Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1942, Síða 9

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1942, Síða 9
SVEITARSTJÓRNARMÁL O iucöal þeirra háfna, sem ekki eru sigldar upp, „Landet slorlig til Skade“. Það hefur hér A'erið talið, að Akranes- nafnið hafi horfið fyrir nafninu Skipa- skagi, og er það að vísu rétt, en í önd- verðu mun með Skipaskaga ekki hafa verið átt við nema framodda nessins, eða l'yrir vestan línu milli Krókalóns og Krossvikurbotns, eins og orðatiltæki Resens „Skagen ved Aggersnes“ sýnir. Síðan færðist nafnið yfir allt nesið, en ]iað er fyrst á síðari áratugum, að nafnið Akranes hefur aftur rýmt út heitinu Skipaskagi. Annars var nesið í byrjun þessarar aldar jöfnum höndum nefnt Akranes og Akraskagi, og er því ekki alveg víst, við hvort heitið „Skagen“ á hjá Resen, en með vissu er Skipaskagi, eins og getið var, ekki nefndur fyrr en á 17. öld. Nú er spurningin, hví kallar Resen höfnina „ved Skagen“, en ekki „Skagen“? Það getur naumast verið af öðru en því, að hann eigi hér við Krossvík. Hún skýt- ur nefnilega við og við upp höfðinu á 17. öldinni og nokkuð fram eftir, og er nú hin eiginlega höfn Akraneskauptúns. Það eru að vísu mjög óljósar heimildir fyrir því, að til Krossvíkur hafi verið kaupsigling, en það er allt svo óglöggt, að ekki er hægt að staðhæfa neitt um það, og víst er, að á kongsverzlunar- tímanum var engin verzlunarhöfn milli Rúða og Hólmsins, nema Straumfjörður. Þó eru nokkrar líkur á því, að Kross- vík hafi ekki verið með öllu verzlunar- laus á 17. og 18. öld, en líkur miklar virðast henda til, að þar hafi aðallega — eða jafnvel eingöngu — verið að ræða um ólöglega verzlun, eða það, sem nú á dögum mundi vera kallað smygl. Það er alkunnugt, að á tímum einokunarverzlun- arinnar gerðu kaupmenn sér aðallega far um að komast yfir framleiðsluvörur landsmanna, en létu sér lítið umhugað um að sjá þeim fyrir lífsnauðsynjum i staðinn, og keyptu vöruna íslenzku við lágu verði, en gerðust dýrseldir á inn- fluttu vöruna. Landsmenn skorti þá I.angisandur, baðstaður Akraness. injög margar og hrýnar nauðsynjar, og þeir urðu því að verzla við fríhöndlara, inest hollenzka duggara, sér til lífshjarg- ar, enda þótt þungar refsingar lægju við, og reyndist þessi ólöglegi kaupskapur jafnframt hentugri um verðlag en hinn. Það er að vísu svo að sjá, sem Brynjólfur biskup hafi selt löglegum kaupmönnum afla Skálholtsstólsbáta á Akranesi og látið þá hirða hann í Krossvík, en sagan al' viðskiptum þeirra frændanna Torfa Hákonarsonar og Jóns sýslumanns Vig- fússonar, Bauka-Jóns, er síðar varð Hólabiskup, i Krossvík um tóbaksrull- urnar bendir greinilega til þess, að það hafi fyrst og fremst verið smyglverzlun, sem rekin hafi verið um þessa höfn. Rétt að gáð er og ekki um neina löglega verzl- un að ræða á Skipaskaga fvrr en á 19. öld. Undirstöðunnar undir uppgangi Akra- ness er ekki að leita heima fyrir, heldur í Reykjavík. Eftir að Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi, fór smám saman að dragast þangað allt æðsta vald landsins, og hærinn gerðist fljótlega miðstöð þess. í byrjun aldarinnar, sem leið, sátu þar stiftamtmaður, biskup og landfógeti, þar var og æðsti dómstóll landsins og lærði skólinn, og Reykjavík varð jafnframt, cftir að verzlun landsins var gefin frjáls við alla þegna Danakonungs, helzti kaup- slaður og verzlunarmiðstöð þess. Það varð því og skjótlega svo, að allar leiðir landsmanna lágu til Reykjavíkur, og

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.