Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 58
Ómar Valdimarsson sendifulltrúi heldur fyrirlestur um heilsueflingar- og þróunar- verkefni í Malaví fimmtudaginn 3. apríl kl. 8.30–9.30 í húsi Rauða krossins, Efstaleiti 9. Skráning á www.raudikrossinn.is Allir velkomnir Byrjað á núlli  SamfélagSmál KriStín tómaSdóttir hefur ferðaSt um landið í vetur og haldið námSKeið Heldur sjálfsstyrkingarnámsleið fyrir tíu ára stelpur „Það kom mér mjög á óvart hversu mikil eftirspurn er eftir námskeiðum fyrir 10-12 ára stelpur. Ég reiknaði ekki með því að foreldrar væru búnir að átta sig á því að sjálfsmyndin getur verið farin að þróast í neikvæða átt á þeim tíma og eru meðvitaðir um að fyrirbyggja myndun neikvæðrar sjálfsmyndar,“ segir Kristín Tómasdóttir rithöfundur sem er að fara af stað með ný sjálfsstyrkingarnámskeið í Reykjavík fyrir stelpur en auk þess býður hún fyrsta skipti upp á námskeið fyrir foreldra. Kristín er höfundur bókanna Stelpur, Stelpur geta allt og Stelpur frá A-Ö, auk þess sem hún skrifaði bókina Strákar ásamt Bjarna Fritzsyni. Hún hefur haldið fyrirlestra fyrir stelpur í skólum og félagsmiðstöðvun og í vetur hefur hún ferðast um landið og boðið námskeið til sjálfsstyrkingar. Námskeiðununum er skipt eftir aldri þannig að 10-12 ára stelp- ur eru saman í hóp og 13-15 ára stelpur eru saman. „Á námskeiðinu legg ég áherslu á þrennt; að kynna hugtakið sjálfsmynd, kenna stelpunum leiðir til að þekkja sína eigin sjálfsmynd og svo leiðir til að hafa jákvæð áhrif á sjálfsmyndina,“ segir Kristín sem er með BA-próf í sál- fræði og kynjafræði. „Þetta byggir á hug- rænni atferlismeðferð þar sem ég kenni stelpum að horfa til þess jákvæða í stað þess að einblína á það neikvæða. Stund- um er sjálfsmyndin alls ekki í tengslum við raunveruleikann og þannig getur stelpa sem er mjög góð á skíðum haft þá sjálfsmynd að hún sé léleg á skíðum.“ Næstu námskeið eru í apríl og hægt er að nálgast frekari upplýsingar um þau á Facebook-síðunni Stelpur. Þá hyggst Kristín færa út kvíarnar í sumar ásamt Bjarna Fritzsyni þegar þau ætla að halda sumarnámskeið fyrir 10-12 ára krakka, stelpur og stráka, sem kallast „Út fyrir kassann.“ -eh Kristín Tómasdóttir segir meiri eftirspurn eftir sjálfsstyrking- arnámskeiðum fyrir 10-12 ára stelpur en 13-15 ára. Ljósmynd/Hari Birgir Sigursson er eigandi Gallerís 002 sem er að Þúfubarði 17 í Hafnarfirði. Í dag verður opnuð þar sýning á verkum Þórarins Blöndal myndlistarmanns. Ljósmynd/Hari  myndliSt graSrótarliStamenn Sýna í íbúð birgiS rafvirKja Rafvirki með listagallerí í kjallaraíbúð í Hafnarfirði Í lítilli kjallaraíbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði er starfrækt nokkuð öflugt gallerí. Galleríið er ekki bara gallerí heldur líka heimili eiganda þess, Birgis Sigurssonar rafvirkja og myndlistar- manns. Hann hefur frá stofnun þess árið 2010 haldið 17 sýningar í samstarfi við nokkra helstu grasrótarlistamenn Reykjavíkur. Þ etta byrjaði bara upp úr atvinnu-leysi,“ segir Birgir Sigursson sem er rafvirki að mennt. Birgir hefur síð- ustu ár haldið sautján myndlistarsýningar í kjallaraíbúð sinni í Hafnarfirði. „Þá ákvað ég að láta þann gamla draum rætast að fara af alvöru út í myndlistina. Þetta hefur alltaf blundað í mér þrátt fyrir að hafa ekki lært myndlist. Ég held að myndlist sé eitt af því sem maður bara fæð- ist með, hæfileikinn er til staðar en svo þarf maður bara að ná honum einhvernvegin út. Galleríið sem slíkt, og að fá að vinna með öllum þessum góðu myndlistarmönnum sem hér hafa sýnt, hefur verið minn besti skóli,“ segir Birgir en sjálfur vinnur hann aðallega ljóslistaverk. Hingað til hefur Birgir tæmt íbúðina sína algjörlega fyrir hverja sýningu og ekki fundist það mikið mál, enda aldrei verið mikið fyrir að sanka að sér óþarfa dóti. „Nei, nei, maður býr einn og bara frekar minimalískt. Ég setti bara allt inn í geymslu. Það felst í þessu ákveðin hreinsun sem er gott. Svo smátt og smátt hefur íbúð- in verið að breytast í sjálfstætt listaverk.“ Í þetta sinn mun þó sýningin sjálf verða samtal milli listamannanna tvegga, Þórar- ins Blöndals og Birgis, þar sem Þórarinn mun koma þrívíðum verkum og ljósmynd- um fyrir í íbúð Birgis án þess að Birgir geri á henni nokkrar tilfæringar. Íbúðin verður þannig hluti af verkinu. „Þórarinn býr til magnaða skúlptúra um allskonar hluti sem er eiginlega ekki hægt að lýsa með orðum,“ segir Birgir. Það hefur ekki verið mikið mál að fá listamenn til að sýna í þessu lítt þekkta galleríi sem sumir myndu segja að væri á hjara veraldar eins og Birgir bendir á. „Ég er ótrúlega þakklátur þeim mikla stuðningi og áhuga sem allir þessir frábæru og oft vel þekktu listamenn hafa sýnt galleríinu. Ég t.d. þekkti Ragga Kjartans eða Heklu Dögg ekkert þegar ég hringdi í þau og bauð þeim að sýna. Mér finnst fólk vera sérstak- lega áhugasamt um staðsetninguna sjálfa, sem er hér „out of nowhere“ í blokkaríbúð í Hafnarfirði, rétt hjá Álverinu. Ef þú kemur hingað í strætó frá miðbænum þá tekur það lengri tíma en að fljúga til Akureyrar frá Reykjavík, en það er auðvitað hluti af upp- lifuninni,“ segir Birgir. Sýning Þórarins Blöndal opnar í dag föstudag, klukkan 18, í Gallerí 002, Þúfu- barði 17 í Hafnafirði. Hún er sú fyrsta af átta myndlistarviðburðum á þessari fyrstu myndlistarhátið 002 Gallerís, sem stendur frá 28. mars til 1. júní. Sýningarnar eru opnar frá 18 til 21 á föstudögum og frá 14 til 17 laugardaga og sunnudaga. Aðgangur er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir. Hægt er að fræðast frekar um dagskrá Myndlistarhátiðar 002 Galleríis á Facebook síðu 002 Galleríis. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Ef þú kemur hingað í strætó frá mið- bænum þá tekur það lengri tíma en að fljúga til Akureyrar frá Reykja- vík en það er auð- vitað hluti af upp- lifuninni. Reykjavík Shorts&Docs Festival verður haldin í tólfta sinn dagana 3.-9. apríl í Bíó Paradís og Stúdentakjallaranum. Að venju er áherslan á innlendar og erlendar stutt- og heimildamyndir, en auk kvikmyndasýninga verður fjöldi annarra viðburða á hátíðinni. Í ár verða veitt áhorfendaverðlaun fyrir bestu íslensku stuttmyndina en alls keppa ellefu myndir um verðlaunin. Nánari upplýsingar um er að finna á heimasíðu hátíðarinnar, Shorts- docsfest.com. Helgi Seljan í Útsvari Það verður enginn annar en verðlaunafrétta- maðurinn Helgi Seljan sem stendur vaktina með Þóru Arnórsdóttur í spurningaþættinum Útsvari á RÚV í kvöld, föstudagskvöld. Þar fær þessi grjótharði frétta- skýrandi tækifæri til sýna á sér nýja og lauflétta hlið í sjónvarpi en Helgi þykir afar launfyndinn. Eins og kom fram í Fréttatímanum í síðustu viku er Sigmar Guð- mundsson, stjórnandi þáttarins, í feðraorlofi og munu hinir og þessir leysa hann af á næstunni. Í síðustu viku hljóp Gísli Marteinn Baldursson í skarðið og nú er komið að Helga. Reykjavík Shorts&Docs í næstu viku 58 dægurmál Helgin 28.-30. mars 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.