalítið
tapað málum. Ég bara átta mig ekki
á því hvað liggur að baki. Ég veit
ekki hvort þetta liggur á sálinni eða
hvað. En mér finnst þessi kæra mjög
alvarleg og menn þurfa að hafa
mjög fast land undir fótum til þess
að bera upp á mann svona sakir.“
Þór Fannar Ólafsson er ekki
sama sinnis. „Það eru teknir pen-
ingar út úr félaginu og það er kol-
ólöglegt. Það sem alvarlegra er er
að hann er sakaður um mjög alvar-
leg bókhaldsbrot og brot af því tagi
varða allt að sex ára fangelsi.“
Málið enn í rannsókn
Kæran var lögð fram hjá sýslu-
manninum á Hvolsvelli en lögregl-
an á Selfossi hefur málið til rann-
sóknar. Það liggur því ekki fyrir
hvort ákært verður í málinu. Verið
er að afla gagna og þegar öll nauð-
synleg gögn liggja fyrir verða hlut-
aðeigendur boðaðir í skýrslutöku.
miðvikudagur 10. október 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
FréttaSkot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Fjárdráttur í
búnaðarfélagi?
Endurskoðandi
kærir Formann
Formaður búnaðarfélags kærður til lögreglu fyrir fjárdrátt:
Yoko, ringo og Sean í Viðey Yoko Ono, Ringo Starr og Sean Lennon voru í brennidepli þegar kveikt var á friðarljósinu til
minningar um John Lennon í Viðey í gærkvöld. Sjá bls. 10 og 11.
Gunnar Wathne þarf enn að bíða eftir dómsúrskurði:
Gæti losnað úr fangelsi á morgun
Aðstoðarmaður
á bæjarstjórastól
Arnar Þór Sævarsson var í gær
ráðinn bæjarstjóri á Blönduósi.
Arnar Þór var
áður aðstoð-
armaður Jóns
Sigurðsson-
ar, iðnaðar- og
viðskiptaráð-
herra, en lét af
því starfi við
stjórnarskipti
í vor.
Arnar Þór tekur við starfinu af
Jónu Fanneyju Friðriksdóttur sem
lét af störfum fyrir skemmstu.
Hann er lögfræðingur að mennt
og hefur áður unnið hjá Fjár-
málaeftirlitinu og Símanum.
Tveir í farbann
Hæstiréttur staðfesti í gær far-
bannsúrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur yfir tveimur Litháum. Menn-
irnir liggja báðir undir grun um
þjófnað úr verslunum ásamt fleiri
mönnum úr litháísku þjófagengi.
Mennirnir eru nú báðir í farbanni
til klukkan fjögur síðdegis 1. nóvem-
ber. Alls voru fimmtán menn hand-
teknir vegna rannsóknar á stórfelld-
um þjófnaði. Sjö voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald á fyrsta degi og fyllt-
ust þá allir tólf fangaklefarnir sem
eru ætlaðir undir gæsluvarðhald.
Tveir til viðbótar voru síðar úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald.
alþjóðaflugvöllurinn í Nýju-Delí
Gunnar Stefán var á ferð um flugvöllinn
þegar hann var handtekinn af lögreglu á
Indlandi.
Telur að málið
tefjist í nefnd
„Við erum margir búnir að fara
í viðtöl hjá nefnd Geirs Haarde um
Breiðavík. Það er alltaf möguleiki
að þetta fari allt saman í aðra nefnd
áður en yfir lýkur og ekkert víst að
við verðum allir lifandi þegar nið-
urstaðan kemur,“ segir Georg Viðar
Björnsson. Hann er einn þeirra sem
vistaðir voru á Breiðavík sem ungir
drengir.
Breiðavíkurnefndin hefur, þegar
hér er komið sögu, rætt við um sex-
tíu þeirra sem vistaðir voru á Breiða-
vík. Reiknað er með að nefndin skili
skýrslu um áramótin.
Vantar
þunglyndislyf
Mörg lyf eru nú ófáanleg. Má þar
nefna þunglyndislyfið Zoloft, maga-
lyfið Lanser, verkjalyfið Íbúfen og
ákveðna styrkleikaflokka af sýklalyf-
inu Amoxicillín.
Í DV í gær kom
fram að flúor-
töflur fyrir
börn fást
ekki næstu
tvo mánuðina.
Lyfjafræðingur hjá
Lyfju segir allt of algengt
að lyf skorti í apótekin. �rsök-
ina er yfirleitt að finna hjá fram-
leiðanda eða dreifingaraðila. Í stað
þeirra sem vantar er ávísað sam-
heitalyfjum.
ræktaði kannabis
Lögreglan í Borgarnesi gerði hús-
leit í íbúð í Borgarnesi í gær og lagði
hald á á annað hundrað grömm af
kannabisefnum. Eigandi efnanna er
karlmaður á sextugsaldri og játaði
hann að hafa átt kannabisefnin og
sagði þau vera afrakstur af ræktun
og vera til eigin neyslu. Þá fannst í
húsinu óskráð skotvopn sem mað-
urinn viðurkenndi einnig að eiga.
Hann hefur ekki komið við sögu lög-
reglu áður og málið telst upplýst.
VaLGeir ÖrN raGNarSSoN
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Frá Hvolsvelli Lögreglan á Hvolsvelli
tekur afstöðu til þess hvort ákært verður
í málinu.
Stúlku leitað
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu leitar nú að fimmtán ára
stúlku sem ekki hefur sést síðan
hún fór frá heimili sínu síðasta
miðvikudag. Hulda Sólrún Aðal-
steinsdóttir er 175 sentímetrar á
hæð, grannvaxin og með dökk-
leitt, axlarsítt hár með ljósum
strípum. Hún var klædd í svar-
brúnan leðurjakka, ljósa striga-
skó, dökkbláar gallabuxur og
ljósa peysu síðast þegar var vitað.
Þeir sem vita af henni eru beðnir
um að hringja í síma 444 1000.
DV MYNDir áSGeir