Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Page 19

Fréttatíminn - 28.03.2014, Page 19
FRAMTÍÐARREIKNINGUR GÓÐUR STAÐUR FYRIR FERMINGARPENINGANA Framtíðarreikningurinn ber alltaf hæstu vexti verðtryggðra sparireikninga og er laus við 18 ára aldur. Hann er skynsamlegur staður fyrir fermingarpeningana, svo þeir nýtist í framtíðinni til að láta draumana rætast. Ef 30.000 kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning bætum við 5.000 kr. við.* Hægt er að stofna Framtíðarreikning í næsta útibúi Arion banka. *Eitt mótframlag fyrir hvert fermingarbarn 18 ÁRA 12/11 2018 LÁTTU FERMINGARPENINGINN VAXA MEÐ ÞÉR H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 4 -0 5 6 6 þróunarverkefni Norðmanna, „Pay for performance“. Þetta verkefni hafði það að markmiði að bæta heil­ brigðisþjónustuna með því að greiða heilbrigðisstarfsfólki á grundvelli afkasta og gæða. Mín niðurstaða, sem kemur fram í vísindagrein sem nú er í yfirlestri, var sú að erfitt sé að innleiða svona kerfi nema infra­ strúktúrinn sé í lagi sem ekki er til að dreifa í þessu tilfelli. Heilbrigð­ isstarfsmaður getur ekki bólusett barn ef hann hefur ekki bóluefni. Í einhverjum tilfellum var bóluefnið til en ekkert rafmagnið og þar sem bóluefni á að geyma í kæli eyðilagð­ ist það og var því ónothæft. Til að ná árangri verður allur nauðsyn­ legur búnaður að vera til staðar,“ segir Anna. „Við verðum að hjálpa fólki sem glímir við fátækt, með því að hjálpa þeim að hjálpa sér sjálf. Það er ekki nóg að senda peninga. Við verðum að hjálpa þeim að auka þekkingu sína og færni til að geta staðið á eigin fótum. Það er of lítið fram­ boð af skólum, og jafnvel þó það séu til skólabyggingar þá vantar vel menntaða kennara. Þess vegna verðum við að hjálpa þeim að þjálfa betur kennarana sína. En vanda­ málin eru víða því jafnvel þótt við séum komin með vel þjálfaða kenn­ ara þá vilja þeir oft ekki fara í þorpin að kenna, því þar stendur þeim ekki til boða hús með rafmagni og vatni. Þetta undirstrikar enn frekar mikil­ vægi þess að byrja á því að byggja upp innviðina.“ Í sínum rekstri hefur Anna alltaf lagt áherslu á að vera samfélags­ lega ábyrg. „Fyrsta verkefnið okk­ ar var að hjálpa þorpsbúum við að dreifa hreinu vatni því það var sam­ kvæmt þorpsbúum mikilvægasta verkefnið. Við lögðum fram efnis­ kostnað en þau lögðu fram vinn­ una. Næsta verkefnið var að stofna leikskóla. Hann var stofnaður fyrir söfnunarfé á Íslandi, meðal vina og vandamanna og með hjálp Credit­ info og starfsmanna þess. Við sem­ sagt byggðum skólann en rekum hann ekki, það gera þorpsbúar. Nú eru um 100 börn í leikskólanum á aldrinum 4­6 ára.“ Ríkt land með misskiptan auð Sumir óttast að fara til Afríku og segir Anna geta verið nokkrar ástæður fyrir því. „Ein þeirra er neikvæður fréttaf lutningur frá svæðinu, um hungur og ófrið. En Afríka er svo stór heimsálfa og því mjög langt á milli uppreisna í t.d. Sómalíu og svo Tansaníu sem er friðsamt land. Hluti óttans er mögu­ lega fáfræði, en þetta er alveg stór­ kostleg álfa. Ég hef ferðast töluvert um Afríku, þar á meðal til Sierra Leone, Rúanda og Sambíu. Og þó að Tansanía sé fátækt ríki ef við rýnum í hagtölur þá er það í raun ríkt, en því mætti vera betur stjór­ nað. Þarna er olía, demantar og gull en arðurinn af auðlindunum skilar sér ekki jafnt til allra. Langstærsti hluti þjóðarinnar lifir á landbúnaði,“ segir Anna og nefnir sem dæmi fjöl­ skyldu Resty sem á nokkrar ekrur í kringum sitt hús þar sem þau rækta allan sinn mat, mest af maís sem er uppistaðan í mataræði Tansaníu. Nýtt kvennasamfélag Anna er greinilega ekki búin með sitt uppbyggingarstarf innan þorpsins því hún er strax komin á flug með næsta verkefni, sem er að styðja við konurnar í þorpinu. „Mig langar að hjálpa konunum að verða sjálfstæðari, kenna þeim að gera viðskipta­ og markaðsáætlanir og að búa til sitt litla fyrirtæki og styðja við hver aðra. Ég finn fyrir miklum áhuga hjá konunum við að framkvæma og verða sjálfstæðar, en þær komast ekki svo auðveldlega út af heimilunum. Konurnar sjá um börnin, þær safna eldivið og elda en karlarnir vinna úti. Auk þess eru þær að mörgu leyti beittar órétti meðal annars vegna gamalla hefða. Sem dæmi má taka að ef ung stúlka verður ófrísk meðan á skólagöngu stendur þá má hún ekki koma aftur í skólann, en það hefur engin áhrif á föður barnsins, jafnvel þótt hann sé líka í skólanum,“ segir Anna sem ætlar sér að vinna fyrir kon­ urnar í Bashay þrátt fyrir að hafa ekki mikinn tíma í augnablikinu. „Það er svo mikilvægt fyrir kon­ ur að stofna tengslanet og ég sé fyr­ ir mér að hópur kvenna héðan gæti lagt sitt af mörkum fyrir konurnar í Bashay. Tansanísku konurnar eru nú þegar búnar að stofna sitt net úti með því að setja upp félagasamtök kvenna. Þær borga í sjóð sem á að hjálpa þeim að byggja upp viðskipti eða að nýtast til kvenna sem þurfa félagslega hjálp, vegna t.d veikinda eiginmanns sem getur ekki unnið. En peningurinn sem á að hjálpa þeim til að hefja atvinnurekstur hefur ekki virkað hingað til því þær skortir stuðning og menntun. Þar langar mig að koma inn og hjálpa,“ segir Anna full eldmóðs. Það er nóg að gera hjá henni þessa dagana á Bifröst svo Tans­ anía verður að bíða í bráð. Þau hjónin stefna þó á að fara út í haust, hitta vini sína og kíkja á rekstur­ inn, fylgjast með ræktun maka­ demíutrjánna og bragða á nýrri uppskerunni. Það er að segja ef fíl­ arnir verða ekki búnir með hana áður. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is viðtal 19 Helgin 28.-30. mars 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.