Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Síða 24
20
SVEITARSTJ ÓRNARMÁL
---------------------------------\
TRYGGINGATÍÐINDI
V________________________________*
Nýir samningar við lækna.
í 1. hefti þessa árgangs var þess getið, að
Læknafélag íslands og Læknafélag Reykja-
víkur hefðu sagt upp samningum sínum við
sjúkrasamlög um læknaþjónustu frá síðast-
liðnum áramótum að telja, og jafnframt
greint frá því, að samningar hefðu tekizt
um greiðslur fyrir læknishjálp í Reykjavík.
Samningar um greiðslur til héraðslækna
í kauptúnum, þar sem héraðslæknir situr
einn og hefur fastan samning við sjúkra-
samlag, tókust fljótlega. Var samið um 17%
hækkun fastagjalda, en þau breytast ekki
með vísitölu og höfðu verið óbreytt frá 1956.
Erfiðlegar gekk að ná samkomulagi um
greiðslur til lækna í kauptunum og kaup-
stöðum utan Reykjavíkur, þar sem fleiri en
einn læknir eru starfandi. Að lokum var þó
samið um grunnhækkun á fastagjöldum
fyrir heimilislæknisstörf, og nemur grunn-
hækkun þessi 13% á Akureyri, en 11% á
öðrum stöðum, sem hér um ræðir. Jafn-
framt var felld niður 5 stiga skerðing vísi-
tölu, sem gilt hafði á þessum stöðurn að
undanskildum Akureyri og Hafnarfirði.
Greiðslur fyrir nætur- og helgidagavitjanir
hækkuðu um 25%, en þessar greiðslur
fylgja ekki vísitölubreytingum.
Um greiðslur til sérfræðinga náðu sjúkra-
samlög utan Reykjavíkur, Kópavogs og Sel-
tjarnarness samkomulagi við Læknafélag
Reykjavíkur á þeim grundvelli, að heildar-
hækkun greiðslna fyrir sérfræðingsverk yrði
svipuð og hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur.
Samkvæmt hinum nýja samningi er nú yfir-
leitt greitt fyrir slík verk eftir gjaldskrá
I„ R. frá 1955, með 10% afslætti, ef um
sjúkrahúslegu er að ræða, en ella með
2,3% álagi. Erfitt er að áætla meðalhækk-
un þá, sem hinn nýi samningur hefur í för
með sér, en hækkanir voru mjög mismun-
andi miklar í einstökum sérfræðigreinum.
Sjúkdómar og lifnaðarhættir nútímans.
Það virðist ekki hafa við rök að styðjast,
að krabbamein í maga og of hár blóðþrýst-
ingur sé gjald, sem greiðist fyrir þá menn-
ingu og nútíma lifnaðarhætti, sem við bú-
um við, en þessu halda sumir læknar fram.
Samkvæmt athugunum, sem gerðar hafa
verið meðal þjóða, sem enn lifa mjög frum-
stæðu lífi, eru þessir sjúkdómar nær því
eins algengir og meðal menningaþjóða, en
aðeins ekki eins oft teknir til rannsóknar
eða læknisaðgerðar. Þegar veittar voru
fimmtíu milljónir dollara til stofnunar fyrir
alþjóða læknisfræðirannsóknir, sagði dr.
Peter Commanduras:
1. Krabbamein í meltingarfærum er al-
gengt meðal ómenntaðs og fákunnandi
fólks á Indlandi, sem ekki verður fyrir
óþægindum af því, að það þurfi sífellt
að vera að hugsa um klukkuna, tala í
síma eða aka sig þreytt.
2. Sjúkdómar í kransæðakerfi, sem á Vest-
urlöndum eru settir í samband við
neyzlu fæðutegunda, sem eru of ríkar
af fituefnum, eru algengir meðal ind-
verskra bænda, sem neyta lítillar fitu.
3. Stöðugt kvef og bólgur í öndunarfærum
eru mjög algengir sjúkdómar meðal
barna í ísrael og Jórdaníu, þar sem lofts-
lag er þó mjög þurrt.
4. Krabbamein í munni og koki, sem eru
sjaldgæfir sjúkdómar á Vesturlöndum
í hlutfalli við krabbamein í öðrum hlut-
um líkamans, eru miklu tíðari sjúkdóm-
ar í Suð-austur-Asíu. Þetta sýnir, að
margar þær hugmyndir, sem menn til
skamms tíma hafa haft um þessi efni,
þurfa endurskoðunar við.