Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Qupperneq 5
SVEITARSTJORNARMAL
19. ÁRGANGUR TÍMARIT UM MÁLEFNI ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA
a /T\ ÚTGEFANDI: SAMBAND ISLENZKRA SVEITARFELAGA
19 5 9
RITSTJORI OG ABYRGÐARMAÐUR: GUÐNI GUÐNASON
jÚNÍ—ÁGÚST Utanáskrift: SVEITARSTJÓRNARMÁL, Pósthólf 1079, Reykjavik.
Lögheimili.
Heilbrigðis- og íelagsmálaneínd efri-
deildar Alþingis flutti á síðasta þingi frum-
varp um lögheimili. Þar sem þetta mál
varðar sveitarfélögin mjög miklu þykir
rétt að birta frumvarpið hér í heild, ásamt
greinargerð er frumvarpinu fylgdi.
FRUMVARP TIL LAGA
UM LÖGHEIMILI.
1. gr. — Sérhver maður, sem dvelst eða
ætlar að dveljast á íslandi fengur en 6
mánuði, skaf eiga lögheimili samkvæmt
því, sem fyrir er mælt í fögum þessum.
Sama gildir um útfendinga, sem stunda hér
atvinnu, þó að dvöl þeirra sé skemmri en
6 mánuðir.
Enginn getur átt fögheimifi hér á landi
á fleiri stöðum en einum í senn.
2. gr. — Þar er lögheimifi manns, sem
hann á heimili.
Heimili manns er sé staður, þar sem hann
hefur bækistöð og dvelst að jafnaði í tóm-
stundum sínum og hefur þá hluti, sem eru
honurn persónufega tengdir, svo sem fatnað,
húsgögn, bækur o. fl.
Það telst eigi heimili, þó að maður dvelj-
ist í skóla, sjúkrahúsi, heilsuhæli, elliheim-
ili eða annarri slíkri stofnun, vinnuhæli
eða fangahúsi, eða ef hann dvelst eingöngu
eða aðallega til lækninga eða heilsubóta.
Sama gildir um dvalarstað vegna árstíða-
bundinnr atvinnu, svo se mvertíðarvinnu,
kaupmennsku og vetrarvistar eða annarrar
vetrardvalar vegna atvinnu, enda hverfi
maðurinn til lögheimilis síns að slíkri dvöl
lokinni.
Dvalarstaður rnanns á athafnasvæði varn-
arliðsins, meðan hann stundar vinnu á
vegum þess, telst eigi heimili, nema hann
tilkynni dvalarstaðinn sem lögheimili.
3. gr. — Nú á maður samtímis heimili í
fleiri sveitarfélögum en einu, og skal hann
þá eiga þar lögheimili, sem aðalatvinna
hans er og hefur verið 2 síðastliðin ár eða
lengur. Það telst aðalatvinna í þessu sam-
bandi, sem varir lengur en 6 mánuði á ári
eða hefur gefið tekjur meira en 2/3 af hrein-
um árstekjum mannsins. Verði eigi þannig
greint á milli um atvinnu í ýmsum sveitar-
félögum, skal maðurinn sjálfur ákveða,
hvert heimila hans skuli vera lögheimili,
en þjóðskráin ákveður, hvert heimilanna
skuli vera lögheimili hans, hafi hann sjálf-
ur ekki tilkynnt það.
4. gr. — Nú á maður hvergi heimili, og
á hann þá lögheimili í sveitarfélagi, þar
sem hann stundar atvinnu að staðaldri.