Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Qupperneq 16
12
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Gjöld almannatrygginga 1954—1956.
Bætur vegna elli, urorku, dauða
Bætur sjúkratr. og fæðingarst. .
Fjölskyldubætur ...............
Slysabætur ....................
Kostnaður .....................
Bætur og kostnaður alls ...........
Til sjóða (annarra en trygg.sjóðs)
'l'il tryggingasjóðs, úr afskriftasjóði
Til tryggingasjóðs, tekjuafgangur .
1954 1955 1956
Þús. ki\ I'ús. kr. Þús. kr.
70.514 71.592 89.003
9.231 9.376 11.531
22.553 24.436 20.936
5.138 6.680 6.257
4.958 5.774 6.029
112.394 117.857 133.755
4.204 3.299 4.039
2.432 2.489 3.056
— 2.977 3.768
Alls 119.030 126.622 144.613
Af yfirlitinu uin gjöld almannatrygginga
sést, að mjög mikil hækkun hefur orðið á
bótum vegna elli, örorku og dauða. Hér
vega mest elli- og örorkulífeyrir, enda var
í árslok 1955 ákveðin 9% grunnhækkun á
þessum bótategundum frá ársbyrjun 1956.
Breytt ákvæði um skerðingu lífeyris vegna
annarra tekna og takmörkun sú, sem gilt
hafði um rétt þeirra til lífeyris almanna-
trygginga, sem lífeyris eða eftirlauna nutu
af opinberu fé eða úr opinberum sjóðum,
voru einnig látin gilda frá ársbyrjun 1956.
Þegar tillit hefur verið tekið til þessara
breytinga, svo og liækkunar vísitölu, virð-
ist svo sem fjölgun ellilífeyrisþega hafi ver-
ið mjög lítil á árinu 1956 og miklu minni
en ætla hefði mátt með tilliti til fjölgunar
gamalmenna.
Ákvæðið um, að barnalífeyrir skuli
greiddur með börnum ekkna án tillits til
þess, hvort móðirin gengur í hjónaband
aftur eða ekki, hefur ekki haft mikla þýð-
ingu vegna reglna um skerðingu lífeyris
vegna annarra tekna. Mikil hækkun varð
á mæðralaunum, og kom sú hækkun til
framkvæmda 1. apríl 1956.
Hin mikla aukning bóta sjúkratrygginga
og fæðingarstyrks á fyrst og fremst rót sína
að rekja til þess, að sjúkrabætur fluttust
í ársbyrjun 1957 frá Tryggingastofnuninni
til sjúkrasamlaga, og hafa því sjúkrabætur
vegna ársins 1956, sem ógreiddar voru í
árslok og að öllu óbreyttu hefðu verið tald-
ar til gjalda á árinu 1957, hér verið taldar
með bótum ársins 1956.
Lækkun fjölskyldubóta stafar af því, að
frá 1. apríl 1956 var hætt greiðslu bóta með
öðru barni í fjölskyldu.
í yfirlitinu er endurkræfur barnalífeyrir
(meðlagsgreiðslur) eigi talinn til bóta og
ekki heldur tekinn með tekna megin. Hann
nam 9,7 millj. 1954, 9,2 millj. 1955 og
11,3 millj. 1956. Þá ber þess að gæta, að
í reikningum stofnunarinnar er lífeyrir
slysatrygginga tvítalinn til bóta og talinn
með endurkræfum lífeyri tekna megin, en
hér hefur hann verið dreginn út úr bótum
vegna elli, örorku og dauða og einungis
talinn með slysabótum. Af kostnaði nam
kostnaður slysatrygginga 0,8 millj. króna
1956.