Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Qupperneq 24
20
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Samkvæmt þessu ættu greiðslur ríkis-
sjóðs, hinna tryggðu og sveitarsjóða til líf-
eyristrygginga að hækka um 1—2% frá þvi,
sem þær eru á þessu ári. Hins vegar ættu
greiðslur atvinnurekenda að lækka um ca
12%, og veldur þar hin mikla atvinna, sem
var á árinu 1956 og olli ríílegri inneign
atvinnurekenda.
Þess skal getið, að ef horfur eru á því
fyrir árslok, að vísitalan muni breytast
verulega frá því, sem gert var ráð fyrir,
þegar iðgjöld og framlög voru ákveðin,
getur ráðherra breytt framlögum og ið-
gjöldum til samræmis við væntanlega vísi-
tölubreytingu.
Iðgjöld einstaklinga og vikugjöld at-
vinnurekenda hafa enn ekki verið ákveðin,
en þau ákvarðast af áætluðum íjölda ið-
gjaldsgreiðenda og vinnuvikna. Af framan-
sögðu virðist þó mega gera ráð fyrir lítilli
breytingu á iðgjöldum hinna tryggðu og
nokkurri lækkun á iðgjöldum atvinnurek-
enda.
B. Slysatryggingar.
Með óbreyttum iðgjöldum til slysatrygg-
inga má áætla iðgjaldafjárhæð 1958 9,8
millj. króna, en lyrir dyrum stendur end-
urskoðun á iðgjöldum til slysatrygginga og
skiptingu starfsgreina í áhættuflokka.
C. Sjúkratryggingar.
iðgjöld samlagsmanna til sjúkrasamlaga
árið 1958 eru áætluð 45,7 millj. króna. Verð-
ur þá framlag ríkis og sveitarfélaga 15,2
millj. frá hvorum aðila. Framlag lífeyris-
trygginga til sjúkrasamlaga er áætlað 5,1
millj. kr. Áætlun þessi er miðuð við, að
daggjöld á sjúkrahúsum haldist óbreytt frá
því, sem nú er.
D. Atvinnuleysistryggingar.
Framlag ríkissjóðs til atvinnuleysistrygg-
inga árið 1958 er áætlað 22,5 millj. króna,
iðgjöld atvinnurekenda 11,2 millj. króna
og framlög sveitarfólaga 11,2 millj. króna.
Er þarna gert ráð fyrir lítilsháttar hækkun
umfram visitöluhækkun frá áætluninni fyr-
ir árið 1957.
Sjúkrasamlög. Nýjar iðgjaldahækkanir.
(Sjá ennfremur 16. árg., 1.—3. hefti og 17. árg., 1.—3. hefti).
Sjúkrasamlag Borgarfjarðarhrepps . .Úr kr. 144.00 í kr. 240.00 á ári frá V1 ’57
— Hlíðarhrepps — 264.00 - — 300.00 - — — Vi ’57
— Hvalfjarðarstr.hrepps . .. — 240.00 - - 360.00 - — — V1 ’57
— Kelduneshrepps .. - - 300.00 - — 400.00 - — — Vr ’57
— Miklaholtshrepps — 288.00 - — 360.00 - - - V1 ’57
— Mjóafjarðarhrepps .. — — 240.00 - — 300.00 - — — V1 ’57
— Seltjarnarneshrepps ..... — 420.00 - — 480.00 - — - Vt '57
— Skriðuhrepps .. - — 200.00 - - 240.00 - — — Vt '57
— Staðarhrepps, V.-Hún. .. .. — — 264.00 - - 300.00 - — — Vi ’57
— Stokkseyrar .. — - 420.00 - — 480.00 - - — Vt ’57
— Svarfaðardalshr., Dalv.d. . .. — — 240.00 - — 300.00 - — — V1 ’57
— Ögurhrepps 384.00 - - 420.00 - - — Vi ’57