Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Síða 10

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Síða 10
6 SVEITARSTJ ÓRNARMÁL við sambúðarslit, sbr. 2. mgr., en ef svo stendur á, eiga hjónin sameiginlegt val um það, hvort heimilið skuli vera lögheimili þeirra, sbr. regluna í 3. gr. Rétt virðist, að það, sem dkveðið er um hjón, skuli og gilda, eftir því sent við getur átt, um fólk í óvígðri sambúð, sem á börn saman. Samkvæntt 2. mgr. fer um lögheimili hjóna, sem slitið hafa samvistum að lög- um eða ekki búið saman 2 ár eða lengur, eftir að þau giftust, sem um lögheimili ein- staklinga. Samkvæmt lögum nr. 39/1921, um stofnun og slit hjúskapar, 63. gr., get- ur hvort hjóna sem er krafizt skilnaðar, ef þau hafa lifað hvort í sínu lagi í 3 ár án leyfis til skilnaðar að borði og sæng. Um 8. gr. — Eðlilegt virðist, að börn, sem yngri eru en 16 ára, eigi sarna lögheim- ili og foreldrarnir. Sama er að segja um kjörbörnin. Til jiess að fósturbörn fái lög- heimili fósturforeldra sinna,, er svo ákveð- ið í greininni, að þau séu í fóstrinu án með- gjafar. Ef ekki er um að ræða munaðar- laus börn, sbr. 3. mgr., virðist samband barns við föður sinn eða móður veikt, ef hvorugt annast framfærslu jjess, svo að eðli- legt virðist að telja lögheimili jress hjá fósturforeldrum, sem annast framfærsluna. Um 9. gr. — Ákvæði greinarinnar utn fólk, sem verið hefur hjá foreldrum sín- um og yngra er en 21 árs, eru byggð á því, að fólk á jjessu aldursskeiði er oft mjög óráðið og sé því rétt að tengja lögheimili jtess við heimili foreldranna, nema sam- band jtess við jjað sé algerlega rofið. Sam- kvæmt 2. mgr. er lagt til, að sama regla skuli gilda um þá, sem stunda nám sent aðalviðfangsefni, Jjó að Jreir séu eldri en 21 árs, unz námi lýkur. Ástæðan fyrir Jrví er ekki sú, að jjetta fölk sé yfirleitt óráðið, eins og yngra fólkið er oft, heldur hin, að námsdvöl er oft ntjög löng, en þó í eðli sínu ekki heimilisfesta í raún og veru. Sýn- ist þá eðlilegt að láta foreldraheimilið ráða, nema tengsl við jtað sé algerlega rofin. Unt 10 gr. — Hér er enn sérregla um námsfólk, sem eðlilegt virðist að lögfesta. Það mun velta á ýnisu um lögheimili jjeiria, sem nú stunda nám i útlöndum, enda engin ákvæði i núgildandi lögum um jressi efni. Hér er aðeins um lieimildar- ákvæði að ræða, svo að ekki er víst, að ástandið breytist frá jjví, sem nú er, þó að ákvæðið verði lögtekið. í 33. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, er 5 ára búseta í landinu sett sem skilyrði fyrir kosningarrétti. Það virðist þess vegna vera varhugavert að rýmka heimild jjeirra, sem erlendis eru, til jjess að telja lögheinr- ili sitt hér á landi frá Jrví, sem lagt er til í frumvarpinu. Auk námsfólks tekur heim- ildin einnig til sjúklinga og þeirra, sem fara til útlanda í kynnisfarir til ættingja sinna eða venzlafólks. Slíkar kynnisfarir geta stundum staðið yfir í heilt ár eða jafnvel lengur. Ákvæði 2. mgr. fjallar um starfsmenn í Jrjónustn ríkisins og er að efni til sam- hljóða 2. mgr. 1. gr. laga nr. 95/1936, um heimilisfang. Unr 11. gr. — Þarfnast ekki skýringa. Unr 12. gr. — Samkvæmt lögunr nr. 73/ 1952, unr tilkynningar aðsetursskipta, er nrönnum skylt að tilkynna sveitarstjórn, ef jreir skipta unr aðsetur eða heimilisfang, sjá 2. og 3. gr. þeirra laga. Hér er lagt til, að ákvæði jressara laga skuli gilda, eftir Jrví sem við á, unr breytingu á lögheinrili. í franrkvæmdinni munu slíkar tilkynn- ingar ráða nriklu unr Jrað, hvar lögheinr- ili manna verður talið. Þykir Jrví nauðsyn- legt, að unr slíkar tilkynningar gildi fast- ar reglur eins og um aðsetursskipti. Aðset- ur og heimili ler oftast sanran. Aðseturs- staður nranna er Jress vegna að jafnaði lög- heimili hans. Það er ekki ástæða til Jress

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.