Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Blaðsíða 15
TRYGGINGAMAL
------ RITSTJÓRI: GUÐJÓN HANSEN -
Almannatryggingar
1956.
Reikningar Tryggingastofnunar ríkisins
fyrir árið 1956 eru nú fullgerðir. Eru þeir
færðir með sama hætti og undanfarin ár,
enda kom það ákvæði almannatrygginga-
laganna frá 1956, að hver grein trygging-
anna skuli hafa sérstakan fjárhag, ekki til
framkvæmda fyrr en í ársbyrjun 1957. Hér
fer á eftir samandregið yfirlit um afkomu
almannatrygginga samkv. reikningum, og
til samanburðar birtast tölur áranna 1954
og 1955.
Breytingar þær, sem orðið hafa frá 1955,
má einkum rekja til fjögurra orsaka, þ. e.
lagabreytinga, hækkunar á vísitölu, at-
vinnuástands á árinu 1956 og fjölgunar
barna. Einnig hefur atvinnuástandið 1955
haft áhrif á tekjuhlið reikningsins 1956, þ.
e. iðgjöld atvinnurekenda, sem standa í
hlutfalli við fjölda vinnuvikna árið á und-
an.
Lagabreytingar þær, sem gerðar voru á
árinu, komu sumar til framkvæmda 1. jan.
1957. Áður hafa breytingarnar verið
raktar ítarlega í Sveitarstjórnarmálum,1)
og hér verður þeirra aðeins getið að því
leyti, sem þær hafa haft áhrif á afkomu
ársins 1956. Ákvæðin um, hvenær einstak-
ar greinar hinna nýju laga kæmu til fram-
kvæmda, voru sett með hliðsjón af því, að
heildarútgjöld trygginganna á árinu héld-
ust því sem næst óbreytt frá þvi, sem áætl-
að hafði verið í árslok 1955, þar eð tekjur
ársins 1956 voru látnar haldast óbreyttar.
Vísitala sú, sem iðgjöld og framlög mið-
ast við, var 158 stig 1954, 161 stig 1955
og 173 stig 1956. Meðalvísitala á bætur var
hins vegar 158,1 stig 1954, 162,2 stig 1955
og 175,6 stig 1956.
Vegna hinnar miklu og almennu atvinnu
hafa þær bætur, sem miðast við tekjur
bótaþega, orðið mun lægri en ella hefði
mátt búast við. Fæðingahlutfall hefur hald-
izt mjög hátt þessi þrjú ár, en hins vegar
hafa fámennir aldursflokkar flutzt í tölu
iðgjaldsgreiðenda.
1) Sjá 1.—2. hefti 16. árgangs, bls. 32.