Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 32
Fermingartertur Skírnartertur Útskriftartertur www.sveinsbakari.is Skipholti, Hólagarði og Arnarbakka. HOME SPA HÚÐVÖRUPAKKI FYLGIR ÖLLUM BLUE LAGOON HÚÐVÖRUM Gildir á meÐan byrGÐir endast í verslunum HaGkaupa, blue laGoon verslun á lauGaveGi oG í HreyfinGu. Auglýsing um sveinspróf Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir: Í matvælagreinum í maí. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í byggingagreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í prentgreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í bílgreinum í maí-júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í hönnunar- og handverksgreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í snyrtifræði í maí-júní. Umsóknarfrestur er til 1. maí. Í málmiðngreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur til 1. maí. Í vélvirkjun í september. Umsóknarfrestur til 1. júní. Í hársnyrtiiðn í september. Umsóknarfrestur til 1. júlí. Í ljósmyndun í september – október. Umsóknarfrestur til 1. júlí. Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu okkar um leið og þær liggja fyrir. Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyrlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2014. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veang: www.idan.is og á skrifstofunni. IÐAN - fræðslusetur, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401, netfang: idan@idan.is G jaldtaka landeigenda á Geysi-ssvæðinu hefur hleypt krafti í umræðu um hvort leyfa eigi gjaldtöku á ferðamannastöðum hér á landi og hvaða aðferð eigi þá að beita við gjaldtökuna. Málið þykir flókið og álitaefnin mörg. Sum þeirra snúa að eignarhaldi og almannarétti – ævagamalli rétt- arreglu sem heimilar frjálsa för um land. Einnig er það staðreynd að fæstir vinsælustu ferðamannastað- irnir eru á landi sem er ekki í einka- eign heldur ýmist innan þjóðgarða eða á ríkisjörðum eða almenningum eða þjóðlendum. Hvað varðar Geysissvæðið á ríkið sjálfa og landspildu umhverfis þá en til að skoða hverina úr návígi þarf að ganga um land sem er í sameigin ríkisins og einkaaðila. Það eru sam- eigendur ríkisins að því landi sem nú krefja ferðamenn um 600 krónur, án virðisaukaskatts, fyrir að skoða Geysi og Strokk úr návígi. Sumir vinsælir staðir eru þó í einkaeigu. Þekkt dæmi er Kerið í Grímsnesi, þar sem landeigendur hafa um skeið innheimt aðgangseyri af ferðamönnum. En burtséð frá eignarhaldi og að því gefnu að niðurstaðan sé gjaldtaka til að kosta uppbyggingu og viðhald nauðsynlegra mannvirkja á helstu ferðamannastöðum eru álitaefnin fjölmörg sem vinna þarf úr áður en niðurstaða fæst. Er rétt að nýta skatt- kerfið eða gefa út sérstök skírteini, sem ferðamenn kaupa og veita rétt til að skoða vinsæla staði um allt land? Á ríkið að leggja gjald á ferðaþjónustu- fyrirtækin, sem aftur velta því út í verðið hjá sér, eða er er rétt að vera með gjaldhlið og biðraðir við ferða- mannastaðina, í samræmi við aðferð- ina á Geysi? Hvaða áhrif hefur það á upplifunina af því að skoða óspillta náttúru og þekkta staði ef maður þarf að borga sig inn eins og verið væri að fara á safn, í tívolí eða dýragarð? Hér á eftir fer samantekt á þeim leiðum sem helst hefur verið rætt um í sambandi við gjaldtöku á ferða- mannastöðum. Að miklu leyti er stuðst við skýrslu sem Árni Geirsson og Kristín Rós Jóhannesdóttir unnu fyrir Ferðamálastofu á síðasta ári. Náttúrupassi Umræðan undanfarið hefur að miklu snúist um náttúrupassa en Ragn- heiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og ferðamálaráðherra, hefur lýst áhuga á að fara þá leið. Sú hugmynd byggist á því að þeir sem njóta náttúrunnar standi undir kostnaði við uppbyggingu og viðhald á ferðamannastöðum. Nefnt hefur verið að náttúrupass- inn gæti verið önnur tveggja stoða í gjaldtökukerfi; selt væri inn á staðn- um á allra vinsælustu staðina en passinn gæti veitt aðgang að öðrum vinsælum stöðum. Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu telja það meðal kosta þessarar leiðar að gjaldtakan hafi þá ekki bein áhrif á verðlagningu ferðaþjónustufyrir- tækja heldur beinist hún að þeim einstaklingum sem skoða staðina og valda þannig þeim átroðningi sem kallar á að ráðast þarf í við uppbygg- ingu, viðhald og rekstur. Meðal galla er nefnt að ferða- mannastaðir eru ólíkir, meðal ann- ars varðandi eignarhald og staðhætti og erfitt getur verið að koma við skil- virkri innheimtu og eftirliti. Ekki er vitað um beina fyrirmynd að slíku kerfi erlendis. Þá mundi það ekki standast EES- samninginn að veita Íslendingum afslætti eða selja þeim aðgang að ferðamannastöðum á öðru verði en ferðamenn frá EES ríkjum þyrftu að greiða. Brottfarar- og komugjald Nú þegar eru lögð ýmis gjöld á flug- fargjöld en ekkert þeirra tengist fjár- mögnun ferðamannastaða. Í skýrslunni segir að þótt slík gjaldtaka myndi vafalítið minnka eft- irspurn séu hún líklega bæði raun- hæf og einföld í notkun. Hugsanlega gæti gjaldið verið ákveðið hlutfall af verði fargjaldsins en ólíklegt er að það standist að leggja mismunandi gjald á eftir því um hve langa flug- ferð er að ræða. Líkt og varðandi náttúrupassann kemur EES-samn- ingurinn í veg fyrir að slíkt gjald yrði eingöngu tekið af erlendum ferða- mönnum. Passi, gjald eða skattur? Það er að mörgu að hyggja varðandi gjaldtöku á vinsælum ferðamannstöðum. Fjölmargar leiðir hafa verið til skoðunar. Sumar tengjast því að innheimtur sé aðgangseyrir; sérstakur Náttúrupassi er önnur. Enn aðrar leiðir byggjast á því að ferðaþjónustufyrirtækin greiði gjald og þurfi leyfi til sinnar starfsemi. Svo er möguleiki á að nýta skattkerfið, til dæmis virðisaukaskattinn, til þess að sækja þær tekjur sem þarf til uppbyggingar og viðhalds á ferðamannastöðum Aðgangseyrir Þeir sem heimsækja Kerið í Gríms- nesi hafa síðustu ár þurft að greiða aðgangseyri. Nýlega var farið að innheimta 600 kr. aðgangseyri, án virðisaukaskatts, af ferðamönnum á Geysissvæðið. Annars staðar er aðgangur að náttúrusvæðum gjaldfrjáls. Einn gallinn við þessa leið þykir vera sá að hún krefst þess að komið sé upp sérstökum gjaldhliðum. Að sumum stöðum liggja margar komuleiðir og flókið yrði að koma upp og manna fjölmörg gjaldhlið, auk þess sem þeim fylgir óhagræði og biðraðir. Gistináttagjald Gistináttagjald var lagt á í upphafi ársins 2012; 100 krónur á hverja „gistináttaeiningu“. Gagnrýnt hef- ur verið að gjaldið leggist þyngst á ódýrustu gistinguna og að sá sem gistir í tjaldi borgi jafnmikið og sá sem gistir í hótelsvítu. Virðisaukaskattur á þjónustu tengda ferðamennsku Nú er aðeins greiddur 7% virðis- aukaskattur af gistingu. Við nú- gildandi aðstæður njóta f lestir ferðaþjónustuaðilar endurgreiðslu úr vsk. kerfinu þar sem þeir greiða hærri vsk. vegna rekstrarins en nemur þeim tekjum sem 7% skatt- urinn skilar til þeirra. Vsk. á gist- ingu hér er lægri en að meðaltali í löndum ESB. Áformað var að hækka skattinn í 25,5% en horfið var frá því. Í tíð síð- ustu ríkisstjórnar var einnig hætt við málamiðlun um að búa til sér- stakt 14% skattþrep í vsk. fyrir gisti- þjónustu. Sú hugmynd var þó ekki á þeim tíma tengd áformum um að fjármagna uppbyggingu á ferða- mannastöðum. Bent hefur verið á að mögulegt sé að ráðstafa hluta af vsk. ferðaþjónustunnar í sjóð til slíkra verkefna. Nýsjálenska leiðin Einar Á. E. Sæmundsen, fræðslu- fulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum og landslagsarkitekt, útskýrði ný- lega nýsjálensku leiðina við gjald- töku í þjóðgörðum í blaðagrein. Þar er grunnreglan sú að þeir sem hafa fjárhagslegan ávinning af starf- semi innan þjóðgarða og verndar- svæða þurfa að hafa samninga við 32 fréttaskýring Helgin 28.-30. mars 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.