Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 10
GEFÐU FERMINGARBARNINU SKÖPUNARKRAFTINN MEÐ GRÆJUNUM FRÁ OKKUR  LánaniðurfærsLa afborganir fLestra vegna niðurfeLLingar skuLda Lækka um 8.500 krónur á mánuði Húsnæðissparnaður ríkisstjórnarinnar gagnast ekki á höfuðborgarsvæðinu Séreignalífeyrissparnaður samkvæmt nýju skuldaniðurfellingafrumvarpi ríkisstjórnarinnar nemur 1,5 milljónum á þremur árum. Sú upphæð dugir til kaupa á húsnæði að verðmæti 7,5 milljónir króna og nýtist því ekki til húsnæðiskaupa á höfuðborgarsvæðinu. Flestir fá 1,1 milljón í niðurfell- ingu - sem lækkar afborganir um 8.500 krónur á mánuði. f rumvarp ríkisstjórnarinnar um skuldaleiðréttingu heimilar fólki að nýta séreignarsparnað til fast- eignakaupa. Fram kemur að slíkur hús- næðissparnaður geti meðal annars nýst fjölskyldum í leiguhúsnæði. Húsnæðis- sparnaðurinn getur að hámarki numið 1,5 milljónum á þremur árum. Fjölskyldur eða einstaklingar sem fara þessa leið en ná ekki að safna aukalega geta því keypt sér eign að andvirði 7,5 milljóna króna samkvæmt lánareglum Íbúðalánasjóðs, þar sem hámarkslánshlutfall er 80%. Ein eign er til sölu á höfuðborgar- svæðinu undir 8 milljónum króna og er það 33 fermetra stúdíóíbúð í Hafnar- firði. Hins vegar má fá einbýlishús víða á landsbyggðinni fyrir 7,5 milljónir króna, til að mynda á Patreksfirði, þar sem 125 fermetra, þriggja herbergja einbýlishús er til sölu á 7 milljónir. Til þess að nýta að fullu þessa sparnaðarleið og safna 500 þúsund í séreignalífeyrissparnað árlega þurfa samanlagðar heimilistekjur að vera ríflega 700 þúsund á mánuði fyrir skatt. Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir að um 30 þúsund heimili muni nýta sér þessa sparnaðarleið. Í athugasemdum með frumvarpinu, sem lagt var fyrir á Alþingi á miðviku- dag, má sjá að þrjú af hverjum fjórum heimilum fá niðurfærslu undir 1,5 milljónum króna, rúmlega 50 þúsund heimili. Komið hefur fram að meðal- talsniðurfærslan er 1,1 milljón. Ein- ungis þúsund heimili fá hæstu niður- færsluna, 3,5-4 milljónir. Þau heimili skulda yfir 30 milljónir og hafa ekki fengið neinar niðurfellingar áður. Niðurfærsla upp á 1,1 milljón lækkar afborganir á húsnæðislánum um 8.500 krónur þegar þær hafa að fullu tekið gildi. Dæmigerð afborgun af 25 ára láni að upphæð 17 milljónir, sem er meðaltalshúsnæðisskuld fólks, lækkar úr um 118 þúsundum í um 110 þúsund krónur á mánuði. Bent hefur verið á að 40 prósent skuldaniðurfellingarinnar, 32 millj- arðar króna, renni til heimila sem eru með 8 milljónir eða meira í árstekjur. Tæpur helmingur niðurfellingarinnar fer jafnframt til heimila þar sem ekki eru börn. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Húsnæðissparnaður sem ríkisstjórnin hefur heimilað í gegnum séreignalífeyrissparnað næstu þrjú árin dugir fyrir útborgun í 7,5 milljón króna húsnæði. Gagnast það ekki íbúum höfuðborgarsvæðisins, þar sem einungis ein eign, 30 fermetra stúdíóíbúð, er til sölu undir 8 milljónum. Ljósmynd/Getty Fjöldi heimila Upphæð lánaniðurfærslu 5257 0 14253 0-0,5 20014 0,5-1 16342 1-1,5 9365 1,5-2 3891 2-2,5 1933 2,5-3 1615 3-3,5 1014 3,5-4 Samtals 68427 heimili Húsnæðisskuldir Íslendinga Nokkrar staðreyndir um höfuðstólslækkun 174 þúsund heimili voru með verð-tryggð lán á tímabilinu sem niður- færslan tekur til. Níu af hverjum tíu þeirra heimila eiga rétt á niðurfærslu, 68.500 heimili 2Mikill meirihluti, 3 af hverjum 4 heimilum fá minna en 1,5 milljónir í niðurfærslu 3Meðalfjárhæð niðurfærslu á hvert heimili er 1,1 millj. kr. 4Helmingur heimila fær niðurfærslu á bilinu 0,5–1,5 milljónir 55000 heimili eiga ekki rétt á niður-færslu 6 1000 heimili fá 3,5-4 milljónir í lækkun Flestir skulda 15,3 milljónir í íbúðalán þótt meðalskuldin sé 17 milljónir. Tæpur þriðjungur þeirra sem skulda húsnæðislán skulda minna en 10 millj- ónir. 67% heimila skulda undir 20 millj- ónum. 91% heimila skulda minna en 30 milljónir. 3,4% skulda meira en 40 milljónir. Lánaniður- færslurnar 10 fréttir Helgin 28.-30. mars 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.