Sveitarstjórnarmál - 01.06.1942, Qupperneq 18
14
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Um fjölda kjósenda á kjörskrám liggja
ckki fyrir upplýsingar nema úr fáeinum
sveitarfélögum, og er því ekki unnt, að
svo stöddu a. m. k., að reikna út kosn-
ingaþátttökuna í heild sinni. Hins vegar
eru til yfirlitstölur um manntalið á
hverjum stað 1. des. 1940, og eru þær
teknar með á aðalskýrsluna yfir at-
kvæðamagnið og skiptingu þess, sem hér
er prentuð.
Atkvæðamagnið og skipting þess.
Svo sýnist eftir þeim upplýsingum, sem
nú eru fyrir hendi, að samtals hafi í
kosningunni 25. janúar og 15. marz
verið greidd og gild t'ekin 35 443 at-
kvæði. Mannfjöldi í sveitarfélögum þess-
um var talinn vera um síðastl. áramót
samtals 73 400.
Hrein flokksatkvæði vorn greidd sem
hér segir:
Sjálfstæðisflokkur . 14758 atkv.
Alþýðuflokkur .... 7565 —
Sósíalistaflokkur .. 6207 —
Framsókn ............. 3275 —
Utan flokka atkvæði voru 1310.
Nokkrum erfiðleikum er lmndið að
gera sér Ijóst, hver er skipting atkvæða-
magnsins milli þeirra flokka, sem sam-
eiginlega lista höfðu. Þó má nokkuð ráða
af því, hvernig stillt var á listana, því
að á smástöðmn vita kunnugir menn
nokkuð um fylgi flokka sinna fyrir kosn-
ingar, sérstaklega í sveitarstjórnir. Er
því sú áætlun, sem hér fer á eftir, gerð
samkvæmt því og svo þeim upplýsingum,
sem hægt hefur verið að afla um líkurn-
ar fyrir skiptingunni eftir að fullkunn-
ugt varð um úrslit. Að sjálfsögðu er þetta
áætlun ein, sem ekki verður fyllilega
byggt á, en nokkra hliðsjón má þó af
hafa, þegar reynt er að gera atkvæða-
magnið npp í heild.
Þótt vitað sé, að margs konar sjónar-
mið hafi ráðið um utanflokkaframboð,
er með öllu ókleift að skipta upp at-
kvæðamagni þeirra lista eða gera um það
nokkra áætlun, sem á skynsamlegum lik-
um sé reist. Verða þau atkvæði því alveg
Iátin eiga sig hér. En samkvæmt því, sem
áður er sagt, má telja líklegt, að í heildar-
dráttum skiptist atkvæðamagnið i sam-
eiginlegu framboðunum eins og hér segir:
Milli Alþýðuflokks og Sósíalistaflokks
er reiknað með % og % á Siglufirði, en
% og Vs á Eyrarbakka, eða samtals til
Alþýðuflokksins 504 atkvæði og til Sósí-
alistaflokksins 321 atkvæði.
Milli Alþýðuflokks og Framsóknar að
jöfnu, eða á hvorn flokkinn 398 atkvæði.
Milli Alþýðuflokks, Framsóknar og
Sósíalistafl. (á Sauðárkróki) að % á
hvern flokkinn, eða 88 atkvæði, og milli
Sjálfstæðis og Framsóknar að jöfnu, eða
221 atkvæði á hvorn flokkinn.
Sé þessi skipting tekin gild, og hún cr
áreiðanlega ekki fjarri sanni, yrði at-
kvæðamagnið á hvern flokk sem hér
segir:
Sjálfstæðisflokkur . 14979 atkv.
Alþýðuflokkur .... 8555 —
Sósíalistaflokkur .. 6616 —
Framsókn ............ 3983 —
Utanflokka........... 1310 —
Samtals 35443 atkv.
Fulltrúar.
Alls bar að kjósa 213 bæjarfulltrúa og
hreppsnefndarmenn í þessu 31 sveitar-
félagi, sem kosningar áttu að fara fram i,
samkvæmt lögum um sveitarstjórnar-
kosningar.
Af þessum 213 fulltrúum urðu 10 sjálf-
kjörnir, þ. e. á Blönduósi 5 og Djúpavogi
5, og verður vikið að skiptingu þeirra
milli flokka hér á eftir.
Hinir 203 skiptast þannig milli flokka,
eftir því sem nú er bezt vitað:
Alþýðuflokkur einn sér .... 40 fulltrúa
í samstarfi við Sósíalistafl. . 4 —
í samstarfi við Framsókn . . 8 —
í samst. við Frs. og Sósíal. . 1 —
Samtals 53 fulltrúa