Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 56
56 dægurmál Helgin 28.-30. mars 2014  Í takt við tÍmann ÁsdÍs marÍa viðarsdóttir Álíka leiðinlegt að pissa og að borða einn Ásdís María Viðarsdóttir er tvítug söngkona sem er ættuð úr iðrum Breiðholtsins en lifir nú kóngalífi í Vesturbænum. Hún vakti athygli í Söngvakeppninni á dögunum þegar hún söng lagið Amor og má búast við að við heyrum meira frá henni á næst- unni. Ásdís elskar Berlín og er góð að elda pottrétti. Staðalbúnaður Ég er að vinna í Spútnik og ég kaupi eiginlega öll fötin mín þar. Allt- af þegar ég sé föt úr öðrum búðum sé ég hvað hún Þura er með putt- ann á púlsinum. Stundum kaupi ég mér reyndar föt í vintage búð- um í útlöndum og svo versla ég í búðinni Ampersand sem systir mín á í Danmörku. Ég get ekki lýst fatastíln- um mínum, í fataskápnum er fullt af kjólum, jakkafötum og pilsum, ég get verið í öllu. Ætli ég sé ekki svona bóhem plús? Hugbúnaður Ég og vinkona mín erum nýkomnar með þá reglu þegar við förum út að dansa að þegar fyrsta lélega Borgartúni 31 19.-29. mars Allt að 70% afsláttur af nýlegum og notuðum búnaði frá Canon, Sony, Bose, Lenovo og fleiri heimsþekktum framleiðendum. Takmarkað magn er í boði. Opið virka daga kl. 12–18 og laugardaga kl. 11-15. ALLT AÐ 70% AFSLÁT TUR AF HÁGÆÐA VÖRUM SÍÐUSTU DAGAR LAGERSÖ LUNNAR . ALLT Á A Ð SELJAST . LAGERSALA  appafengur Ferða handbókin Appið Vegahandbók- in byggir á bókinni sjálfri sem hefur verið í stöðugri upp- færslu og endurnýjun frá fyrstu útgáfu fyrir yfir 40 árum. Appið finnur þína eigin staðsetningu og vísar þér til vegar og gefur upplýsingar um yfir 3 þúsund markverða staði víðs vegar um Ísland. Í appinu er listi yfir alla skráða þjónustuaðila sem skipta þúsundum, svo sem þá sem bjóða upp á gistingu, veiting- ar, menningu og listir, samgöngur og upplýsingamiðstöðvar. Ef smellt er á áhugaverðan stað, til að mynda Geysi í Haukadal, koma upp ýmsar bæði hagnýtar og sögulegar upplýs- ingar um goshverinn auk fjögurra mynda. Vitanlega fylgir líka með hversu margir kílómetrar eru frá þér og á áfangastað. Með þessu appi er tryggt að þú missir ekki af einum einasta mark- verða stað á ferð þinni um landið. Vegahandbókin er aðgengileg á íslensku, ensku og þýsku. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Guðdómlegur gallajakki — Þessi guðdóm legi guli galla- jakki, sem lítu r út eins og sófaáklæði er mín uppáhald s- flík. Hann er snilld. Ég key pti hann í Mauer park í Berlín fyrir seinustu aurana mína þá ferðina og sá ekki eftir því. Ampersand spöngin — Snill-ingarnir Anna Sóley og Eva Dögg búa til þessar gull-fallegu spangir í litlu búðinni þeirra í Danmörku sem heitir Ampersand. Engar tvær eru eins og þetta er hennar mömmu sem ég fæ oft lánaða. Þær eru fallegar og vel gerðar og passa við allt. L’artisan ilmvatnið mitt — Ég er mega lyktarperri og var lengi búin láta mig dreyma um L’artisan ilmvant í Aurum. Ég var oft búin að koma og vera óþolandi að lykta af öllu og aldrei kaupa neitt. En það breyttist um daginn. Ég baða mig í þessu á hverjum degi og fæ ekki nóg. lagið kemur þá förum við á annan stað. Við erum oft- ast lengst á Paloma, Harlem og Dolly, það er heilaga djammþrenning- in. Ég fer aldrei í ræktina, ræktin mín er djamm- ið. Ég lít svo á að ég sé í fimm tíma Zúmba- tímum allar helgar. En ég fer oft í sund enda bý ég við hliðina á sundlaug. Mér finnst allir vera að horfa á drasl í sjónvarpinu til að sofna við. Ef ég dett inn í eitthvað þá er það alvöru þættir eins og Shameless eða True Detective, eitthvað geðveikt grípandi. Vélbúnaður Ég á iPhone 5s og nota hann gríðar- lega mikið, fer á Insta og allt þetta dót. Ég nota hann þegar ég vil ekki tala við fólk og þegar ég er að bíða eft- ir vinum mínum og vil ekki láta líta út eins og ég sé einmana. Og þegar ég pissa. Það er nefnilega álíka leiðinlegt að pissa og að borða einn. Svo á ég líka Mac-tölvu. Ég er Mac-kona, bæði þegar kemur að tækjum og snyrtivörum. Aukabúnaður Mér finnst fáránlega gaman að elda. Ég er mjög góð að búa til chili-rétti og etníska pottrétti sem fá að malla geðveikt lengi. Ég er ekki með bíl- próf af því ég er þrotakona þannig að ég labba bara eða fæ far. Svo á ég per sónulegan taxa sem ég get hringt í. Ég fer til Berlínar á hverju ári og ætla að flytja þangað í haust og fara í skóla. Berlín er góður vettvangur fyrir allt sem er skemmtilegt. Uppáhaldsstaðirnir mínir eru her- bergið mitt og Flugumýri þar sem systir mömmu á heima. Á Flugumýri er jafn frábært og það hljómar illa. SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS! MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711 IF... SUN: 20.00 (16) 20. - 30. MARS 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.