Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Side 11
SVEITARSTJÓRNARMÁL
7
að setja sérstök lagaákvæði um breytingu
á lögheimili. Gildandi ákvæði unr tilkynn-
ingar aðsetursskipta eru fullnægjandi, el'
jrau eru einnig látin gilda unr brevtingu á
lögheimili.
Um 13. gr. — Þjóðskráin semur árlega
íbúaskrár fyrir sveitarfélögin miðað við 1.
desember, sbr. 13. gr. laga nr. 31/1956. Ibúa-
skrárnar erti miðaðar við aðsetursstað
manna, en hér er lagt til, að Jiær verði mið-
aðar við lögheimili.
Um 14. gr. — Samkvæmt grein Jressari á
dómari úrskurð um lögheimili, sbr. 6. og
7. gr. laga nr. 95/1936, um heimilisfang.
Gert er ráð fyrir, að aðili sjálfur, þjóð-
skráin og hlutaðeigandi sveitarstjórn hafi
heimild til þess að beiðast rannsóknar og
úrskurðar dómara. Upplýsingar jrær og
heimildir, sem jajóðskráin hefur, kunna að
rekast á. Geti Jrjóðskráin ekki sjálf aflað-
nægra upplýsinga, svo að ósamræmið verði
örugglega leiðrétt, er henni nauðsynlegt að
geta snúið sér til dómara og fengið úr-
skurð um lögheimilið. Þá verður að gera
ráð fyrir því, að Jjað geti komið fyrir, að
sveitarstjórn telji íbúaskrá vafasama eða
ranga varðandi einhvern einstakling, og er
Jrá sveitarstjórn rétt að beiðast rannsóknar
og úrskurðar dómara. Nauðsynlegt er, að
dómari hraði mjög afgreiðslu slikra mála.
Það er því lagt til, að nteð málið skuli far-
ið að hætti opinberra mála.
Um 15. gr. — Þarfnast ekki skýringa.
Yfirlit yfir úrslit alþingiskosn-
inga 1956 og 1959.
1956
Aljtýðubandalag . . . . 15.859 atkvæði = 19.2%
Alþýðuflokkur 15.153 - = 18.3%
Framsóknarflokkur . . 12.925 - = 15.6%
Sjálfstæðisflokkur . . . 35.027 - = 42.4%
Þjóðvarnarflokkur .. 3.706 = 4.5%
1959
Alþýðubandalag . . . . 12.929 atkvæði = 15.2%
Alþýðuflokkur . 10.632 - = 12.5%
Framsóknarflokkur . . 23.062 - = 27.2%
Sjálfstæðisflokkur . . . 36.029 - = 42.5%
Þjóðvarnarflokkur . . 2.137 - = 2.5%
Úrslit í kaupstöðum 1959.
Alþýðubandalag . . . 8.823 atkvæði = 18.4%
Aljtýðuflokkur .... . 7.371 - = 15-4%
Framsóknarflokkur . 6.900 - = 14-4%
Sjálfstæðisflokkur . . 23.136 - = 48.4%
Þjóðvarnarflokkur . 1.598 - = 3.3%