Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Side 19
SVEITARSTJÓRNARMÁL
15
um hafi þá verið 300000 fyrrverandi starfs-
menn einkafyrirtækja og 800000 fyrrum
opinberir starfsmenn. Lífeyrisgreiðslur á
jrví ári eru áætlaðar 50 ntillj. £ til fyrr-
nefnda hópsins, en 150 millj £ til hins
siðarnefnda.
II. Tillögur ríkisstjórnarinnar
um ellitryggingar.
í október 1958 birti brezka ríkisstjórnin
tillögur um breytta skipan ellitrygginga.
Setja þarf nýja löggjöf til þess að hægt sé
að korna málinu í framkvæmd, og vegna
nauðsynlegrar umskipulagningar mun ekki
verða unnt að taka upp hina nýju skipan
fyrr en í apríl 1961.
Tillögurnar hafa þrjú markmið:
1) Að koma tryggingunum á heilbrigðan
fjárhagsgrundvöll.
2) Að veita þeim launþegum, sem ekki
hafa aðgang að lífeyrissjóðum eða eru
tryggðir hjá tryggingafélögunt, rétt til
líl'eyris, sem að einhverju leyti fari eftir
tekjum.
3) Að tryggja og ýta undir hagkvæma
þróun sérsjóða.
Samkvæmt núgildandi reglum eru bæði
iðgjöld og lífeyrir fastar upphæðir án til-
lits til launa. Með tillögunum er gert ráð
fyrir, að heildartekjur trygginganna aukist
til muna, þannig að halli verði ekki. Ið-
gjöld hinna lægstlaunuðu lækka lítið eitt,
en iðgjöld annarra hækka.
Sem dæmi má taka vikugjöld karla, eins
og þau birtast í töflunni neðst á síðunni.
Þeir, sem hafa 9£ eða lægri laun á viku,
eiga rétt til sömu eftirlauna og nú eru
greidd öllum. Þau nerna nú t. d. 2£ lOs.
á viku fyrir ókvænta karla og 4£ fyrir
kvænta karla. Sama rétt eiga þeir, sem ekki
starfa í annarra þjónustu. Viðbótarlífeyrir
fer eftir launum og iðgjaldagreiðslutíma.
Svo sem að framan er sagt, munu allir
eiga rétt á lágmarkslífeyri ellitrygginganna.
Hins vegar geta starfsmenn fyrirtækja, sem
eru í sérstökum lífeyrissjóðum, „samið sig
út úr“ viðbótartryggingunni. Greiða þeir
þá áfram sama iðgjald og nú er greitt. Skil-
yrði fyrir slíkum samningi er, að fjárhags-
grundvöllur sérsjóðsins sé traustur og líf-
eyrir verði ekki lægri en viðbót sú, sem
starfsmaðurinn hefði fengið, ef hann hefði
greitt hámarksiðgjald til ellitrygginganna.
Ríkissjóður leggur árlega fram 170 millj.
£ til ellitrygginganna. Til þess að koma í
veg fyrir halla, er lagt til að iðgjöld verði
hækkuð fjórum sinnum með fimm ára
millibili, í fyrsta sinn 1965. Með þessu
móti yrði ráðin bót á hinum sívaxandi
halla, sem tryggingarnar eru reknar með
nú.
Núverandi vikugjald ...............
Till.: Laun 9£ á viku eða lægri
„ „ 15£ „ „ „ hærri
Launþegi Alvinnuveit. Alls
9s. lld. 8s. 3d. 18s. 2d.
8s. 4d. 7s. Od. 15s. 4d.
13s. 5d. 12s. Id. 25s. 6d.